Pressan - 04.11.1993, Blaðsíða 6

Pressan - 04.11.1993, Blaðsíða 6
M E N N Fimmtudagurinn 4. nóvember 1993 6 PRESSAN Menn A bWSR Guðmundur Árni Stefánsson Sjáy hann er upprisinn LeiHn að Leiifinni Reyndi að fela sig ofan í kassa hjá RLR en fannst að lokum Réttarkerfið snerist í marga hringi áður en styttan af meintum banamanni Geirfinns fannst. Hún líkist engum núlifandi íslendingi, hvorki þá né nú. Mér stóð ekki á sama um hann Guðmund Árna á tíma- bili. Hann kom svo svip- hreinn og sakleysislegur inn í heilbrigðisráðuneytið í sumar og hét því að gera ekkert af því sem hann hafði eytt tveimur árum í að skamma Sighvat fyrir að gera. Það leist mér vel á. Þarna var kominn maður sem myndi passa mig fyrir föntunum í ríkisstjórninni. En svo gerðist það. Það þyrmdi yfir gamla bæjarstjór- ann minn, pokarnir fóru að myndast undir augunum og yfir hann rann þessi harði svipur sem sést helst á mönn- um í sláturhúsunum á miðri haustvertíð. Hann var sem sagt að fara að skera. Og hvort hann skar. Börnin á leikskólunum áttu að fara á vergang og hitta þar fyrir alkóhólistana frá Gunnars- holti. Og til að borga fyrir þetta allt áttum við hin að borga sjúkrahússkatt, sama hvort við yrðum veik eða ekki. Ég hafði á tilfinningunni að Guðmundur Árni væri rétt að byrja og ég skrökva því ekki, að ég var gráti næst af sorg. Þetta var nefnilega ekki sá Guðmundur sem ég þekkti. Hann var ljúfur við börn og konur, fjölskylduna og flokks- systkin sín. Sá Guðmundur sem ég þekkti gat ekki hugsað tvær hugsanir í röð án þess að rugla þeim saman. Hann hafði heldur ekki sömu skoð- un nema einn dag í einu, í mesta lagi viku, ef ekkert ann- að varð til að trufla hann í millitíðinni. f stuttu máli: ind- æll og engum til ama í skoð- unum eða fasi. Um daginn gat ég tekið gleði mína aftur. Ég hafði ekki undan að fylgjast með hvernig hann skipti um skoðun í hverju prinsippmálinu á fæt- ur öðrum, allt af einskærri umhyggju fyrir undirmáls- fólki og börnum. Hann er búinn að skipta um skoðun með heilsukortin. Hann er búinn að skipta um skoðun með leikskólana. „Hann er búinn að skipta um skoðun með heilsukortin. Hann er búinn að skipta um skoðun með leikskólana. Hann er búinn að skipta um skoðun með Gunnarsholt. Það vantar bara eitt upp á núna til að myndin séfull- komin: að hann skipti um skoðun og heimti biðlaun- in sín aftur. Þar vœri minn maður lifandi kominn. “ Hann er búinn að skipta um skoðun með Gunnarsholt. Það vantar bara eitt upp á núna til að myndin sé full- komin: að hann skipti um skoðun og heimti biðlaunin sín aftur. Þar væri minn mað- ur fifandi kominn. Ég þykist vita hvað þið eruð að hugsa núna: er hugsanlegt að hann skipti enn einu sinni um skoðun og reki Kalla Steinar úr Tryggingastofhun? Nei, það eru takmörk fyrir því hvað hann Guðmundur getur verið vondur við minni mátt- ar. Ég þekki minn mann. AS Hann var á sínum tíma bjartasta vonin í rannsókn lögreglunnar á hvarfi Geir- finns Einarssonar í Keflavík 1974. Hann var mótaður úr leir samkvæmt nákvæmum lýsingum af hugsanlegrrm. banamanni Geirfinns og þeg- ar fjölmiðlar birtu mynd af honum varð skiptiborð lög- reglunnar fljótt rauðglóandi þegar ábendingar þeirra sem töldu sig þekkja kauða streymdu inn. Þær skiptu hundruðum, en leirburður lögreglunnar var til lítils því enginn var handtekinn í kjöl- far myndbirtingarinnar. Fljót- lega gáfust