Pressan - 17.03.1994, Blaðsíða 4

Pressan - 17.03.1994, Blaðsíða 4
Vonarpeningur eða nýr Kristmann? Fyrirgefning Olafs M mM m w u |j^n4|ic 'mm tm. iionanns Morgunblaðið hefur verið duglegt við að þýða um- sagnir um bók Olafs Jó- hanns Ólafssonar „Fyrirgefningu syndanna" sem birst hafa í erlend- um blöðum. Bókin kom formlega út fýrr í vikunni í Bandaríkjunum og þá undir nafninu Absolution í þýðingu Bemards Scudder. Hingað til hafa engin stórblöð tekið bókina tif umsagnar þar til nú að bókmenntafylgirit New York Times birtir grein um hana undir fýrirsögninni „íslenskur syndari nær úr sér hroUi“. Mogg- inn segir ffá þessu undir fýrir- sögninni: „Kemur ánægjulega á óvart.“ Von manna er auðvitað sú að þetta opni dyr fýrir aðra höf- unda, það er orðið langt síðan skáldverk eftir íslenskan rithöfund hefur verið gefið út hjá stóru for- lagi hjá Bandaríkjunum. Það var síðast árið 1946 að Sjálfstætt fólk eftir Laxness kom þar út og þar áður tvær bækur eftir Gunnar Gunnarsson á þriðja áratugnum. En opnar þetta dyr fýrir Ólaf Jó- hann inn í íslenskan bókmennta- heim? Lítill spámaður í heimi bók- menntanna Það er gömul saga og ný með spámanninn í eigin föðurlandi — íslendingar þekkja það syndróm vel. Sterkasta dæmið er auðvitað Björk og Sykurmolarnir, sem aldrei nutu vinsælda á Islandi fýrr en fór að bera á þeim erlendis. Það væri synd að segja að Ólafur Jóhann hafi fengið góða dóma bókmenntafóUcs á íslandi. I PRESSUNNl 18. nóvember var gerð úttekt á helstu skáldum okk- ar og leitað tU tuttugu einstaklinga sem aUir hafa fýlgst vel með bók- menntum. Þar fúxaði Ólafur Jó- hann illilega — var hreinlega á kafi í hauskúpum. Hins vegar hef- ur almenningur ekki tekið Ólafi Jóhanni iUa og hann hefúr selst ágætlega. „Jú, jú, hann selst,“ segir Kolbrún Bergþórsdóttir gagn- rýnandi, en hún liggur ekki á þeirri skoðun sinni að henni finnst Ólafúr Jóhann lítill höfund- ur. „Það er aðaUega vegna þess að hann er milljónamæringur sem vinnur hjá Sony og auk þess góð- ur drengur. Bækurnar hans eru læsilegar en formúlukenndar og banal. En sem bókmenntir ná þær ekki nokkurri átt. Þær eru iUa unnar og Ula hugsaðar. Það er engin skáldgáfa í þessum texta, enginn írjór og merkilegur skáld- skapur. Þetta er stíU sem kannski er góður og gildur í MR, en ég verð hálfvandræðaleg þegar ég les þetta og það er alls ekld hægt að taka þetta alvarlega. Hann er svona nýr Kristmann Guð- mundsson, sem var álcaflega vin- sæll á sínum tíma. En sá lcrítíker sem gaf honum góða einkunn þá nagar sig í handarbökin." Breytir engu í sjálfu sér Staða Ólafs í bókmenntaheim- inum hérlendis hefúr eldd verið sterk og Mattlúas Viðar Sæ- mundsson, lektor við Háskóla Is- lands, telur þetta ekld breyta nokkxu um stöðu hans hér — það sé af og ffá. Hann telur heldur ekld að Ólafúr eigi mikinn séns þarna úti. „Dómurinn sem var skrifaður um hann í Times var ekld jákvæður, eiginlega frekar neilcvæður — kurteislega orðaður og á svipuðum nótum og hefur MATTHÍAS VIÐAR SÆMUNDSSON birst hér. Ólafur Ragnarsson hjá Vöku-Helgafelli á hrós skilið fýrir ffábæra markaðssetningu, en þetta er hálfgert sjónarspil. Þarna er verið að „hæpa“ ákveðinn hlut upp en bóJcmenntamat ræðst eldd af auglýsingum.“ Matthías telur Ólaf Jóhann ekki hafa sannað sig á sínu sviði eins og t.d. Sykurmol- arnir á sínu. „Það má vel vera að hann eigi eftir að skrifa góð bók- menntaverk en hann hefur ekki gert það ennþá.