Pressan - 04.11.1993, Blaðsíða 25

Pressan - 04.11.1993, Blaðsíða 25
Fimmtudagurinn 4. nóvember 1993 F R É TT I R PRESSAN 25 KJARTAN GUNNARSSON. Sjentilmaður með áhuga á góðum fötum, haukur í hermálum, lyklavörður valdaklíku Davíðs Oddssonar. Júlíus Hafstein borgarfulltrúi: Tengsl flokksskrifstof- unnar og borgarfulltrúa aldrei minni „Ég lenti á móti Kjartani í slag um formannsembætti Heimdallar 1977 og tapaði. Þetta var heilmikill slagur. Þeir Davíð Oddsson og Vil- hjálmur Þ. Vilhjálmsson, sem í dag eru nánustu sam- starfsmenn mínir, studdu Kjartan. Ég afþakkaði að fara í stjórn það árið, en næsta ár kom ég inn í stjórnina. Það var ágætt að vinna með Kjartani. í dag lítur maður á þessa atburði með bros á vör. Ég tel að áhrif Kjartans innan flokksins séu mikil og þau eru mikil gagnvart Davíð Oddssyni. Kjartan er sjálfsagt einn af nánustu pólitisku ráðgjöfum hans í dag, ásamt Birni Bjamasyni. Af þessum ástæðum er starf framkvæmdastjóra flokks- ins valdameira nú en áður. í tímans rás hefur Kjartan gleymt flokksstarfinu og tengsl hans við almenna fé- laga og kjörna fulltrúa hafa minnkað. Það hefur aldrei verið minna samstarf milli flokksskrifstofunnar og borgarstjórnarfulltrúa en nú. Það eru breyttar vinnu- reglur í Valhöll, áður vom borgarfúlltrúar þar í reglu- legum viðtalstímum, en það hefur legið niðri síðast- liðin tvö ár. Þetta er hlutur sem þarf að endurskoða. Kjartan hefur unnið farsæl- lega fyrir flokkinn á fjár- málasviðinu, en það ríkir ákveðin lægð í þessum sam- skiptum. Þetta endurspegl- aðist til dæmis á landsfund- inum, en þar fór lítið fyrir honum miðað við oftast áður. Ég þekki Kjartan ekki mikið persónulega, en hann er ágætur húmoristi og þrælskemmtilegur.“ Anna Olafsdóttir Biörnsson alþingismaður og bekkjarfélagi úr MR: Hlýr, elskulegur og ýtinn „Ég hafði mjög ákveðnar skoðanir um hann áður en ég kynntist honum. Hélt hann húmorslausan og stífan, sem reyndist ekki rétt. Hann er mjög hlýr og elskulegur og fór iðulega út í sjoppu fyrir hálfan bekkinn í fyrstu frí- mínútum og keypti kók og skammt. Hann er sami hægrimaðurinn í dag og þá, en ég hef aldrei getað glöggv- að mig nákvæmlega á því á hvaða línu hann er innan flokksins. Ég held að hann sé reyndar ekki ósáttur við að menn hafi hann ekki alveg á hreinu að því leytinu. En í menntaskóla var hann harður hægrimaður miðað við Dav- íð. Menn bera honum yfirleitt vel söguna, en hann getur ef- laust verið harður í horn að taka. Hann var mjög í meðal- lagi í skóla, enda var hann að vasast í mörgu. Hann var tvisvar í þriðja bekk þarafleið- andi. Var mikið með Geir Haarde og félögum. Kjartan dregur mjög skörp skil milli opinberrar fi'gúru og prívat. Ég væri ekkert hissa þótt hann væri nokkurs konar „Don“ í flokknum, hann virðist alltaf vera alls staðar. Kjartan vill gjarna ráða án þess að standa í eldlínunni, er ansi ýtinn og vill stjórna. Hann beitti sér alltaf gagnvart þeim sem hann hélt að hann gæti haft áhrif á, en lét hina í friði. Ég veit að hann er áhuga- maður um vönduð föt og hefur áhuga á menningar- málum í víðum skilningi. Hann tók það til dæmis mjög alvarlega þegar Pallas Aþenu- stytmnni var stolið. Þegar við vorum tíu ára stúdentar var haldið upp á það. Við fórunr út að borða eftir partí og á undan balli. Fyrir rnatinn brá Kjartan sér frá og kom með rauða rós handa öllum bekkjarsystrun- um. Ég held að fair — hvorki karlmennirnir né kvenfólkið — hefðu haft hugsun á slíku, en þetta er mjög líkt Kjart- _ • u am. Islandsbanka, og Sigurður Gísli Pálmason, Hagkaup. Hittist hópurinn nokkrum sinnum á ári og skiptir með sér verkum. „Við Kjartan höf- um unnið mjög náið saman í langan tíma. Hann er til mik- illar fyrirmyndar og stórfeng- legt að starfa með honum,“ sagði Ingimundur í samtali við PRESSUNA. Útsendari Davíös í bankaráöi I ársbyrjun 1992 setti for- ysta Sjálfstæðisflokksins Kjart- an Gunnarsson í bankaráð Landsbankans. Var hann kjörinn varaformaður, en sökum veikinda Eyjólfs