Pressan - 29.04.1993, Síða 24

Pressan - 29.04.1993, Síða 24
VISIR AÐ DONABOKMENNTU M 24 PMSSAN Fimmtudagurinn 29. apríl 1993 FIMMTUDAGURINN 29. APRÍL Klassíkin • Sinfóníuhljómsveitin leikurá útskriftartónleikum Tónlistarskóla Reykjavíkur. Einleikarar eru Rúnar Ósk- arsson, klarinett, Ingunn H. Hauksdóttir, píanó, og Anna Snæbjörnsdóttir, pí- anó. Flutt verða eftirtalin verk: Konsert fyrir klarinett og hljómsveit eftir Copland, Píanókonsert op. 16 í a-moll eftir Grieg og Píanókonsert nr. 1 op. 15 í C-dúr eftir Beet- hoven. Háskólabíó kl. 20. Nemendatónleikar Tónlist- arskólans á Seltjarnarnesi. Norræna húsið kl. 20.30. Leikhúsin • Stútungasaga. Stríðsleik- ur með gamansömu ívafi í flutningi leikfélagsins Hug- leiks, félags áhúgaleikara í -■Reykjavík. Tjarnarbíó kl. 20.30. • Dauðinn og stúlkan. _★★★★ Tvímælalaust besta sýningin á þessu leikári, þrátt fyrirýmsa galla. Borgarleikhúsið, litla sviðið kl. 20. FOSTUDAGURINN 30. APRÍL TKIassíkin • Valborgarhátíð í sam- vinnu við Islandssvenskarna. Kór frá Norræna félaginu í Vestur-Svíþjóð syngur sænskar vorvísur. Vísna- söngvararnir Anna Pálína og Aðalsteinn Ásberg skemmta með norrænum vísum í kaffi- stofu. Norræna húsið kl. 19. Leikhúsin _• Kjaftagangur. Frumsýn- ing á gamanleik Neils Simon. Leikstjóri er Asko Sarkola, einn af þekktustu leikhús- mönnum Norðurlanda. Með- al leikenda eru Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, Örn Árnason, Tinna Gunnlaugsdóttir, Pálmi Gestsson, Halldóra Björns- dóttir og Sigurður Sigurjóns- son. Þjóðleikhúsið kl. 20. • Sardasfurstynjan. ★★★ Góð skemmtun á meðan á henni stendur og ágæt til- raun til að skemmta fleirum en þeim sem þegar eru fasta- gestir íslensku óperunnar. Is- lenska óperan kl. 20. • Leðurblakan. Óperetta Jo- hanns Strauss sýnd norðan heiða. Leikstjóri er Kolbrún Kristjana Halldórsdóttir. Með stærstu hlutverkfara Jón Þor- steinsson, Ingibjörg Mar- teinsdóttir og Guðrún Jóns- dóttir. Leikfélag Akureyrar kl. 20.30. • Stútungasaga. Leikfélagið Hugleikur. Allra síðasta sýn- ing. Tjarnarbíó kl. 20.30. LAUGARDAGURINN 1 . MAÍ Leikhúsin • Pelíkaninn. Nemendaleik- húsið frumsýnir kammerleik- rit Augusts Strindberg. Leik- stjóri er Kaisa Korhonen. Leik- endur eru Hinrik Ólafsson, Dofri Hermannsson, Björk Jakobsdóttir, Gunnar Gunn- steinsson, Vigdís Gunnars- dóttir og Jóna Guðrún Jóns- dóttir. Lindarbærkl. 20.30. • My fair lady. Stefán Bald- ursson leikstjóri hefur skilið nauðsyn góðrar útfærslu vel og kostar miklu til. Úrvalsfólk er á hverjum pósti undir styrkri stjórn Stefáns. Þjóð- leikhúsið kl. 20. • Stund gaupunnar. © Ágætir leikhæfileikar Ingvars, Lilju og Guðrúnar fara til spillis í þessu fáránlega leik- riti. Svona getur árangurinn orðið þegar ritstjórinn er rauður köttur sem vill upp- hefja sig í guðatölu. Þjóðleik- húsið, litla svið, kl. 20.30 • Stræti. Þessi sýning er gott dæmi um það hve stílfærður og stór leikur fer vel á sviði. Þjóðleikhúsið, Smíðaverk- stæði, kl. 20. • Ronja ræningjadóttir. Það er mikill styrkur fyrir sýn- inguna að svo snjöll leikkona sem Sigrún Edda Björnsdóttir getur leikið hina tólf ára gömlu Ronju án þess að maður hugsi mikið út í ald- ursmuninn. Borgarleikhúsið kl. 14. • Tartuffe. ★★★ Hvílíkt de- bút á stóra sviðinu fyrir Þór Tulinius leikstjóra! Verkið er keyrt á ótrúlegum hraða frá byrjun til enda, troðið af bröndurum, hlátri og upp- hrópunum. Borgarleikhúsið kl. 20. • Sardasfurstynjan. ★★★ Islenska óperan kl. 20. • Leðurblakan. LeikfélagAk- ureyrar kl. 20.30. SUNNUUPAGURINN 2. MAÍ Leikhúsin • Coppelía. Ballettsýning Is- lenska dansflokksins í upp- færslu Evu Evdakimovu. Að- alhlutverk eru í höndum Láru Stefánsdóttur og Eldars Vilev. Borgarleikhúsið kl. 20. • Ronja ræningja- dóttir. Borgarleik- húsiðkl. 