Pressan - 29.04.1993, Side 26

Pressan - 29.04.1993, Side 26
UR POPPHEIMUM 26 PRESSAN Fimmtudagurinn 29. apríl 1993 BÍQIN HÁSKÓLAB ÍÓ Jennifer er næst Jennifer Eight kk Það má hafa gam- an af smartri kvikmyndatöku, trixum til að gabba áhorfend- ur og Hitchcock-andrúminu í myndinni. Gallinn er hins vegar sá að sagan er nánast út í hött. Flodder í Ameríku Flodderin Amerika ★ Hollenskur imbak- assi í bíó. Vinir Péturs Peter's Friends k Kenneth Branagh býður upp á allan matseðilinn; alkóhól- isma, ungbarnadauða, gjálífi, hjónaerjur, brostna drauma ásamt óheyrilegu magni af þeim söknuði eftir æskunni sem slær fólk fimm árum eftir að það lýkur námi. Þegar einn vinurinn upplýsir að hann sé með HlV-veiruna hverfur skáldskapurinn end- anlega úr sögunni og útvatn- að vandamálakjaftæðið verð- ureitteftir. Kraftaverkamaðurinn Leap of Faith ★★ Steve Martin er fyndinn. Hann skyggir á alla aðra leikara og tekst meira að segja að draga athygli áhorf- enda frá væminni og frekar bjánalegri sögu myndarinn- LAUGARASBIO Howards End ★★★ Bók- menntaverk gert að góðri bíómynd. Elskhuginn The Lover kkk Hugljúf saga um ást og losta. Karlakórinn Hekla ★ Vond mynd og metnaðarlítil. Flissi læknir Dr. Giggies © Laugarásbíó er musteri vondra mynda. Samkvæmt fréttum stendur það til bóta. En Flissi læknir skánar ekkert við það. Honum er ekki við ijargandi. Hörkutól Fixing the Shadow k Svala veröld Cool World ★★ Nemo litli ★★★ Falleg teiknimynd. REGNBOGINN Siðleysi Damage kkk Mynd um þingmann sem ríð- ur sig út af þingi. Jeremy Ir- ons leikur af feiknakrafti. Það er Ijóst að þingmaðurinn hans heldur ekki við tengda- dótturina vegna þess að hann langar heldur vegna * "þess að hann getur ekki ann- að. Hann rústar lífi sínu um leið og hann frelsar sig. Kyn- lífssenurnar eru helst til lang- ar — að minnsta kosti fyrir þá sem hafa misst eitthvað úr endalausri runu ríðinga- mynda að undanförnu. Hinir hafa byggt upp þol. Ferðin til Las Vegas Hon- eymoon in Vegas ★★ Það má vel hlæja að þessari mynd; sérstaklega örvæntingu Nico- las Cage. Englasetrið ★★ Þokkaleg gamanmynd frá frændum vorum Svíum. Chaplin ★★ Myndin sem fékk menn til að spyrja sig hvort Chaplin hefði í raun verið nokkuð fyndinn. Miðjarðarhafið Mediterr- aneo ★★★ Indæl mynd. Tommi og Jenni ★★★ Krökkunum þykir hún fyndin. SAMBIOIN Hoffa Ávallt ungur Forever Young ★ ★ Flugmaður vaknar eftir að hafa legið í frosti í hálfa öld. Frumlegt? Nei. Líkast til er þetta áttunda myndin með þessum söguþræði á undanförnum fimmtán mán- uðum. Eini kosturinn við myndina er lágstemmdur leikurMelsGibson. Stuttur frakki ★★★ Stjörn- urnar þrjár segja til um stöð- una í hléi. Eftir hlé rennur ★★★★ Pottþétt ★★★ Ágætt ★★ Lala ★ Leiðinlegt . ©Ömurlegt myndin út í sandinn og tapar einni ef ekki tveimur af stjörnunum. En það er margt gott í myndinni og þá sér- staklega Frakkinn stutti. Án hans hefði myndin sjálfsagt orðið venjuleg íslensk ærsla- og aulahúmorsmynd. Konuilmur Scentofa Woman ★ ★★ Leikur Als Pacino og Chris O'Donnel er eina ástæðan til að sjá myndina því sagan í myndinni er eilítið púkaleg þroskasaga. Háttvirtur þingmaður The Distinguished Gentleman k Eddie Murphy á ágæta spretti en alltof fáa til að halda