“ Varðandi fýrir- sögn Morgunblaðsins segir Matt- hías að í sjálfú sér komi allt á óvart þannig séð. Engar kúpur hjá New York Times Það kveður við talsvert annan tón hjá Ólafi Ragnarssyni hjá Vöku-Helgafelli, sem telur ekki nokkurn vafa leika á að Ólafur Jó- hann eigi talsverða möguleika á Ameríkumarkaði. Hann segir dómana í New York Times mjög jákvæða og fleiri dómar, eins og í Chicago Tribune, séu mjög lof- samlegir. „Viðtökumar eru ein- ÓLAFUR RAGNARSSON staklega jákvæðar og athygli fjöl- miðlanna hefur beinst mjög að honum nú þegar.“ Það er dóttur- fýrirtæki Random House, eins stærsta forlags í Bandaríkjunum, sem gefúr bókina út og Ólafur segir það fara í kynningu af mikilli alvöm. Um stöðu Ólafs Jóhanns hér á landi segir Ólafur að það sé gamla sagan með að enginn sé spámaður í sínu föðurlandi. „Hann hefur notið meiri vinsælda meðal íslenskra lesenda en flestir höfúndar seinni ára. Fyrirgefning s>Tidanna seldist í rúmlega þrettán þúsund eintökum. Viðtökur les- enda skipta meira máli en um- sagnir örfárra gagnrýnenda. Auð- vitað hafa verið örfáir nöldur- dómar og einhverra hluta vegna hafa ákveðnir aðilar talið hann eiga skilið allmargar hauskúpur. En það kemur í Ijós þegar upp er staðið hverjir hafa rétt fýrir sér í þvi. Erlendis eru menn að meta þetta verk án tillits til þess hver maðurinn er sem skrifar bókina. Ég er hræddur um að sumir hafi látið velgengni Ólafs Jóhanns hafa áhrif á afstöðu sína. Eh'tan hér er svo lítil og mér sýnist að margir sem ekld þorðu að hæla honum séu að snúast og verða svolítið hrifúir af honum. En það tekur sjálfsagt nokkur ár fýrir ýmsa að kyngja því ef vel gengur. Það er að minnsta kosti ljóst að New York Times hefur ekki talið hann rnargra hauskúpna höfund. Spurningin er hvort mælikvarðar sumra íslenskra gagnrýnenda séu sér-íslenskir eða hvort þeir eru á alþjóðlegum mælikvarða, þar sem engir flokkadrættir ráða ferðinni.“ Jakob Bjarnar Grétarsson Til heiðurs D j onní HBBHBBH^^HBt 1 M Y N D L I S T ARIMASOIM Samsýning 24 lista- manna á IMýlista- safninu í stuttu máli: Magnaður hópur listamanna með vel heppnaða sýningu til heiðurs Jóni Gunnari. Núna um helgina verður opnuð yfirlitssýning á verk- um Jóns Gunnars Árna- sonar í Listasafni íslands, en Jón Gunnar lést árið 1989, 58 ára að aldri. f tilefni af yfirlitssýningunni hafa vinir hans, kollegar og læri- sveinar efnt til listamannamóts í Nýlistasafúinu og leggja til verk á samsýningu. Hér eru margir mætir listamenn samankomnir. Má þar nefha Rúrí, Magnús Pálsson, Magnús Tómasson og Tryggva Ól- afsson. Að ekld sé minnst á aðra samferðamenn Jóns Gunnars eins og þá Kristján og Sigurð Guð- mundssyni, Hrein Friðfinnsson og Jóhann Eyfells. Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá að hér í þessum hópi eru samankomnir nokkrir af „lærisveinum“ Jóns Gunnars, sem numu hjá honum og unnu sem aðstoðarmenn hans um lengri eða skemmri tíma, þeir Kristinn E. Hrafússon, Daníel Þ. Magnússon, fvar Valgarðsson og Ólafúr S. Gíslason. Alls eiga tuttugu og fjórir listamenn verk á sýningunni. Vel hefúr tekist til með þessa sýningu og mjög spennandi hópur listamanna er hér samankominn. Það er afar heppflegt að geta haft þessa sýningu til hliðsjónar þegar yfirlitssýningin er skoðuð, því það dýpkar verulega tilfinningu manns fýrir verkum höfundar að sjá þau í samhengi við það listræna um- hverfi sem hann lifði og