Pressan - 04.11.1993, Blaðsíða 32
HLUSTUM ALLAN
SÓLARHRINGINN
SÍMI 643090
I Iraín Gunnlaugsson er kát-
ur þessa dagana, enda hefur kvik-
mynd hans, „Hin
helgu vé“, fengið
ágæta dóma. Mynd-
in þykir sanna að
méÓ Hrafni bærist
hlýjar og fallegar til-
finningar. Sænska
kvikmyndastofnunin
hefur reyndar staðfest þetta, því
fyrirhugað er að myndin verði
notuð sem kennslugagn í sænsk-
um skólum næsta vetur. Eitthvað
hefur Hrafn þó verið uggandi um
‘ ' ^viðtökur, einkum hjá Rás 2. Hefð
er fyrir því að stofnuninni berist
boðsmiði ef viðburður á borð við
frumsýningu á nýrri íslenskri
kvikmynd stendur fyrir dyrum,
en svo var þó ekki í
þetta skiptið. Ólafur
H. Torfason, kvik-
myndagagnrýnandi
á Rás 2, komst þó yf-
ir miða og flutti
gagnrýni á laugar-
daginn var. Ólafur
fór fremur lofsamlegum orðum
um myndina en þau voru þó ekki
Hrafni að skapi. Hann sendi Ólafi
símbréf þar sem m.a. kom fram
að hann kærði sig ekkert um að
láta hrokagikki klappa sér á koU-
inn. Það fylgir sögunni að Ólafur
hafi áður farið óvægnum orðum
um „Hvíta víkinginn“ og það fór
illa í Hrafn. Ennfremur segir í
faxinu að ástæðan fyrir því að Ól-
afi var ekki boðið á ffumsýning-
una sé einfaldlega sú að hann
skorti bæði dómgreind, þekkingu
og skilning til að fjalla um kvik-
myndir. Hrafn ffábiður sér ffek-
ari afskipti Ólafs af myndum sín-
um. (Ólafur á að baki þriggja ára
nám í kvikmyndun í Kaup-
-^.mannahöfn. ) Hrafn vill augsýni-
lega hafa eitthvað um það að segja
hverjir gagnrýna verk hans. Nú
fer málið að flækjast, því þeir í
Dagsljósi hafa verið á höttunum
eftir einhverjum til að gagnrýna
„Hin helgu vé“ en ekki haft erindi
sem erfiði. Þeir höfðu m.a. sam-
band við Ólaf, sem færðist undan,
sagði þeim frá faxinu og benti
þeim að auki á að hann tengdist
Hrafni á þann hátt að fram-
kvæmdastjóri myndarinnar,
Kristján Hrafnsson (sonur
Hrafns), hefði búið með dóttur
sinni í tvö ár og teldist þvl nánast
tengdasonur sinn. Umfjöllun
hans um „Hin helgu vé“ væri því
ærin þegar. Dagsljóssmenn kom-
ust að þvi effir fúndahöld að Ól-
afúr væri líklega ekki rétti maður-
inn til að fjalla um kvikmynd
Hrafhs í sjónvarpinu...
ýútkomin bók Gylfa Þ.
Gíslasonar um Viðreisnarárin
hefur lífgað umræð-
ur um samanburð á
milli Viðreisnar-
stjórnar og Viðeyjar-
undurs. I næstu viku
æda frjálslyndir jafn-
aðarmenn að svara
spurningunni í eitt
skipti fyrir öll á opn-
um fundi með Gylfa sjálfum og
öðrum Viðreisnaraðdáanda,
Styrmi Gunnarssyni. Þriðja hjól
undir vagni verður Gunnar Helgi
Kristinsson, til að Ijá umræðunni
akademískan vinkil og kannski að
ná glýjunni úr augum annarra
ræðumanna...