uppi þessari gleðilausu gamanmynd. Hinir vægðarlausu Unforgi- ven ★★★★ Frábær mynd um áhrif ofbeldis á ofbeldis- manninn. Ljótur leikur The Crying Game ★★★★ Kemur jafnvel útlifuðum bíófríkum á óvart og fær þau til að gleyma sér. Elskan, ég stækkaði barnið Honey, I Blew Up The Kid kk Óhæf nema öll fjölskyldan fari saman í bíó. Gamanmynd fyrir börnin. Hryllingsmynd fyrirforeldrana. Lífvörðurinn The Bodyguard ★ Mislukkuð mynd með myndarlegum leikurum. Aleinn heima 2 - Týndur í New York Home Alone 2 - Lost in New York -k-k-trk Mynd ársins fyrir aðdáendur dett'-á- rassinn-húmors. Bambi ★★★★ Þó ekki væri nema vegna sagnfræðilegra ástæðna er skylda að sjá Bamba reglulega. 3 ninjar ★ Fyrir tilvonandi vandræðaunglinga. STJÖRNUBÍÓ Hetja Accidental Hero kkk Þrátt fyrir yfirþyrmandi leið- indi persónunnar tekst Dust- in Hoffman ekki að eyði- leggja söguna með ofleik eins og honum hættir til. Galdur myndarinnar liggur í handritinu og frásagnargleði leikstjórans. Bragðarefir Mo' Money k Myndin er hröð og skemmti- leg þegar við sjáum heiminn með augum Damons Wayans en leysist síðan upp. Drakúla Bram Stoker's Drac- ula k Góð mynd fyrir áhuga- menn um förðun en sagan sjálf er nánast óbærilega leið- inleg. Börn náttúrunnar ★★★ Sæt mynd um gamalt fólk. $ T U 0 í S U M A*R Amina, NigelKenne- dy, Rage against the Machine, rokk og reifl Það er allt útlit fyrir að mörg tækifæri gefist í sumar til að komast í gott stuð. Út um allan bæ eru menn að leggja á ráðin og undirbúa gleði sumarsins. Fyrst má nefna að túnísk/- franski söng- og júrófuglinn Amina kemur í annað sinn til landsins og spilar á Hótel ís- landi 20. og 21. maí. Amina hef- ur lítið sinnt tónleikahaldi í langan tíma og tónleikarnir hér verða þeir fyrstu sem hún held- ur í tengslum við nýja plötu, „Wa di yé“, sem kom út fyrir síðustu jól og hefur fengið góða dóma. A þeirri plötu lék meðal annars fiðlusnillingurinn Nigel Kennedy. Amina hefur verið upptekin við að leika í kvik- myndinni La nuit sacrée eftir leikstjórann Nicolas Klotz, sem nýlega var frumsýnd. Þetta er fyrsta myndin sem Amina leikur aðalhlutverkið í, en hún hefur til þessa leikið minni hlut- verk í ýmsum myndum. Með Aminu kemur tíu manna hljómsveit — þó ekki Nigel — og verða aðdáendur hans að bíða til 30. júní þegar hann kemur í Hafnarfjörðinn og spil- ar í Kaplakrika. Nigel kemur með fiðluna sína og hljómsveit og spilar Beethoven, Jimi Hendrix og djass. AMINA Kemur aftur ísumar að bræða upp hjörtun sem eru farin að RAGE AGAINST THE MACHINE Heimsreisan hefst íKaplakrika. Það stendur meira til hjá Göflurum og nú er orðið nokk- uð líklegt að bandaríska rapp- rokksveitin Rage against the machine spili í Kaplakrika 12. júní. Sú sveit er á stöðugri upp- leið í heimalandinu og fer í sumar í tónleikaferð til Evrópu. Ef af verður mun ísland verða fyrsti áfangastaðurinn í þeirri ferð. Búast má við hörkutón- leikum; sveitin er að sögn frá- bær tónleikasveit og fyrsta plata þeirra hefur runnið út úr íslenskum plötubúð- um — selst í um 3.000 eintökum — og er ís- land fyrsta landið í heiminum þar sem platan fer á topp vin- sældalistans. Vegna góðs gengis Óháðu listahátíðarinn- ar í fyrrasumar verður leikurinn endurtekinn í og má búast við góðu stuði, til dæmis verður haldin þriggja daga gleðisyrpa Faxaskála, gegnt Kola- portinu, 10.