Tíminn Sunnudagsblað - 06.01.1963, Blaðsíða 5

Tíminn Sunnudagsblað - 06.01.1963, Blaðsíða 5
heyrir hún, ag komið er upp á úti- dyragöngin og á þau dynja þung högg og imikil. Gengur þetta alllengi, og má glöggt heyra, að rof og raftar úr gangaþakinu eru að hrynja niður í göngin. Hún heyrir, að alltaf geng- ur meira og meira á göngin, og að höggin og niðurbrotið færást nær og nær baðstofunni. En þá er snúið þaðan frá og þrammað að búrinu og það lamið niður með braki og hruni. Að því loknu er tekið til við eldhúsið og því gerð svipuð skil. Eftir það er farið upp á þekjuna yfir göngunum að baðstofudyrunum, Heyrir Kristín þaðan mikið högg og raft falla niður. Þá grípur hana skelf- ing. Hún snarast fram úr rúminu og gengur að baðstofuhurðinni, krossar fyrir hana marga krossa og biður Guð 'Sinn og Frelsara að hjálpa sér í þessum hörmungum. Þegar hún hefur lokið við að gera krossana og biðja bænarinnar, snýr hún aftur að rúmi sínu. Þá gerist það undur, að henni hverfur allur ótti og yfir hana flæðir „himneskur friður“, eins og hún sjálf komst að orði. Leggst hún fyrir hjá barninu, róleg og örugg. í sama mund er horfið frá bað- stofugöngunum og aftur farið upp á búr og eldhús og heyrist þaðan högg, brothljóð og dynkir. í því rennur Kristínu í brjóst léttur blundur. Þá sér hún eins og í hugsjón, en þó skýrt sem í vöku, ófreskju mikla og hræðilega og samt í mannsmynd standa fyrir utan baðstofuhurðina, hvessa á sig stór og heiftarþrungin augú, og beyrir hana kalla með grimmdarfullri röddu: „Ég kemst ekkert fyrir krossunum þínum, Kristín“. Eftir þetta mókír Kristín allt' til dægramóta og veit þó af öllu, sem fram fer úti, heyrir gegnum blund- inn sífelldar bai'smíðar, dynki, hrun og brothljóð alla nóttina. Þessu held- ur áfrarn, þar til byrjar að birta af degi. Þá linnir loksins ólátunum og allt fellur í kyrrð og ró. „En þó að ég vissi, hvað fram fór alla nóttina“, sagði Kristín, „þá fann ég ekki til nokkurs ótta. Það var yfir mér vel- Ilðan og öryggi". Kristín fór að klæða sig, þegar tekið var að birta. Svo gekk hún að baðstofuhurðinni og ætlaði að opna dyrnar. En þá gat hún varla ýtt hurð- inni frá dyrastafnum, því að göngin voru niður hrunin allt inn að hurð, en hún opnaðist til útidyra. Henni tðkst þó einhvern veginn að troða sér út. En þar var heldur ömurlegt um að litast. Allur bærinn niður brotinn nema baðstofan. Gegnfrosn- ar þekjurnar lágu í molum niðri í tóftunum og enginn raftur, biti eða sperra uppi hangandi. Þetta var allt mölvað eða sundurmulið og sumt svo smátt, eins og það hefði verið malað í kvörn. Aðeins veggirnir munu hafa staðið eftir lítt skaddaðir, og gripa- húsin hafði ekki sakað. Kristín gaf nú skepnunum og mjólkaði kúna. Þegar því var lokið, klæðir hún barnið, tekur það í fang sér og leggur af stað til manna- byggða. Gekk hún niður Dufgusdal og alla leið niður að bænum Hrisde1 í Miklaholtshreppi. Það er rösklega 8 kílómetra vegur. Þar segir hún f tíðindum á Baulárvöllum. Fannst öllum saga hennar sögð með slíkun ólíkindum, að Kvistín mundi ekki vera með réttu ráði. Enga sá þó ingu á henni og enga breytingu fr því, sem hún átti að sér að ve Þessu næst var sent út að Hofs stöðum, sem er lakan hálftíma gang fyrir neðan Hrísdal. Þar bjuggu þá Magnús hreppstjóri x Jónsson og Kristín, systir Jóns sundmanns. Þeim voru sagðar fréttir frá Baulárvöllum. Magnús bregður þegar við og heldur upp að Hrísdal og lætur Kristínu segja sér frá öllum atburðum, sem gerzt höfðu um nóttina. „Satt muntu segja, þótt ótrúleg sé sagan“, svarar Magnús, er Kristín hafði lokið frásögn sinni. Síðan kveð- ur hann með sér fjóra menn upp að Baulárvöllum til að athuga verksum- merki. Þegar þangað kom, reyndist allt vera eins og Kristín hafði frá sagt. Og sú var skýrsla hreppstjórans, að þar hefði enginn mannlegur kraft- ur verið að verki. Þó að tíu rnanns hefðu beitt þar öllu afli, myndu þeir ekki hafa getað afrekað þvílíka eyði- leggingu á einni nóttu, þv{ að svo hefði víða verið að unnið, að líkast væri sem rjáfur og raftar væru muld- ir í lcvörn. Meðan skoðunarmennimir standa þarna höggdofa á bæjarrústunum, kemur Jón Sundmann neðan úr Staðarsveit. Bregður honum allilla, er hann sér bæ sinn hruninn og menn standa þar yfir svörtum rúst- um. En hreppstjórinn kallar til hans, áður en hann er kominn heim að bænum: „Vertu óhræddur! Konu þinni líður vel og barninu". Þeir gefa svo gripunum og mjólka GUÐLAUGUR JÓNSSON kúna. Síðan snúa þeir til byggða og Jón með þeim. Jóni var ekki á móti skapi að gefa þegar upp búskap á Baulárvöllum, en Kristín vildi fara þangað aftur. Reið þá Magnús hreppstjóri um sveit- ina að safna mönnum og efniviði til að gera upp bæinn. Fór til um tíu manns og byggðu bæinn upp að nýju. Torf gátu þeir rist á þökin í dýja- vermslum. Og síðan var kúamykju klínt smám saman ofan á. Kristín var á Hofsstöðum, meðan unnið var að bæjargerðinni“. Árni prófastur tilnefnir sem heim- ildarmenn sína að þessari frásögn þau Kristínu, lconu Magnúsar hrepp- stjóra, og systur Jóns Sundmanns og Kristján bónda Elíasson á Ytra-Lága- felli £ Miklaholtshreppi, en hann var sonur Elíasar bónda Sigurðssönar í Straumfjarðartungu, er verið hafði einn þeirra manna, er unnu að end- urreisn bæjarhúsanna á Baulárvöll- um. í Gráskinnu II. 1929, er frásögn af Baulárvallaundrunum, skrásett 1899 af Lárusi Halldórssyni, síðar sóknar- DAGAR, LtGGJA KOFARNIR I RÚSTUM OG ÞVERBROTNIR RAFTAR STANDA UPP ÚR ROFNUM ÞEKJUNUM — HVAÐ GERÐIST ÞESSA NÓTT? T t M I N N — SUNNUDAGSBI.AÐ 13

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.