Tíminn Sunnudagsblað - 06.01.1963, Blaðsíða 2

Tíminn Sunnudagsblað - 06.01.1963, Blaðsíða 2
sem þeir hlaða, eru firnaþykkir, allt að hálfum öðrum metra að neðan, og fylltir grjóti og mold. Og sjálf- sagt eru þeir að minnsta kosti tveggja metra háir, jafnháir klettunum jarð- föstu. Og fullhlaðin er tóftin sextán eða seytján metra löng. Og þetta er tízkuhús. Báðir lang- veggir eru bogadregnir, svo að tóft- in er að laginu líkust báti, sem sag- að hefur verið af, bæði að framan og aftan. Þannig eru húsin í Þræla- borg í Danmörku, á Óma í Noregi og ísleifsstöðum a íslandi. Þetta eru húsin, sem þeir kjósa sér, er eitthvað fylgjast með í byggingarmálum. Tóft- in verður á sjötta metra, þar sem hún er breiðust, en mjórri við gafla. Þarna er efnt til hins myndarlegasta skála. Með því að lægð er við þann lang- vegginn, er hotfir móti brekku, taka þeir það ráð að grafa rennu um þvert gólf, svo að vatn fái framrás í regni og hlákum og bleytj ekki skálagólf- ið. Þessa rennu hlaða þeir innan og leggja síðan hellur yfir hana. Pall gera þeir með'fram öllum veggjum, og sá hluti malarhryggjarins, sem lent hefur inni í tóftinni, er notaður í hann. Tvær raðir gildra sívalra stólpa reka þeir niður í gólfið að endilöngu með tveggja eða þriggja 1 ÞÚSUND ÁR I FUGLAFIRÐI | Flugmynd af byggðinnl í Fuglafirði á AuSturey, tekin sunnan frá. Ævintýrið gerðist endur fyrir löngu. Fólk, sem hvergi á sér óðal né staðfestu, kemur á báti inn fjörð- inn með búslóð sína. Það skimar til lands og virðir fyrir sér sæbrattar hiíðar hárra fjallanna. Landtakan er ekki árennileg, og það er haldið áfram lengra og lengra. unz komið er í fjarðarbocn. Þar fossar á niður hlíðina og hefur myndað dálitla eyri í botninum á voginum. Bátnum er rennt inn í ármynnið. Fólkið gengur á land og litast um. Allt í kring eru fimm hundruð til ekki einu sinni út til hafs. Hér er sjö hundruð metra há fjöll. Það sést sem veröld út af fyrir sig, afmörkuð og innilukt. Og þessa veiöld helga komumenn sér Þeir taka að hlaða veggi og efna bæ ofanvert við eyrina austan við ána Þessir menn gæta hagsýni í verk- um sínum, enda er ef til vill orðið áliðið sumars, svo að hafa verði hrað- an á. Tveir jarðfastir klettar eru of- an við eyrina, og mennirnir velja sér skálastæði með þeim hætti, að þessir klettar getf verið hlutar af veggj- unum. Frá öðrum klettinum gengur malarhryggur, og á honum reisa þeir annan langveggmn. En þeir eru ekk- ert smátækir, þótt þeir spari sér þá fyrirhöfn, sem þeir geta Veggirnir. Vaðsfeinn úr eizta gólfiaginu. metra millibili og berja grjót niður með þeim, svo að þeir haggist ekki. Þessar stólparaðir skipta skálanum í þrennt og bera uppi þekjuna. Eld- stæði hlaða þeir af mikilli vandvirkni á miðju gólfi, þar sem skálinn er breiðastur. Loks er sandur borinn á gólfið, og skálinn er fullger. Fólkið gerir sér sess á pöllunum og reiðir þar rekkjur sínar . og á gólfi bins nýja skála brennur langeldur. Mað- urinn hefur tekið sér bólfestu við þennan fjarðarbotn. Beinin, sem troðast niður í sandinn á gólfinu, sýna það, ag frumbýlingurinn rær til fiskjar, brotin vinnutæki, sem lögð eru til hliðar, votta, að hér sitja konur að tóvinnu í skini eldanna. og eitt og annað ljóstrar því upp, að þetta fólk á sKipti við menn, sem korna af fjarlægum löndum með efni- við, er kemur sér vel í nýbyggðinni. Sumt af þessu hafnar í öskunni. Og þarna alast upp tápmiklir drengir, sem. hugulsamur faðir eða aldurhnig- inn afj eða fósiri gefur trévopn, sem hann hefur telgt á síðkvöldi eða ó- veðursdegi. 10 T 1 M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.