hrærðist í. Hér þarf ekki endilega að leita að því sem er líkt með verkum Jóns Gunnars og annarra listamanna. Það getur verið jafn upplýsandi að sjá hvað Jón Gunnar hefur gert og aðrir listamenn í kringum hann hafa ekki gert, og öfugt, hvað þeir hafa gert en Jón Gunnar látið ógert. Þegar reynt er að staðsetja lista- menn í listsögulegu samhengi þá er gjarnan talað um „áhrif‘, að þessi listamaður hafi orðið fýrir áhrifum ffá þessu eða hinu og að hann hafi haft áhrif á þennan eða hinn lista- manninn. Þá sér maður yfirleitt fýrir sér einhvern þolanda, þann sem verður fýrir áhrifunum, og jafúvel einhvern geranda, þann sem beitir áhrifum sínum. List- fræðingar leiða gjarnan líkur að því að slík áhrif hafi átt sér stað þegar þeir finna einhvern svip með verk- um tveggja, eða fleiri, listamanna. En þessu er yfirleitt ekki þannig farið, nema þegar um er að ræða óþroskaðan eða óstöðuglyndan listamann. Einn listamaður getur t.d. haft mikil áhrif á annan án þess að þess sjái stað í verkum þeirra og listamenn geta verið að vinna að svipuðum hlutum á gjörólíkum forsendum. „Áhrif' er því ákaflega óljóst hugtak og þar sem þessi sýn- ing er annars vegar þá liggur ekki í augum uppi hvers konar áhrif Jón Gunnar hefur haft á kollega sína. Enda er það svo að listamenn eru ekki einberir þolendur, þvert á móti eru þeir vandfýsnir á hvers konar „áhrifum“ þeir hleypa inn á sig. Það sem skiptir mestu er oft óáþreifanlegt og gleymist fljótt, t.d. sá andi sem skapast í hópi lista- manna, þær umræður sem þar fara ffam, það mat sem viðgengst á samtíðinni. Listamenn finna hvatningu hver hjá öðrum, eða andúð, læra af mistökum hinna, reyna að skera sig úr hópnum og „Maður finnurfyrir því á sýningunni að það er ekki síst félagsskapur Jóns Gunnars og andleg in- spírasjón sem hefur sett mark sitt á samskipti þeirra við hann. “ þannig mætti áffam telja. Þessi persónulegu at- riði eru kannski ofarlega í hugum listamannanna sem taka þátt í sýningunni, en eru öðrum hul- in. Slíkar teng- ingar milli lista- manna er erfið- ara að rekja en formrænar sam- líkingar, en mað- ur finnur fýrir því á sýningunni að það er ekki síst félagsskapur Jóns Gunnars og andleg inspíra- sjón sem hefur sett mark sitt á samskipti þeirra við hann. Það er athyglis- vert að bera verk yngri listamanna, sem nefhdir voru hér að ofan, !>eirra Daníels, Kristins, Ólafs og vars, saman við verk lærimeistar- ans. Verk þeirra eru talsvert ólík verkum Jóns Gunnars. Þeir eru jarðbundnari listamenn, harðir naglar, sem eru ekkert að gefa sig á vald lausbeisluðu ímyndunarafli. Það er t.d. hvergi að finna yfirskil- vitlegt, kosmískt hugmyndaflug, eins og maður finnur fýrir hjá Jóni Gunnari. Mig grunar þó að þeir finni sjálfir allir fyrir sterkum tengslum við Jón Gunnar sem listamann, sem kemur kannski ffam í því hvernig þeir vanda valið á þeim efnum sem þeir nota og huga vel að öllum smáatriðum. Hér er ekki um að ræða handverk í hefðbundnum skilningi heldur nokkurs konar verklega íhugun. En það verður auðveldara að velta slíkum hlutum fýrir sér þegar mað- ur hefur samanburðinn fyrir aug- unum. En hvað sem tengslum þessa hóps við Jón Gunnar líður þá er hér samankomin mögnuð sam- kunda listamanna, sem gerir sýn- inguna spennandi og áhugaverða, enda er góður andi í sölunum og kamaraderí. 4B PRESSAN FIMMTUDAGURINN 17. MARS 1994

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.