rannsóknarlög- reglumenn upp á honum og fóru að sækja á gjöfulli mið í Keflavíkurhöfn þar sem kafar- ar leituðu Geirfinns sam- kvæmt ábendingum hins „heimsþekkta hollenska sjá- anda“ Gerards Croiset, sem sérhæfði sig í að finna lík með hugarorkunni einni saman. Sjálfsagt fundu kafararnir fyrir andlegum straumum sjáand- ans en engan Geirfmn fundu þeir. Og nú, tæplega tveimur áratugum síðar, er ekki aðeins Geirfinnur ófundinn heldur er löggan búin að týna Leir- finni líka. Það hélt PRESSAN að minnsta kosti í fýrstu þegar ákveðið var að svipast um eftir styttunni. „Nei, við vitum ekkert hvað varð um hann,“ sagði Helgi Daníelsson hjá RLR þegar blaðamaður innti hann eftir afdrifum Leirfinns. „Þeir sem voru með þetta mál hjá okkur halda að hann hafi líklega far- ið niður í Sakadóm. Meira veit ég ekki.“ Og þá niður í Sakadóm Reykjavíkur, þar sem grunur lék á að Leirfinnur héldi til. Starfsmenn hváðu í kór og vísuðu á Friðgeir Björnsson dómstjóra. „Hann var nú hérna á sín- um tíma, en þegar Sakadóm- ur flutti voru öll gögn málsins flutt í nýtt húsnæði," sagði Friðgeir. „Ég veit ekki hvar hann er núna. Prófaðu að tala við Gunnlaug Briem, fýrrum yfirsakadómara. Hann er sá eini sem mér dettur í hug að gæti hjálpað þér.“ Auðvitað! Dómarinn einn getur skorið úr um sekt eða sakleysi Leirfinns í þessu dul- arfulla hvarfi. „Já, þetta var nú eitt af merkilegri sakargögn- um sögunnar,“ sagði Gunn- laugur Briem þegar blaða- maður spurði hann um mikil- vægi sakborningsins. „En ég veit ekki, prófaðu að tala við Sævar Jóhannesson, sem hef- ur umsjón með Sakminjasafhi lögreglunnar. Hann veit kannski eitthvað.“ Nú fór að færast hiti í leik- inn. Eftir símhringingu á skrifstofu lögreglustjóraemb- ættisins kom í ljós að Sak- minjasafh lögreglunnar var til húsa hjá, jú auðvitað, RLR. Og það kom fljótlega í ljós að Sævar átti stóran þátt í hvarfi Ixirfinns. „Hvernig datt þér í hug að hringja í mig?“ spurði Sævar Jóhannesson, fullur grun- semda, þegar náðist til hans. Jú, við höfðum heyrt að þú vissir eitthvað um afdrif Leir- finns. „Hann er náttúrlega hérna hjá okkur." En við töluðum við Helga Daníelsson og hann svipaðist um eftir Leirfinni og... „Já, nei Helgi hefur náttúr- lega ekld vitað hvar hann var og það vita fáir, því ég tók við Leirfinni frá Sakadómi fyrir um tveimur árum þegar þeir fluttu. En hann er ekld til sýn- is fyrir hvern sem er. Þetta safn er eldd opið almenningi, en þeir sem eru málsaðilar geta náttúrlega fengið aðgang að þessu.“ Mundirðu segja að Leirfitm- ur væri eitt af tnerkilegri sakar- gögnum landsins? „Það get ég ekkert tjáð mig um, því ég tengdist ekkert þessu máli á sínum tíma. Fylgdist bara með fyrirsögn- um dagblaðanna og varla það.“ Ett hvernig líður Leirfintii eftir öll þessi ár? „Hann er í góðu ásigkomu- lagi, er ofan í merktum kassa uppi í hillu.“ Éinhvers staðar verða vond- ir að vera og það á við um misheppnuð sakargögn líka. En það vakna óneitanlega áleitnar spurningar um þetta mál. Hver er Leirfinnur og hvernig tengdist hann Geir- finni? Ekki líktist Leirfinnur neinum þeirra sem sakfelldir voru fyrir morðið á sínum tíma og því spyrjum við enn og aftur: Hver er maðurinn og er honum sama þótt líkneski hans sæti svona meðferð? Veit löggan hvað hún er með í höndunum? Þorsteinn Högni Gunnarsson ALIT Ólafur Ragnar Grímsson Benjamín HJ. Eiríksson Péiur Blöndal Regína