14. • Kjaftagangur. Þjóðleikhús- ið kl. 20. • Stræti. Þjóðleikhúsið, Smíðaverkstæði, kl. 15. • Leðurblakan. LeikfélagAk- ureyrar kl. 20.30. í heftinu í Birkilaut birtust erótískar ástarsögur eftir innlenda og erlenda höfunda ásamt myndum af Hollywood-meyjum í heftinu eru tvœrsögur eftir Indriða. Þráttfyrir mótmœli Indriða G. Þorsteinssonar er það trú margra að þœr séu œskuverk hans Árið 1950 gaf bókaútgáfan Bjarkir út lítið kver með ástar- sögum eftir innlenda og erlenda .höfunda. Kverið nefndist í birkilaut. Lítt var hirt um að vanda til útgáfunnar, kverið var greinilega ekki prófarkalesið, morandi í stafsetningar- og prentvillum. Hins vegar voru í því nokkrar ljósmyndir af nökt- um stúlkum. Enginn þeirra íslensku höf- unda sem efni áttu í kverinu kom fram undir fullu nafni. Tvær sögur voru merktar höf- undi sem nefndi sig Indriða. Sá sami Indriði mun eiga sögu sem einnig finnst í kverinu og sögð er úr dagbók leigubílstjóra. Áreiðanlegar heimildir eru íyrir því að þessar þrjár sögur séu fyrstu skáldverk Indriða G. Þorsteinssonar sem komu á prent. Höfundurinn var þá tutt- ugu og fjögurra ára. Bragi Kristjónsson forn- bókasali stillti þessu kveri eitt sinn út í verslunarglugga sinn með tilheyrandi auglýsingu þar sem sagði að þarna mætti finna frumsmíðar rithöfundarins Indriða G. Þorsteinssonar. Þeg- ar Indriði rak augun í auglýs- inguna brást hann reiður við, enda tregur til að gangast opin- berlega við þessum afkvæmum sínum. Hið takmarkaða dálæti höf- undar á æskuverkunum skýrist þegar farið er að glugga í sög- urnar. Óhætt mun að fullyrða að þær beri ekki vitni um um- talsverða skáldgáfu höfundar síns. Sagan I ffamsætinu segir frá pilti og stúlku og hvernig þau uppgötva þrá sína og vilja hvort til annars. Sagan hefst á þessum orðum: „í hinum lífrænu, bláfölu skuggum síðsumarsnæturinnar byltast atburðirnir um í hafróti lífsins. Ósamkynja lífverur eiga þá samleið, langt eður skammt eftir atvikum.“ Höfundur reynir síðan eftir mætti að skapa ljóðræna, róm- antíska stemmningu. Árangur- inn kann að hrífa viðkvæmustu lesendur: „Litlir ljúfir hugálfar mynda krans um höfuð þeirra, hvísl- andi að þeim sætum mjóum róm, hvíslandi að þeim ljóði næturinnar, hvíslandi að þeim óþekktu titrandi ljóði í dimm- um fiðlutónum.“ Framhaldið er í svipuðum dúr og víða er stuðlað: „Eitthvað verður að gerast og það strax í nótt. Hann lítur af stýrinu og mætir þá augum hennar og honum fmnst þau undarlega þrungin heitu titr- andi Ijósflæði, það er eins og syngjandi strengjum, slegnum mjúkum fingrum, stafi frá þeim." Óg undir lokin við- urkennir parið löngun sína og þrá: „Það fór hitastraum- ur um þau er vangar þeirra mættust." Hér hefði Barbara Cartland og hugsan- lega Kristmann Guð- mundsson sett punkt- inn en Indriði er í skáldlegum móð og bætir við: „...vangi hennar var mjúkur, ht- ill meyjarvangi og sæt- ur, mjór rómur fór að hljóma inní höfði hans, eins og lítill þröstur syngi.