-12. júní. Syrpan verður til að kynna næsta tölu- blað tískuritsins Núllsins og tvöfalda safngeisladiskapakk- ann Núll og nix — ýkt fjör, sem kemur út um svipað leyti. Fyrsta kvöldið fer í að kynna rokkböndin á núllpakkanum, sem koma velflest ffarn, og ann- að kvöldið fer í að kynna dans- böndin. Slegið verður upp helj- armiklu reifi og munu erlendar hljómsveitir og diskótekarar jafhvel halda uppi stuði með ís- lenskum dansfíklum. Á þriðja Núllkvöldinu slær svo enska tískudrottningin Vivienne Westwood upp tískusýningar- balli. Vivienne skaut upp á tískuhimininn í kjölfar pönks- ins á Englandi, — hannaði t.d. larfana og nælurnar í nefið á Sex Pistols og hefur átt góðu gengi að fagna síðan. Búast má við miklum fjölda erlendra gesta og blaðamanna á þessa Núllsyrpu, t.d. verður breska tískublaðið I-D með sérstaka umfjöllun, enda gert ráð fyrir að gott stuð endist alla helgina. SH Draumur — eins og hann var á gullaldarárum sínum. Dfaugapgur á Tunglinu SH draumurkemur fram í fyrsta og eina skiptið ífimmár Rokksveitin SH draumur ætlar að ganga aftur annað kvöld, föstudagskvöldið 30. apríl, og halda eina tónleika í Tunglinu. Sveitin varð til 1982 í lok kraftmikillar rokkbylgju og starfaði til ársins 1988, þegár hljómsveitin Bless varð til úr rústunum. SH draumur gaf út eina breiðskífu, plötuna Goð, sem af gagnrýnendum er jafhan talin ein af betri plötum síðasta áratugar. Einnig komu út þrjár minni plötur og nú er allt þetta efni komið út á geislaplötu und- ir nafninu Allt heila klabbið. Samtals er platan rúmlega 75 mínútur; 25 lög, þar af þrjú óút- gefin. Hljómsveitin SH draumur var skipuð þeim Gunnari Hjálmarssyni, plötugagnrýn- anda PRESSUNNAR, sem spil- aði á bassa og söng, og Stein- grími Birgissyni gítarleikara, sem nú stundar klassíska gítar- kennslu. Þrír trommarar settust við settið: Birgir Baldursson sat þeirra lengst, en hann gekk síð- ar í Sálina og er nú í Silfurtón- um. Aðrir trommarar voru þeir Haukur Valdimarsson gull- smiður og Ágúst Jakobsson, sá sami og eltir nú Guns ’N’ Ros- es og gerir af þeim heimilda- mynd. Það verður langlífasta útgáfa SH draums sem kemur ffam annað kvöld. Sveitin hefur verið að æfa síðustu vikurnar og hafa meðlimir að eigin sögn „engu gleyrnt". Silfurtónar og Yucatan, sigurvegarar Músíktilrauna, koma einnig fram á Tunglinu annað kvöld, svo búast má við heilmikilli rokkveislu. Til að gera allt endanlega brjálað verð- ur Kiddi kanína í diskóbúrinu og heldur uppi gífurlegu Hljómalindarstuði, svo réttast er að mæta snemma, en opið verður frá kl. 23-3. P0PP Sutnar í sjoppu ÝMSIR FLYTJENDUR GRIMM DÚNDUR STEINAR ★ Aukinn metnaður hefur færst í íslenska safnplötuútgáfu síð- ustu árin. Plöturnar hafa orðið fjölbreyttari, öll lögin með ís- lenskum poppurum, og græð- lingum jafnvel gefinn séns. Því miður virðist safnplötufram- leiðsla „stóm“ útgáfanna nú aft- ur á leiðinni í sjoppufarveginn sem hún var í fyrir nokkmm ár- um. Grimm dúndur er gott dæmi um þunnan sjoppustíl. Hér er boðið upp á ný íslensk stuð: og sumarlög í bland við er- lend stuð- og sumarlög; umbúðir eru