Tíminn Sunnudagsblað - 19.08.1962, Side 13

Tíminn Sunnudagsblað - 19.08.1962, Side 13
HOLDSVEIKINNI Á ÍSLANDI flutt hana til Rómaborgar. Nýlendu- hermenn Rómverja báru hana svo me3 sér til margra landa. Með þjóð- flutningunum og krossferðunum var smiðshöggið rekið á. Allar miðaldir var holdsveikin eins og svipa, reidd yfir þjóðir Vesturlanda. Kaþólska kirkjan, sem í senn mat mikils líknarstarf og meinlæti, gerði sér fljótt títt um þá, sem urðu holds- veiki að bráð. Stofnuð var sérstök klausturregla, skipuð holdsveikum mönnum, Lazarusarreglan svonefnda, og tigið fólk leitaði samneytis við holdsveika menn sér til friðþæging- ar, hjúkraði þeim og kyssti jafnvel sár þeirra. Holdsveikin var sem sé plága, sem guð lét koma yfir menn- ina til þess að reyna auðmýkt þeirra og þolinmæði, og urðu til margar helgisögur um holdsveika menn. Ekki skorti heldur fögur fyrirheit þeim til handa. Eftir Elísabetu Ungverja- landsdrottningu eru þessi ummæli höfð: „Ég er viss um, ef þér með þolin- mæði berið þennan kross, sem drott- inn hefur á yðar lierðar lagt í þessu lífi, þá mun yður auðvelt að losna úr helvíti". Holdsveikin var með öðrum orð- um eins konar hreinsunareldur í lif- anda lífi, að áliti drottningar. Sumir ætluðu jafnvel, að himna- faðir beitti sjúkdómnum til verndar dyggðum kvenna. Jóhann Nider komst þannig að orði árið 1479: „Oft sendir guð börnum sínum holdsveikina af sinni órannsakanlegu náð og einkum skírlífum konum og meyjum til þess að vernda hreinlífi þeirra“. Ekki var þó ævinlega svona fagur- lega talað til holdsveika fólksins né undir það mulið. Á þrettándu öld voru Lazarusarriddarar nálega strá- drepnir í Jerúsalem, og brátt sótti í það horf, að veraldlegir valdsmenn í Norðurálfu ráku holdsveikt fólk brott úr borgunum og bönnuðu því samneyti við aðra. Varð það að klæð- ast sérstökum kuflum og bera bjöll- ur eða hrossabresti til þess að vara við sér. Þannig spruttu upp nýlendur holdsveikra manna, og voru Lassarón- arnir við Napóli niðjar slíkra útlaga úr mannlegu samfélagi. En jafnframt reis upp aragrúi hæla eða hospítala handa holdsveiku fólki víðs vegar í Evrópu. Kirkjan varð auðvitað að hafa hönd í bagga, þegar þetta fólk var rekið úr samfélagi heilbrigðra manna, og var þess vegna látin fara fram eins konar sýndarútför. Sums staðar voru sjúklingarnir færðir í kirkju, þar sem prestur blessaði þá og söng yfir þeim dánarmessu. Síðan voru þeir leiddir í kirkjugarð, og jós prest- urinn þar yfir höfuð þeim þremur rekum moldar. Að því loknu mælti hann: „Vinur minn, í augum heimsins ertu dáinn“. Síðan hélt sjúklingurinn brott með hrossabrest sinn, íklæddur gráum raunakyrtli, og átti ekki framar aftur- kvæmt í borg sína. Likur eru til þess, að holdsveikin ' hafi verið landlæg á íslandi frá upp- hafi mannabyggðar þar, enda getur hennar í fomsögum og er nafngreind ur íslenzkur sjúklingur, Þórhallur knappur. Menn, sem voru í Væringja- sveitum, og þeir, sem síðar gengu til helgra staða í Suðurlöndum, þar scm moraði af hvers konar kramarfóiki, hafa trúlega einnig sýzkt á stundum. En það hamlaði því, að holdsveikin kæmist hér í algleyming, að stund- um dóu flestir eða nálega allir holds- veikisjúklingar, þegar mannskæðar stórsóttir gengu eða hallæri ollu mikl- um mannfelli. Sú varð raunin í Stóru- bólu og Móðuharðindunum, og kunn- ugt er um mislingafaraldra, er mjög voru skæðir holdsveiku fólki. Þannig hefti ein plágan aðra. En holdsveikin dó samt ekki út. Hún lá í leyni og beið síns tíma. „Hún er ekki dáin, heldur sefur hún“. Mörg ár liðu frá þvi fólk sýkt- ist, þar til veikinnar tók að gæta. Efir langan tíma kom í ljós, að fólk, sem lifað hafði hinar skæðustu sóttir og grimmasta mannfelli, var lostið holdsveiki. Keðjan hafði ekki rofn- að, og þeim fjölgaði smám saman aftur, er urðu þessari ægilegu veiki að bráð. Rök hníga að því, að holdsveikin hafi verið hér mögnuð á sextándu öld. Til er heimild, er greinir frá því, að þá hafi fólk ekki borið sér nafn hennar í munn, án þess að segja jafnframt: „Guð sé oss næstur". — Minnir þetta á þá sögn, að í Svarta- dauða hafi sá siður komið upp, að biðja guð fyrir sér, þegar fólk hnerr- aði, srvo sem margt gamalt fólk gerir enn í dag, af því að fyrstu sjúkdóms- einkennin, sem menn urðu varir við, var ákafur hnerri. Um miðbik aldarinnar voru uppi' tillögur um stofnun sjúkrahæla í landinu, enda naut þá ekki lengur skjóls kirkjunnar. En ekki var meira úr en svo, að tíu þurfandi mönnum var úrskurðað framfæri í Viðey, senni lega sjúklingum. Holdsveikin var einnig hin versta plága á seytjándu öld. Það voru fleiri en Hallgrímur Pétursson, sem þá stundu á beð undir þjótandi skjá af hennar völdum. Þá bauð konung- ur helztu mönnum landsins að ráðgast um það, hversu heft yrði útbreiðslu holdsveikinnar, og árið 1651 var á- kveðið að leggja fjórar konungsjarð- ir til sjúkrahæla. Af þessu spruttu hin svonefndu hospítöl í Kaldaðar- nesi, Möðrufelli, á Hallbjarnareyri og Hörgslandi, þar sem holdsveiku fólki vap síðan búin vist um næstu tvær aldir. Á næsta aldarhelmingi eftir tilkomu þessara stofnana voru hing- að send sjö konungsbréf um þau, og á árunum 1652—1690 voru sjö al- þingissamþykktir gerðar um málefni SJÚKDÓMURINN, sm GUÐ NOTAÐITIL Þ£SS AÐ VERNDA SKÍRLÍFI KVENNA T f M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 589

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.