Pressan - 29.04.1993, Page 10
S KIL A B OÐ
10 PRESSAN
Fimmtudagurinn 29. apríl 1993
Viltu gera góð kaup?
Allt á hálfvirði á afsláttarstandinum
í Pelsinum
DÆMI ÞESSA VIKU:
Minkapelskápurogjakkar,
pelsfóðurkápur og jakkarjeðurkápur
og jakkar. Greiðslukjör við allra hæfi.
Alltafeitthvað nýtt á standinum
Fallegur fatnaður frá
Kirkjuhvoli ■ sími 20160
Vönduð vinna og gæði í preniun.
Langar og stuttar ermar, maigir litir.
Hettubolir Húfur i mörgum litum.
Filmuvinnum myndir. Gerum tilboð í stærri verk,
Nýtt! Nýtt! Nýtt! Nýtt! Nýtt!
Komdu með Ijósmynd eða teikningu og við
Ijósritum myndina á bol eða húfu fyrir þig.
Smiðjuvegur 10 * 2CX) Kópavogur
Sími 7 91 90 • Fax 7 97 88
SET SNJÓBRÆÐSLURÖR
Fullnýtum orku heita vatnsins með SET -
snjóbræðslurörum undir stéttar og plön.
SET - snjóbræðslurör eru gerð úr fjölliða
poly propelyne plastefni af viðurkenndri
gerð.
Hita- og þrýstiþol í sérflokki.
SET - snjóbræðslurör og hitaþolin
vatnsrör eru framleidd í eftirfarandi
stærðum 20 mm, 25 mm, 32 mm og
40mm.
EYRAVEGI 43 • 800 SELFOSSI
Box 83 • SÍMI 98-22700 • Fax 98-22099
REYKVIKINGAR!
NÚ ERKOMINN TÍMI
NAGLADEKKIN AF
FYRIR SUMARDEKKIN
SUMARDEKKIN Á
GATNAMÁLASTJÓRI
Uppljóstrunin
míkla
í tilefni telex-ofanflett-
ingar Ólafs Hannibals-
sonar
í beinni útsendingu í Sjónvarp-
inu þann 20. apríl fletti Ólafur
Hannibalsson ofan af því að í bréf-
haus fyrirtækis míns FILM væri að
finna sama telexnúmer og Hekla hf.
notar og jafnffamt fletti hann ofan
af því að Ingimundur Sigfússon
væri stjórnarformaður Heklu og
auk þess stjórnarformaður Stöðvar
2. Því væri hér um enn einn hags-
munaáreksturinn að ræða, sem svo
mjög hefði borið á upp á síðkastið í
tengslum við Hrafh Gunnlaugsson.
Þessi uppljóstrun var gerð með
svo dramatískum tilþrifúm að upp-
ljóstrarinn skalf af geðshræringu,
og svelgdist nánast á texta sínum af
gleði yfir eigin ff ammistöðu.
„Þessi uppljóstrun vargerð
með svo dramatískum tilþrif-
um að uppljóstrarinn skalfaf
geðshræringu, og svelgdist
nánast á texta sínum afgleði
yfir eigin frammistöðu," skrifar
Hrafn um telefax-innlegg
Ólafs Hannibalssonar.
Ég rifja þetta upp hér, því þetta
litla atvik lýsir í hnotskurn þeirri
meðferð sem persóna mín og starf
hefur fengið í ríkisfjölmiðlum að
undanförnu, og var því fylgt dyggi-
lega eftir í síðustu PRESSU.
Staðreyndir þessa máls eru:
Árið 1978, þegar ég var nýkom-
inn heim ffá námi og var að berjast
fyrir því að geta framleitt kvik-
myndina „Óðal feðranna“, kynntist
ég Ingimundi Sigfússyni. Þessi góði
maður hjálpaði mér í erfiðleikum
mínum og lánaði mér m.a. aðstöðu
til að geta hrundið Óðali feðranna
af stokkunum. Fæ ég seint þakkað
þann skilning sem ég átti að mæta
hjá Ingimundi, á þeim tíma sem fá-
ir höfðu trú á íslenskri kvikmynda-
gerð.
Nokkru síðar, þegar ég bjó til
bréfsefni fyrir FILM og þurfti að
gefa upp númer sem erlend fyrir-
tæki, er framkölluðu myndina og
seldu okkur þjónustu, gætu haft
samband við mig í, bauð Ingi-
mundur mér að nota telextæki
Heklu, en í þann tíma notuðu
menn telex, en ekki telefax eins og í
dag.
Síðan eru Iiðin nær tuttugu ár.
Ekki hef ég þurft að endurprenta
bréfsefni FILM síðan, og þótt FILM
hafi ekki notað telex í háa herrans
tíð og fyrir löngu komið með sitt
eigið telefaxnúmer, þá er telexnúm-
erið enn í nefndum bréfhaus, og
verður það áfram, ef Ingimundur
leyfir, sem minnismerki um vináttu
góðs drengs.
Með kveðju,
Hrafh Gunnlaugsson.
Aths. ritstj.
Meginefni fféttar PRESSUNN-
AR var að þeir Hrafn og Ingimund-
ur sitja báðir í stjórn FILM hf., sam-
kvæmt upplýsingum hlutafélaga-
skrár. Þeirri hugsun var velt upp að
annars staðar yrðu líklega gerðar
athugasemdir við að yfirmenn hvor
síns fýrirtækisins á sjónvarpsmark-
aði eigi saman umsvifamikið kvik-
myndafyrirtæki og það væntanlega
kallaðir óásættanlegir hagsmuna-
árekstrar.
Ritstj.