Pressan - 09.06.1994, Blaðsíða 9

Pressan - 09.06.1994, Blaðsíða 9
íslenskir úfflagar í London Stærsta samsýning íslenskra myndlistarmanna erlendis hingað til var opnuð í síðustu viku. Gestir flykktust á sýninguna - og sáu fleira en þeir áttu von á. í síðustu viku var opnuð í London samsýning sautján ungra íslenskra myndlistarmanna. Sýn- ingin er liður í viðamikilli dag- skrá fimmtíu ára lýðveldishátíð- ar íslands í Bretlandi, sem menningarfulltrúinn Jakob Frí- mann Magnússon hefur komið af stað. Samsýningin ber heitið Outlawed sem útleggst útlagar eða útlæg, þar sem myndlistar- mennirnir eru búsettir meðal annars í Hollandi, Englandi, Skotlandi, Frakklandi og á ís- landi. Stærstur hluti þeirra stundar nú framhaldsnám í þess- um löndum eftir að hafa lokið námi hér heima. Sýningin er í hinu glæsilega hverfi Butler's Wharf, sem er nokkur skref frá Tower Bridge. Þótt myndlistarfólkið sé allt á svipuðu reki og hafi stundað nám á svipuðum tíma eru verkin sem sýnd eru hvert öðru ólík; málverk, skúlptúrar, kvikmyndir, teikningar, innsetningar, Ijós- myndir, hreyfiverk og bækur, svo eitthvað sé nefnt. Á opnuninni, þar sem mættur var fjöldi fólks ásamt breskum blaðamönnum, voru fluttir tveir performansar sem vöktu mikla athygli. Meðal verka má nefna að Elsa Gísladóttir sýnir gróðurhús með rotnandi mat í gifskúlum; G.R. Lúðvíksson er með 202 línur sem fylla rými og er hver lína jafnlöng landamærum viðkom- andi þjóða árið 1989 og línurnar málaðar í fánalitum; Spessi sýnir Ijósmyndir af mönnum í jakka- fötum og eru myndirnar í réttum stærðarhlutföllum við persón- urnar; Magnús Sigurðsson sýnir myndir af fiskum málaðar á spónaplötur; Haraldur Karlsson sýríir' gólfverk unnið með ís- lenskum hveraleir og neonljósi; Pétur Örn er með rafknúin hreyfiverk; Gunnar Straumland, Bokki, Þórarinn Blöndal og Sól- veig Thorbergsdóttir sýna mál- verk unnin hvert á sinn mátann; Guðrún Hjartardóttir er með litla objekta í hornum sýningarpláss- ins; Helgi Hjaltalín sýnir Ijós- myndir og veggverk; Hlynur Helgason er með innsetningu; Finnur Arnar hvít veggverk; Jó- hann Valdimarsson sýnir teikn- ingar á striga; og loks sýnir Sól- rún Lilja tvær kvikmyndir á 8 mm filmu með Elvis Presley. Sennilega er þetta stærsta samsýning íslenskra myndlistar- manna sem haldin hefur verið á erlendri grund. Þátttakendur og gestir virtust á einu máli um að menningarfulltrúinn og annað starfsfólk sendiráðsins hefðu unnið frábært verk í kynningu á íslenskri menningu og í raun verið ótrúlega vel staðið að hlut- unum. Outlawed-sýningin stendur til 1. júlí og er ástæða til að hvetja íslendinga, sem leið eiga um London, til að leggja leið sína þangað. Hverfið er einnig glæsilegt; þarna eru góðir veit- ingastaðir sem vert er að gefa gaum og útsýnið erfrábært. G.R. Lúðvíksson afhendir Jakobi Magnússyni þakklætisgjöf frá listamönnunum Haraldur Sólveig Pétur Örn ' i ! f I I I i ! Fátt vakti meiri athygli á opnun sýningarinnar en þessi performans G.R. Lúðvíkssonar. Hann hafði keypt sér forláta jakkaföt fyrir sýninguna sem hann klippti svo niður í búta þar til ekkert stóð eftir. Bretarnir eru ekki vanir uppákomum á borð við þessa en bútarnir hurfu eins og dögg fyrir sólu að per- formansinum loknum — áhorf- endurtóku þá með sér heim. i 8B PRESSAN FIMMTUDAGURINN 9.JÚNÍ 1994 I I o.b.1994 16:41 Page 1 Portreftið Óttarr Proppé um myndina af sjálfum sér: „Þetta er ákaflega alvarlegur maður. Kannski siglir hann að einhverju leyti undir fölsku flaggi og reynir að vera eitthvað sem hann er kannski ekki alveg. Hann er ekki mjög vanur þessum fínu fötum, gæti verið fjárglæframaður eða fjölda- morðingi... eða bara heimskasti maður í heimi. Ég efast ekki um að hann siglir undir fölsku flaggi. Snyrtimennskan gæti verið fölsk og ég er hræddur um að hún sé ekkert voðalega genúín. Hárgreiðslan er annaðhvort svona illa misheppn- uð eða úthugsuð til að villa um fyrir fólki. Hann er mjög kalkúlerandi maður og lítur út fyrir að sigla hægt og sígandi. Hann er staddur á þannig stað að hann hlýtur að vera að þykjast eitthvað. Einhver gáfumenni hafa hleypt honum inn fyrir misskilning. Ef hann tæki niður gleraugun yrði hann sennilega mjög saklaus á að líta, hvað þá ef hann losaði sig við skeggið, þá er þetta farið að líkjast mömmustrák." Rauður dregill með statista um borð „Ég fékk hugmyndina í fyrra úti í Los Angeles, þar sem ég hitti nokkra kvikmyndaframleið- endur. Nokkrir þeirra töluðu um að hér væri ekki nein „Film Commission" sem gæti m.a. séð um forval á tökustöðum. Þeim fannst þetta stór galli og smám saman hættu þeir að líta til landsins. Þeir höfðu haft sam- band við samgönguráðuneytið og Ferðamálaráð en þar gekk allt mjög treglega. Þessa þjón- ustu höfum við hugsað okkur að bæta," sagði Róbert Róbertsson sem nýlega hefur lokið námi í kvikmyndagerð. Hann hefur ásamt sex öðrum ungum mönn- um sett á stofn fyrirtækið Rauð- an dregil og er fyrirtækinu skipt niður í þrjár deildir; lcelandic Film Commission, umboðsskrif- stofu og tæknideild. „Icelandic Film Commission mun skrá ísland erlendis sem tökuland og jafnframt reyna að draga hingað fleiri erlenda að- ila. Umboðsskrifstofan er nokk- urs konar gagnabanki þar sem statistar, leikarar og fagfólk í kvikmyndagerð verð- ur haft á skrá og tæknideildin mun sér- hæfa sig ítölvubúnaði sem tengist kvik- myndagerð eða mynd- bandavinnslu." Sigurjón Sighvats- son er einn af aðal- stuðningsaðilum Rauðs dregils og er sonur hans, Þórir Snær, einn af sex- menningunum sem munu sjá um fyrirtæk- ið. Hann verður yfirmaður lce- landic Film Commission næsta vetur, en sem stendur er hann staddur í Frakklandi. „Sigurjón var mjög jákvæður á þetta og sagðist ætla að hjálpa okkur á allan hátt. Ef við hefðum hann ekki er miklu ólíklegra að við hefðum farið út í þetta," sagði Róbert að lokum. FIMMTUDAGURINN 9. JÚNÍ1994 PRESSAN 9B

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.