hallæriáegar, lögin flest ómerkileg og maður sér þessar útgáfur fyrir sér safnandi ryki í sjoppum og bensínstöðvum við hliðina á Sönnum sögum, Brandarablaðinu og Bósa, enda álíka merkileg framleiðsla. Islenskar stuðgrúppur hafa trix sem er svona: Koma út góðu stuðlagi á safnplötu, gera það vinsælt á útvarpsstöðvunum og nota svo velgengni lagsins til að þræða ballmarkaðinn um sum- arið. Einfalt bragð sem oft geng- ur upp og gæti jafnvel gert það núna hjá þeim tveimur íslensku böndum sem koma sterkast út á Grimmum dúndrum; Pláhnet- unni og Jet Black Joe. Það verður ekki af Stebba Hilmars skafið að hann er sann- færandi poppstjarna og skemmtilegur söngvari, og hér sýnir hann á sér nýja hlið með því að semja fínt popplag með Friðriki bassaleikara sem fylgir honum úr Sálinni. Það er þó ekk- ert nýtt hér á ferð — lagið gæti þess vegna hafa verið með Sál- inni — en „Span“ smýgur vel og útsetning og upptaka er fersk. Miðað við þetta tóndæmi verður gaman að fá Pláhnetuplötuna í hendur í sumar. Jet Black Joe hafa haldið dampi í þeim þremur lögum sem þeir hafá sent frá sér í vor. Fyrst voru það tvö ágæt lög í Stuttum Fraklca, en hér er besta lagið þeirra til þessa í ár, hið fi'na „Down on my knees“. Drengim- ir kunna að berja saman skemmtilegar poppmelódíur, Páll Rósinkranz er rokkstjarna af guðs náð og þeir bregðast- ekki í heimskulegu ensku textunum. Það hlýtur að teljast meiriháttar afrek að geta troðið „fokk jú“ í þrjú lög í röð. Ég er ekki sam- mála þeim sem segja að Jet Black Joe séu lélegt ljósrit af tónlist hippaáranna, frekar mætti segja að þeir væm finasta liteftirprent- un úr nýjustu prentgræjunum! En ef Jet Black fara ekki að þróast eitthvað er ég ansi hræddur um að þeir missi af rútunni. Ánnað íslenskt efni er slappt eða veldur vonbrigðum, éins og Todmobile-lögin. Annað, „Ég vil brenna", er þunn endurtekn- ing á fyrri afrekum og „The Lett- er“ er ónauðsynleg ensk útgáfa af hinu ágæta popplagi „Uppi á þaki“. Stjóminni er ekki fisjað saman í froðukenndum júróleið- indum og Verslingar, með söngvarann Björgvin Skúla Sigurðsson í broddi fylkingar, fara illa með hið frábæra Who- lag „Pinball Wizard“. Það er eins og þeir skilji ekki alveg fílinginn í laginu. Það er vonandi að piltarnir í Pelican hafi eitthvað annað að bjóða á væntanlegri plötu en lap- þunna slagara eins og „f víga- hug“. Það hljómar eins og ann- ars flokks GCD og textinn er eins og þriðja flokks Stefán Hilmars- son. Guðmundur Jónsson á nokkur frábær popplög að baki en þetta hér hljómar eins og eitt- hvað sem komst ekki á Sálar- plötu, eitthvað sem hefur legið lengi ónotað í lagapokanum. Hann ætti líka að þekkja sín tak- mörk og fá einhvem til að semja fyrir sig texta. Mætti ég þá frekar biðja um Valla og víkingana! Érlendu lögin eru léttvægar klisjur sem fólk ætti að geta feng- ið sig fullsatt á í útvarpinu. Það em ekki nema Spin Doctors og The 4 of us sem kíkja aðeins með hausinn upp úr mykjupotti meðalmennskunnar. Lokalag plötunnar er svo vel við hæfi: Smástimið Sonia Davis syngur lagið „Bette Davis eyes“ sem Kim Cames mmdi um árið og glumdi úr útvarpinu heilt sumar og gerði mann frávita af leiðindum.

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.