Pressan - 04.11.1993, Blaðsíða 31
(Ekki
auglýsing. Ókeypis þjónusta GULU PRESSUNNAR með þakklæti fyrir eilífa uppsprettu hugmynda.)
Kjarni málsins — eftir 80 ára leit
Anægðir viðskiptavinir og starfsmenn lýsa tilfinningum
sínum á merkum tímamótum í ævi Morgunblaðsins.
Bárður Ólafsson
„Heiðanlegur
keppinautur"
„Ég hef verið lengi í þessum
bransa og veit hvað sam-
keppnin getur verið hörð,“
sagði Bárður Ólafsson, rit-
stjóri GULU PRESSUNNAR.
„Ég hef séð ýmislegt til keppi-
nautanna sem varla þolir
dagsins ljós, en Morgunblaðið
eitt íjölmiðla hefur aldrei orð-
ið á undan okkur með frétt.
Ég held að það stafi af gamal-
grónum heiðarleika Morgun-
blaðsmanna. Illa innrætt fólk
segir að það sé af því að
Moggamenn hafi ekki nóg
hugmyndaflug, en ég spyr:
hver annar setur fréttatilkynn-
ingar upp með svo smekkleg-
um hætti?“
Sævar Þórðarson
„Mikið fypir peningana"
Gíorgíj Pavlov
„Það er ekki langt síðan
ég fór að lesa Morgunblað-
ið, en það styrkti mig aftur
í trúnni á lífið,“ sagði Gíor-
gíj Pavlov, fyrrum hers-
höfðingi í rússneska hern-
um. „Niðurrifsmenn hafa
logið því að rússnesku
þjóðinni að okkur beri að
friðmælast við kapítal-
ismann. Þar sem ég stend á
rústum sovéska heimsveld-
isins hlýnar mér um
hjartarætur að sjá að ein-
hver, þótt fjarri sé rúss-
neskri fósturjörð, hefur
enn trú á styrk okkar og
óumflýjanlega endurreisn.
Morgunblaðið er ómetan-
legur móralskur styrkur í
þeirri baráttu."
„Á þessum samdráttartímum skiptir öllu máli að draga úr
kostnaði,“ sagði Sævar Þórðarson fisksali. „Það endist mér
ekkert blað lengur en Morgunblaðið sem innpökkunar-
pappír. Það er þykkt og pappírinn rifhar ekki auðveldlega.
Eitthvað í því? Það veit ég ekki, ég hef ekki tíma til að lesa
blöðin núorðið.“
Ólafur M. Jóhannesson:
„Á þessum tímamótum
er mér efst í huga þakklæti
til ritstjóra Morgunblaðs-
ins,“ sagði Ólafur M. Jó-
hannesson sem árum sam-
an skrifaði dálk um fjöl-
miðla í blaðið. „Af stakri
manngæsku leiddu þeir
mér fyrir sjónir að ég var á
rangri hillu í lífinu og nú
hef ég byrjað nýtt og ham-
ingjusamt líf þar sem hæfi-
leikar mínir sem þjóðfé-
lagsrýnis nýtast til fulln-
ustu. Mér þykir verst að
vera ekki enn laus við laug-
ardagsdálkinn, en „góðir
hlutir gerast hægt“, eins og
við sögðum stundum á
Mogganum.“
Ástríður
Guðbrandsdóttir
„Oryggis-
nning"
„Morgunblaðið er öruggt og þægilegt og
veitir mér fullkomið frelsi,“ sagði Ástríður
Guðbrandsdóttir yngismær. „Mogginn er
stundum aðeins of þykkur, en hann er
aldrei óþægilegur. Ég veit að ég get verið
fullkomlega örugg með Morgunblaðinu."
Árni Johnsen
„Atvinnuöpyggi"
„I mínum huga stendur Morgunblað-
ið fyrir stöðugleika og örugga atvinnu,“
sagði Árni Johnsen. „Ég get til dæmis
treyst því að fá að skrifa aftur og aftur og
aftur um Grænland, Ása í Bæ eða mygl-
aðar kartöflur ef því er að skipta. Morg-
unblaðið hefur nefnilega ekki gróða-
sjónarmið í huga þegar efnisval er
ákveðið. Það leggur áherslu á vandaða
upplýsingaöflun og trausta framsetn-
ingu og þá skiptir ekki öllu máli hversu
margir lesa efnið. Fyrir slíka menn er
gott að vinna.“
Albert Einstein:
„Réð únslitum
um afstæðis-
kenninguna"
„Ég hefði ekki getað hugsað
mér betra hjálpartæki en
Morgunblaðið þegar ég var
að pæla í gegnum afstæðis-
kenninguna," sagði Albert
Einstein. „Ég sannfærðist
um afstæð tengsl tímans og
raunveruleikans þegar ég
hafði lesið Moggann í nokk-
ur ár og sá að aldrei breyttist
neitt nema dagsetningarnar
efst á blaðsíðunum.“
„Þakklæti"
„Síðasta
hálmstpáið"