Thorarensen Þorvaldur Gylfason Ríkisstjórnin hefur ákveðið ai vextir á verdtryggöum ríkis- skuldabréfum lækki úr 7% í 5%. Um leið var lýst yfir aö lánsfé yröi sótt á erlendan markaö ef þörf kreföi. Eru vaxtaaðgerðirnar dulbúin erlend Idntaka? Óiafur Ragnar Grímsson alþingismaður. „Það er alveg ljóst að þetta er ávísun á erlendar lántökur. Ef ríkissjóður selur ekki bréfin hér innanlands á 5% vöxtum eru ráðherrarnir tilbúnir að stórauka erlend lán til að fjár- magna halla ríkissjóðs og jafn- vel húsnæðislánin. Það að reka skóla, sjúkrahús og hús- byggingar fýrir erlend lán hef- ur Davíð Oddsson kallað Fær- eyjaleiðina." Benjamín H J. Eiríksson hagffæðingun „Mér finnst verkalýðsforingjar ekki vera sérffæðingar, hvorki í vaxtamálum né öðrum pen- ingamálum þjóðarinnar. Með yfirlýsingum sínum í svona málum gera þeir sjálfa sig að hálfgerðum fíflum.“ Pétur H. Blöndal stærðfræðingur „Þær geta vissulega farið út í að aula erlendar skuldir og ég held að menn séu meðvitaðir um það. Hins vegar tel ég að þessar aðgerðir séu jákvæðar og komi á réttum tíma. Er- lendar skuldir hafa lældcað að raungildi þar sem vöruskipta- jöfnuðurinn hefur verið hag- stæður: íslendingar flytja meira út en inn og hafa þaraf- leiðandi náð að greiða eitt- hvað niður af raungildi er- lendra lána. Vextir munu lík- lega lækka og lækkandi vextir þýða að fýrirtækin hætta að tapa og geta þarafleiðandi haf- ið auknar ffamkvæmdir. Þetta hefur jákvæð áhrif á fasteigna- markaðinn, mun örva sölu sem væntanlega leiðir til auk- inna byggingarffamkvæmda. Þannig hafa þessar aðgerðir keðjuverkandi örvandi áhrif á atvinnulífið. Síðan verða menn að meta hvort aukin at- vinna vegur ekki á móti ein- hverri aukningu erlendra skulda til skamms tíma.“ Regína Thorarensen fréttaritari: „Alveg hiklaust, því er verr og miður. Þetta er allt plat og fýr- irsláttur. Davíð Oddsson finnst mér allt of yfirborðs- kenndur og sjálfsánægður til að verða forsætisráðherra strax. Ég sé það alltaf betur og betur að hann vantar alla for- ystusauðshæfileika. Ég vona að íslenska þjóðin skilji hvað ég á við. Davíð var eins og götustrákur á Alþingi í upp- hafi, gjammandi ffam í og al- veg hörmung að sjá til hans. En hans mikilhæfa kona hefur lagað hann til og nú kemur hann þokkalega fyrir. Davíð á gott og stórt hjarta en verka- lýðurinn og þeir lægst laun- uðu fá ekki að njóta þess. Leiðinlegast er þó með negul- naglann úr Hafiiarfirði, hvað buxumar hafa farið niður um hann. Það harma ég einnig.“ Þorvaldur Gylfason prófesson „Mér sýnist ríkisstjómin hafa valið ranga leið að réttu marki. Vextir þurfa að lækka, það er rétt. En það er ekki hyggilegt að knýja þá niður með auknum erlendum lán- tökum, eins og ríkisstjórnin virðist stefna að. Erlendar skuldir þjóðarinnar em þegar orðnar of miklar. Auknar er- lendar lántökur geta kynt undir þenslu og verðbólgu þegar frá líður. Ríkisstjórnin hefði heldur átt að beita sér fýrir nauðsynlegum skipulags- breytingum í landbúnaði, sjávarútvegi og bankarekstri. Hagræðing í landbúnaði, þar á meðal innflutningsfrelsi, myndi lækka matarverð og verðlag um leið og lækka vexti með því móti að draga úr lánsfjárþörf ríkisins að öðru jöfhu og lækka vexti á þann hátt Hagræðing í bankakerf- inu, þar á meðal einkavæðing, myndi einnig stuðla að vaxta- lækkun smám saman.“

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.