Jakob Magnússon hefur verið
afar umdeildur í
starfi sínu sem
menningarfulltrúi í
London allt frá því
hann var settur í
embættið haustið
1991. Þá var hajatí'
settur til tyeggja ára
og^sá-^amningur
rann út nú í háust. Jón Baldvin
Hannibalsson og embættismenn
í utanríkisráðuneytinu meta störf
hans hins vegar mikils, því ákveð-
ið var að framlengja starfssamn-
ing hans um eitt ár og mun hann
því sitja ffam á næsta haust hið
minnsta. Ráðuneytið taldi kostn-
aðinn óverulegan af embættinu
og því réttlætanlegt að halda
starfseminni áfram. Heildar-
launakostnaður vegna Jakobs er
þrjár milljónir króna árlega, en
auk þess fær hann úthlutað fjár-
magni til að standa straum af
verkefnum ýmiskonar. I fyrra var
verkefnakostnaðurinn fjórar
milljónir króna, einkum vegna
menningarkynningarinnar í
London í nóvember, og skiptist sá
kostnaður á milli utanríkis- og
menntamálaráðuneytis. í ár nálg-
ast kostnaðurinn tvær milljónir
króna í utanríkisráðuneytinu. Að
auki hefur Jakob verið iðinn við
að fá aðra til að bera liluta kostn-
aðarins og hafa Flugleiðir styrkt
marga menningarviðburði...
Q
jálfstæðisflokkurinn á Sel-
tjarnarnesi er klofinn í herðar
niður og ágreiningsmálin marg-
vísleg. Einkum er það megn
óánægja fjölmargra með störf
Sigurgeirs Sigurðssonar bæjar-
stjóra, sem setið hefur samfleytt í
þrjátíu ár, en einnig urðu hat-
rammar deilur um svæðið vestan
Nesstofu. Nú er talið fullvíst að
„uppreisnarmennirnir" muni
bjóða fram sérstakan lista gegn
Sjálfstæðisflokknum undir for-
ystu Sigurgeirs. Þar eru fremstir í
flokki Haukur Björnsson, for-
maður sóknarnefndar, Vilhjálm-
ur Lúðvíksson, framkvæmda-
stjóri Rannsóknarráðs ríkisins,
Anna Bima Jóhannesdóttir yfir-
kennari, Ragnar Hall hæstarétt-
arflutningsmaður, Jón Hákon
Magnússon fjölmiðlamaður
ásamt Guðmari Magnússyni og
Magnúsi Erlendssyni, sem báðir
eru fyrrum forsetar bæjarstjórnar.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
ákveðið að efna til prófkjörs 22.
janúar, en ekld mun vera vilji hjá
andstöðuhópnum að taka þátt í
þvl...
I umræðunni um Morgunblað-
ið í vikunni heyrist að hafin sé leit
að eftirmanni Haraldar Sveins-
sonar, framkvæmdastjóra blaðs-
ins, sem vænst er að láti af störf-
um á næstu mánuðum. Einkum
eru þrír menn nefndir í þessu
sambandi, þeir Hallgrímur
Geirsson, núverandi stjórnarfor-
maður Árvakurs, Stefán Eggerts-
son, verkfræðingur og stjórnar-
maður, og Öm Jóhannsson skrif-
stofustjóri. Vitað er að Örn hefur
lýst áhuga á stöðunni, en hann er
ekld talinn eiga milda mögulcika
og þess er ekld síður vænst að leit-
að verði að manni utan húss til
framkvæmdastjórnar. Allt að
einu er talið að leitin verði mjög
erfið fyrir stjórnina, enda starfið
vandasamt...
¥ yrir rétt rúmri viku varð
Kjartan Pálsson, bóndi á Vaðnesi
í Grímsnesi, fyrir þeirri
óskemmtilegu
reynslu að riffilkúla
skóf hvirfil hans.
Hann varð að von-
um rosa reiður og
hvaðan kúlan kom
er hið dularfyllsta
mál, sem enn hefur eldd tekist að
upplýsa. Helstu hugmyndir eru
þær að sökudólgurinn sé óábyrg-
ur rjúpnaveiðimaður, enda hafa
menn úr þeim hópi orðið uppvís-
ir að því að skjóta á annað en
korrandi fiðurfénað eins og al-
þjóð veit. Hitt vita færri að þarna
hljóp á snærið fyrir lögreglunni á
Selfossi, en sýslumaður hafði
fengið vink um að á Vaðnesi færi
fram heimaslátrun í stærri stíl en
lögmætt er. Þetta var því ákjósan-
legt tækifæri til að kanna hvort
eitthvað væri að finna sem sann-
aði stórfellda slátrun. Ekki mun
lögreglan hafa fúndið neitt í þeim
dúr. Hins vegar bendir Tómas
Jónsson yfirlögregluþjónn á að
heimaslátrun sé leyfileg upp að
ákveðnu marld: „Ég sá að þarna
hafði verið slátrað 15-20 lömbum
og það er eldd meira en eðlilegt er
fyrir heimili.“ En nú halda
rjúpnaskyttur ffam sakleysi sínu
og segja að skotið hafi komið ffá
„heimasláturhúsi“ Kjartans
bónda...
