Pressan - 17.03.1994, Qupperneq 16
I
Takmarkið er:
iai verði ekki fleiri
narmenn án vinnu
Verkamannafélagið Dagsbrún er reiðubúið til samstarfs við alla þá aðila sem hafa
getu og vilja til að takast á við atvinnuleysið og vínna bug á því. Það er réttur
hvers manns að hafa vinnu og að geta séð sér og sínum farborða. ísland er land
möguleikanna. Á íslandi á enginn að þurfa að vera án vinnu.
Alaugardagskvöld
írumsýnir leikfélag
Menntaskólans við
Hamrahlíð væntanlega
verkið „Blóð og drullu“.
Þetta er frumsamið spuna-
verkefni sem félagarnir
Kunar Guðbrandsson og
Ami Pétur Guðjónsson
stýra. Þeir hafa verið for-
kólfar tilraunaleikhússins
LAB, sem einmitt byggir á
spunavinnu. Uppfærsla
MH er viðamikil, alls taka
fimmtíu manns þátt í henni
og semja nemendur tónlist-
ina sjálfir. Leikurinn styðst
við „Bubba kóng“ eftir
Jarry, en þegar það var fýrst
sýnt í París fyrir hundrað
árum olli það mikilli
hneykslan — einn frægasti
skandall leikhússögunnar.
„Blóð og drulla“ ætlar að
þessu leyti að vera þeim for-
vera sínum til mikils sóma,
því ekki hefur gengið and-
skotalaust að koma sýning-
unni á koppinn. Mikið
taugastríð hefur verið milli
leikfélagsins og skólayfir-
valda vegna uppfærslunnar
og Ömólfúr Thorlacius
rektor hefur haff af því tals-
verðar áhyggjur að sýningin
verði hugsanlega til að
sverta nafn skólans — að
hún sé bæði klæmin og pól-
itísk. Það er reyndar í full-
komnu samræmi við inn-
tak verksins að því tengist
skandalar. Leikfélagið lét
hanna plakat sem kallað
hefur verið tippaplakatið.
Það varð til þess að skólayf-
irvöld skárust í leikinn og
þurfti stjórn félagsins að
segja af sér í kjölfar þess
máls og hanna þurfti nýtt
plakat. Þetta er aðeins eitt af
fjölmörgum atriðum
tengdum æfingum á leikrit-
inu sem hafa sett strik í
reikninginn og það er alveg
nýlega að ljóst varð að af
frumsýningu gæti orðið.
Allur þessi undanfari gefur
tilefni til að ætla að allt geti
gerst á ffumsýningunni,
sem eins og áður sagði
verður væntanlega á laugar-
dagskvöld...
Heldur hefur verið
hljótt um Véstein
Lúðvíksson rithöf-
und á undanförnum árum.
Það er í samræmi við þá trú
sem hann hefur tekið en
hún er kennd við Búdda og
gengur einmitt út á að vera
ekki með nein læti. Vé-
steinn rekur hugleiðsluhóp
sem hann kallar Kímið og
tekur mið af kenningum í
zen búddisma. Nokkuð
kímið...
Verkamannafélagið Dagsbrún
660 Dagsbrúnamnenn
eru nú atvinnulausir
Verkamannafélagið Dagsbrún skorar á ríki, sveitarfélög og atvinnurekendur að hefja
nú þegar þær verklegu framkvæmdir sem fyrirhugaðar eru, í stað þess að bíða fram í
júní eða júlí. Dagsbrún skorar jafnframt á lífeyrissjóði og fjármagnseigendur að
stuðla að því að framkvæmdir geti hafist þegar í stað. Málið þolir enga bið.
Markmiðið er að fækka atvinnulausum Dagsbrúnarmönnum um helming fyrir 1. maí.
VIÐ HLUSTUM
ALLAN SÓLAR-
HRINGINN
643090