Sig- urjónssonar formanns hefur Kjartan setið sem formaður. Sigurður Gísli Pálmason, for- stjóri Hagkaups og félagi í fjármálaráði Sjálfstæðisflokks- ins, sagði í samtali við PRESS- UNA að stefna bankaráðsins hefði gjörbreyst eftir að Kjart- an tók við formennsku og „orðið heilbrigðari". Ekki sé peningum lengur dælt í dauðadæmd fyrirtæki, til þess eins að gera óhjákvæmileg gjaldþrot stærri. Bendir Sig- urður Gísli á að óhugsandi hefði verið fyrir tveimur árum að fyrirtæki eins og Einar Guðfinnsson á Bolungarvík eða SlS hefði verið látið rúlla. Má halda því ffarn að í banka- ráði Landsbankans sé Kjartan virkur í að útfæra pólitíska stefnu Davíðs Oddssonar. Sjálfur segist Kjartan vera „mjög eindregið" andvígur því að ríkið reki banka og tel- ur slík pólitísk afskipti ríkis af atvinnulífinu óheilbrigð. Gömul kynni gleymast ei Kjartan hefur alla tíð forð- ast fjölmiðla og þvi lítið verið þekktur meðal almennings. Áhrif hans innan Sjálfstæðis- flokksins eru í dag mjög mikil og þar með eru áhrif hans í stjórnmálunum á landsvísu umtalsverð. Af þessu hefur hann hjá sumum hlotið nafn- giftina „kafbáturinn mikli“ í íslenskri pólitík. Áhrifa- og vinatengsl eru honum mikil- vægt stjórntæki, enda kunn- ingjarnir flestir miklir áhrifa- menn sem styðja hver annan með ráðum og dáð. Eimreið- arhópurinn svokallaði nær nokkuð vel utan um þetta net, en hann hittist reglulega. í honum sitja, auk Kjartans, Davíð Oddsson forsætisráð- herra, Hrafn Gunnlaugsson, framkvæmdastjóri Sjón- varps, Magnús Gunnarsson, formaður Vinnuveitendasam- bandsins, Brynjólfur Bjama- son, Granda, Gunnlaugur Claessen ríkislögmaður, Geir Haarde, formaður þing- flolcks Sjálfstæðisflokksins, Þorsteinn Pálsson sjávarút- vegsráðherra, Hannes Hólm- steinn Gissurarson dósent, Jón Steinar Gunnlaugssos^ r hrl., Vilhjálmur Þ. Vilhjálms- son borgarfulltrúi og Þráinn Eggertsson hagfræðiprófess- or. Við þennan vinahóp má svo bæta nöfnum þeirra Ingi- mundar í Heklu og Björns Bjarnasonar. Þó svo að fálk- inn hafi ekki enn verið nældur í brjóst Kjartans eins og í brjóst Sigríðar, konu hans, er óhætt að segja að hann sé aldrei langt undan þar sem Kjartan fer. Húseignir upp á 200 milljánir Kjartan Gunnarsson er stóreigna- maður. Hann erfði húseignir eftir föður sinn sem lést 1991. Faðir hans stofnaði fýrirtækið Baug sf. árið 1958 til að halda Fasteignin utan um fasteignir og byggingarfram- kvæmdir. Hrein eign þess fyrirtækis var í árslok 1991 um 55 milljónir króna að núvirði. Kjartan er einn skráður fyrir Brunabótamat: fyrirtækinu frá í júlí 1991. Baugur sf. er skráð til heimilis á Starhaga 4, eins og Kjartan og Sigríður. Eignir í nafni Kjart- ans og Baugs eru eftirfarandi: Fasteignamat: Skipholt 25 24.215.912 kr. SJdpholt 1 99.282.085 kr. Brautarholt 2 37.131.804 kr. Ásvallagata 17 7.693.364 kr. Blómvallagata 13 3.747.880 kr. Starhagi 4 16.270.932 kr. Bústaðavegur99 Selásblettur 3A 6.285.629 kr. 2.363.000 kr. Selásblettur2A 1.574.000 kr. 194.627.606 kr. 3.937.000 kr. Samtals: 198.564.606 kr. Húsnæðið í Skipholti 1 og 25 og Brautarholti 2 hefúr verið leigt af Mynd- lista- og handíðaskóla Islands í áratugi. Hefur skólinn greitt tæpar 25 miljónir króna á ári í leigu fyrir húsnæðið. Reikn- að út frá skattframtali nemur hrein skattskyld eign þeirra hjóna Kjartans og Sigríðar um 80 milljónum króna. Laun Kjartans voru fyrir árið 1991 um 275 þúsund á mánuði, en tekjur hans hækk- uðu í 773.550 kr. árið 1992. Skýrist það væntanlega af leigutekjum þeim sem hann nú nýtur. Laun Sigríðar Snævarr, konu hans, voru fyrir árið 1992 um 222 þúsund krónur, þannig að samanlagt hafa þau hjónin rétt tæpa milljón króna í tekjur á mánuði. Þá telja óstaðfestar heimildir að Kjart- an eigi talsvert fé í verðbréfum, en vitað er að hann á f nafni Baugs sf. hlut í Al- mcnna bókafélaginu. Stjórnarformaður AB er vinur Kjartans og skoðanabróðir í pólitíkinni, Friðrik Friðriksson, eigandi PRESSUNNAR.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.