Pressan - 04.11.1993, Blaðsíða 7
Fimmtudagurinn 4. nóvember 1993
F R E TT I R
PRESSAN 7
Ekkert útboð í bílaleiguviðskiptum Kópavogsbæjar
Bæjarstjórnanmaður
með milljónaviðskipti
■ *e ■ ■
fjórir mánuðir. Ljóst er að við-
skiptin nema milljónum króna
þótt nákvæmar tölur liggi ekki
íyrir.
Venjan er að leita tilboða
vegna bílaleiguviðskipta en
Kópavogsbær hefur gert „verð-
könnun“ meðal bílaleiga í Kópa-
vogi. Þar eru ekki nema þrjár
bílaleigur; ALP-bílaleigan; SH-
bílaleigan og Bílaleigan Gullfoss.
Sú síðasttalda er svo h'til að hún
hefur ekki getu til að bjóða bæn-
um þau viðskipti sem hann ósk-
ar og SH-bílaleigan hefur ákveð-
ið að taka ekki þátt í þessum
„verðkönnunum". Þar mun vera
litið svo á að á meðan ekki sé
viðhaft útboð eftir kúnstarinnar
reglum séu viðskiptin ekki á
jafnréttisgrundvelli. Með öðrum
orðum, að hætta sé á að upplýs-
ingar um verðtilboð SH berist til
bæjarstjórnar — og þar með eig-
anda ALP-bílaleigunnar — áður
en af samningum verður.
Málin æxluðust þvi þannig að
í Kópavogi bauð aðeins einn að-
ili, sem hefur haft þessi viðskipti
síðustu árin, eða frá því Arnór
tók sæti í bæjarstjórn. Áður hafði
SH-bílaleigan haft þessi viðskipti
á hendi um skeið.
„Ég persónulega hefði viljað fá
tilboð frá öðrum aðilum til að
sýna hvað ég bauð lágt,“ sagði
Arnór þegar hann var spurður
að því hvort ekki kæmi ank-
annalega út að hann byði einn.
Þá er rétt að geta þess að um-
fang verksins breyttist mjög eftir
„verðkönnunina". Vegna sér-
staks átaksverkefnis í atvinnu-
málum, sem fór fram um allt
land til að grynnka á atvinnu-
leysi, þurfti bærinn á mun fleiri
bilaleigubílum að halda en gert
var ráð fýrir í upphafi. Mat Arn-
ór það svo að umfang verksins
hefði aukist um 30 til 40 prósent
við það. Ekki þótti ástæða til að
kanna verð upp á nýtt þrátt fýrir
þessa breytingu.
Sumir hafa haldið því ffam að
hagkvæmara gæti verið fýrir bæ-
inn að kaupa bíla en að borga
sem svarar bílverði til bílaleig-
unnar. Arnór sagði það einföld-
un; bæði væri rekstrarkostnaður
ótryggur og svo hitt að sölumál
væru ákaflega óviss þannig að
bærinn gæti þurft að sitja uppi
með óselda bíla lengi.
Sigurður Már Jónsson
Nokkur umræða hefur verið í Kópavogi
upp á síðkastið vegna kostnaðar bæjarins af
bílaleigubílum, sem mörgum þykir hár.
Hefur Guðmundur Oddsson, bæjarstjórn-
arfulltrúi Alþýðuflokksins, lagt fram fýrir-
spurn í bæjarstjórn um kostnað vegna bíla-
halds bæjarins og er þar í senn spurt um eig-
in bíla bæjarins, bílaleigubíla og leigubíla.
Þá varð nokkur umræða í íþróttaráði
Kópavogs fýrir viku þegar ráðsmenn fengu
að sjá niðurstöðutölu vegna bílaleigubíla í
sumar. Á vegum íþróttaráðs voru tveir bílar
í sumar, samtals í sjö mánuði, og var reikn-
ingurinn fýrir það upp á rúmlega 1.100 þús-
und krónur. Þótti sumum ráðsmönnum
þær tölur með ólíkindum.
Það er ALP-bílaleigan sem hefur haft með
höndum öll bílaviðskipti við bæinn undan-
farin þrjú ár. ALP-bílaleigan er í eigu Am-
órs L. Pálssonar, bæjarstjómarfulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins, og hefúr hann verið sakað-
ur um hagsmunatengsl út af þessum
viðskiptum.
„Það má auðvitað gagnrýna það að menn
séu í þessu, en þar sem þetta er gert með
eðlilegum hætti þá tel ég að þetta sé ekki
ósiðlegt," sagði Arnór.
Tvennskonar verölag
Samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá
Arnóri leigði hann bænum bíla í sumar eftir
tvennskonar verðlagi: Minni bílar, skutbílar
og fólksbílar fýrir allt að átta farþegum vom
leigðir á 2.200 krónur á sólarhring og voru
kílómetragjald og virðisaukaskattur innifal-
in í því. Hitt verðið, 5.400 krónur, átti við
um stærri bíla, allt upp í fimmtán manna.
Auk þess þurfti að greiða 500 krónur fýrir
tryggingar á sólarhring og sagði Arnór að sú
upphæð hefði verið látin ná yfir allan tjóna-
kostnað.
Þetta eru að sönnu ekki háar tölur, en
Arnór telur sig hafa farið á milli 50 og 60
prósent undir listaverð og það á þeim
tíma sem að öllu jöfnu væm mest
viðskipti, með öðrum orðum á
háannatíma. Aðrir segja að
þetta breyti ekki þeirri
staðreynd að útboð
var ekki viðhaft og
verðkönnun hafi
verið „sýndar-
mennska", eins
og einn heim-
ildamaður orð-
aði það.
Aðeins ein
bílaleiga
með
Þegar mest
var voru tiu
bílar frá ALP í
einu í notkun
hjá bænum, en
leigan hefur á milli
50 og 60 bíla á sínum
snærum. Yfirleitt
munu þeir þó hafa
verið einhverju
færri en leigu-
tíminn varð
m -e s t