“ Önnur saga nefnist Þegar dagurinn hverf- ur. Hún segir frá ungri stúlku sem gengur á fund elskhuga síns og biður hann að kvænast sér, en hann færist und- an: „Honum til undrun- ar hneig hún niður við hliðina á honum á legu- bekkinn, faldi andlitið í höndum sér og grét, það var ekki grátur syndugrar sálar, er finnur trú sína, og það var ekki þungur grátur þeirrar veru, er finnur synd sína, heldur var það hægur, hljóður grátur þeirrar stúlku, er leitar maka síns.“ Sagan endurspeglar hina lítt þolanlegu hug- myndafræði um varn- arleysi og ósjálfstæði konunnar, sem aldrei verður fúllkomlega sátt og örugg nema hún finni mann sem sam- Ein af meyjunum frá Hollywood þykkir að giftast henni .................. og vera akkeri í tilveru "••• hun attl heimpngu a oryggi, vegna þess að konur eru varnar- b lausastar alls þessa kyns, er getur afsér afkvæmi..." honum kærust af öllum, þá andi þögn, en aldrei var drama- hefði allt þeirra ævintýri líkst háum víxli, er hann hefði gefið út á nafh hennar, víxli er nú var fallinn í gjalddaga.“ Stúlkan játar manninum ást sína og eftir játninguna kemur þessi skondna setning: „Er nokkuð dásamlegra en heyra stúlku segja þetta, ég vil aldrei, aldrei missa þig, heyra þennan eið, sagðan með tárvot- um augum í kjökrandi þögn, í hljóðum gráti?“ Víða gætti dramatísks þunga í lýsingum skáldsins, líkt og þegar hann nefndi hina kjökr- hennar: „...hún átti heimtingu á ör- yggi, vegna þess að konur eru varnarlausastar alls þessa kyns, er getur af sér afkvæmi, og þær eiga heimtingu á að maðurinn drekki ekki brennivín, að mað- urinn hafi alltaf vinnu og að maðurinn eigi börn með þeim svo tilgangurinn sé einhver og þess vegna hljóma þessi úrslita- orð, við verðum að giftast, eins og útboð líkamans gegn vissum skilyrðum fjárhagsöryggis.“ En karlmaður þessarar sögu velur ffelsið: „... það sló hann að ef hann játaðist þessari stúlku, er var tíkin meiri en hér: „Það var sem hann sæi blóð- ugt hjarta hennar titra sundur- kramið á dökkbæsta borðinu við hliðina á hvíta pappírs- hnífnum með gyllta Lucky Strike nafninu á handfanginu.“ En svo gat einnig brugðið fyr- ir ákveðnu kæruleysi líkt og í þessari óvenjulegu líkingu: „... svei elskunni, hún er eins og saltkjöt á fati, sem fleygt er fýrir hunda.“ Þriðja verk Indriða í kverinu er sagan Úr dagbók leigubíl- stjóra: í nótt er lífið — á morg- Kolbrún Bergþórsdóttir un...? Þar er sagt frá leigubflstjóra og farþegum hans; drykkfelld- um áflogasegg og ástkonu hans sem á ferðalagi elska, deila og drekka. Þetta er lengsta sagan og kannski geymir hún skásta skáldskapinn af þeim öllum. Þó finnst þar margt kyndugt, eins og þessi líking: „Dóttir hennar var eins og bolti, sem haldið hefir verið föstum í greip, merktri holdsins hreinleika og öðrum fáguðum dyggðum, en svo í sætum grun um að eitthvað dásamlegt lægi utan þessarar holu greipar, hafði boltinn spennt sig lausan og oltið stefnulaus um í þeim hinum sæta grun, er hvergi var höndlaður ffekar en regnþrung- ið ský á heiðum himni.“ Stuttu eftir að sögur þessar birtust á prenti hlaut höfimdur þeirra, Indriði G. Þorsteinsson, verðlaun fyrir smásögu sína Blástör. Hana má finna í nýút- komnu ritsafni hans, en þar er engin þeirra smásagna sem get- ið er hér að ffaman. INDRIÐIG. ÞORSTEINSSON Bragi Kristjónsson forn- bókasali kynnti sögurnar í kverinu I Birkilaut sem fyrstu smásögur Indriða G. við litla hrifningu skáldsins. „... hljóður grátur þeirrar stulku, er leitar maka síns“

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.