Smáffétt í síðustu PRESSU um
að Borgarleikhúsið
væri að gera út leik-
ritið „Gúmmíendur
synda víst“ eftir Sú-
sönnu Svavars-
dóttur og Eddu
Björgvinsdóttur
vakti mikla athygli,
einkum og sér í lagi
innan Borgarleik-
hússins, þar sem
fféttin olli talsverðu
uppnámi. Fréttin
var byggð á samtali
við Súsönnu, sem
virðist ekki hafa
haft nákvæmar upplýsingar um
hvernig LR kemur að þessu máli.
Edda Björgvinsdóttir vill að það
komi fram að Borgarleikhúsið
hefur ekki haft annað með
„Gúmmíendur synda víst“ að
gera en að skjóta skjólshúsi yfir
leikhópinn, sem gengur undir
nafninu „Fræðsluleikhúsið“, lána
honum litla aðstöðu og redda
síma. Af leikritinu er annars það
að frétta að Amar Jónsson hefur
hlaupið í skarðið fyrir mág sinn
Eggert Þorleifsson. Það breytir þó
engu um fyrirhugaðan ffumsýn-
ingartíma, sem verður í miðri
næstu viku, enda Arnar vanur
maður. Þegar Edda var spurð
hvernig hún gæti unnið með
þessum gallharða gagnrýnanda
sagðist hún ekki hafa lesið gagn-
rýni í fimm ár og aldrei ætla að
gera það. Það sem Súsanna gerði í
frístundum kæmi sér ekkert við.
„En hún er góð í alkafræðun-
um.“...
^^^tikil hreyfing hefúr verið á
Aðalstöðinni að undanförnu. Við
sögðum ffá því nýlega er Elín El-
lingsen sagði skilið við stöllu sína
í morgunútvarpinu, Katrínu S.
Baldursdóttur, og Katrín sat ein
eftir. En nú hefur Katrín sjálf sagt
skilið við Aðalstöðina. Hún var
nýráðin dagskrárstjóri, en vegna
ósættis gekk hún út á mánudag.
Af Aðalstöðinni fylgdu henni þau
Ólafur Kristjánsson auglýsinga-
stjóri og Jóna Rúna Kvaran mið-
ill. Síðdegis í gær var svo fúndað
um deilumálin án þess að sættir
næðust. Engar illdeilur eru þó
manna í millum. Eftir þessa fækk-
un vekur athygli að aðeins tvær
konur standa að dagskrárgerð á
útvarpsstöðinni sem á að heita
„kvennaútvarpsstöð“. Það eru
Guðríður Haraldsdóttir, stjórn-
andi bókmenntaþáttar, og Þór-
unn Helgadóttir, sem sinnir við-
talsþáttum. Þó er líklegt að Elín
Ellingsen bætist fljótt í hópinn
affur, því hún hefúr í hyggju að
taka að sér þætti á laugardögum,
væntanlega á eftir Radíusþætti
bóndans, Davíðs Þórs Jónsson-
ar...
Vittibráðarhlaðborð
í Blómasal
Helgarnar 5. - 6. og 12. -13. nóv.
AÐALRÉTTIR
hreindýrasteikur steiktar í salnum
pönnusteiktar gœsabringur • rjúpur
villiktyddað jjallalamb • villiandarsteik
svartfugl • hreindýrapottréttur • súla
hreindýrabollur í títuberjasósu • skarfur
gœsapottréttur • ogfleira
mgœmn
Boröhald hefst meöfordrykk kl. 20.00
Gestir verða sjálfkrafa þátttakendur íferðahapþadrœtti
Dregið verður 20. nóvember.
Pdlmi Gunnarsson erj
hlutverki gestgjafa, leikur
"villibráðarblús" og segir
lygasögurafsjálfum sér og
öðrum frœgum veiðiklóm.
FORRÉTTIR
sjávarréttapaté • villibráðarseyði
hreindýrapaté • villigœsakœfa
reyksoðinn lundi • graflnn lax eða silungur
reykt og sesamgrafin gœsabringa • ogfleira
EFTIRRÉTTIR
blábejaostaterta
heit eplabaka með rjóma
ostabakki • ogfleira