Tíminn Sunnudagsblað - 06.01.1963, Blaðsíða 13

Tíminn Sunnudagsblað - 06.01.1963, Blaðsíða 13
eru enn lítt þróuð á vestrænan mæli- kvarða. Þar eru enn ekki til fjár- málastofnanir, sem eiga sinn þátt í því að auka velmegun almennings, svo sem tryggingastofnanir, bygginga og lánastofnanir, auk fjölda ann- arra þjóðfélagsstofnana, sem auka veltu fjármagnsins. Enn þá er miklu af hinum háu tekjum af olíu- framleiðslunni varið til fjárfestingar erlendis. Kuwait á til dæmis fjárfest- ingu á verðbréfamarkaðnum í London sem nemur rúmlega 750 milljónum dollara. Þessar fjárfestingar eru varð ar með þeim hætti, að nauðsynlegt sé að tryggja tekjurnar af forða, sem fijótlega taki enda, en þessi afsökun er haldlítil: Olíulindirnar í Kuwait eru svo miklar, ag miðað við núver- andi olíuframleiðslu tæki að minnsta kosti öld að tæma þær. Það virðist furðulega hóflaus „framsýni“ að tryggja sig gegn svo fjarlægri fram- tíð. Og margt getur átt sér stað á einni öld, ekki sízt í stjórnmálalegu tilliti. Samkvæmt nýjustu upplýsingum virðast olíubirgðir í jörðu í Mið-Asíu, sem nú eru þekktar, vera um 187 milljarðar olíufata eða þar um bil. En sérfræðingar, sem eru vel kunn- ugir í þessum löndum, álíta, að ef olíuleitinni yrði haldið áfram á þess- um slóðum, gætu birgð'irnar hæglega orðið um 500 milljarðar olíufata. — Fram að þessu hefur hvert olíufat gefið olíulöndunum um það bil einn dollar í aðra hönd. Ef þessi stöðugi gullstraumur væri nýttur sem skyldi, væri framtíðin Ijós, en það eru hin stjórnmálalegu vandamál þrándur í götu. Eitt af hinum miklu vandamál- um í þessum heimshluta, sem enn er óleyst, eru ákvörðun landamæra. Fyrr á tímum voru ekki til nein á- kvéðin landamæri í eyðimörkinni, svo að þar er lítið að styðjast við. Þetta er vel skiljanlegt, þar sem hv.er kíló- metri af eyðimerkursandi skiptir ekki miklu máli á þeim tímum. En nú getur einn ferkílómetri í eyðimörk- inni þýtt tugþúsundir olíufata, og þá kemur annað upp á teninginn. Um- hveríis Persaflóann eru örugg landa- mæri fá á landi og enn þá færri í sjónum. En hafsbotninn þar er eitt mesta olíusvæði heimsins. Þar eru fimm olíuvinnslusvæði, sem öll eru nýtt af fjarlægum þjóðum: IJanam International vinnur úti fyrir Iran; Japanar utan við Saudi-Arabíu; Shell úti fyrir Qatar; British Petroleum og Compagnie Francais úti fyrir strönd- um Abu Dhab. Það er nauðsynlegt, að þessi landa- mæri verði fastákveSin, einnig und- ir yfirborði sjávarins því að olíusvæði munu án efa oft ganga þvert í gegnum landamæralínurnar og skapa þannig deilur. Það er eitt slíkt svæði til milli Bahrein-eyja og Saudi-Arabiu. Þar Olíuvinnslustöövar eru mikil mannvirki. Hér er ein slík Myndin er tekin undir olíuleiðslum, sem liggja frá sívölum geymum. hefur orðið samkomulag um oliu- vinnsluna, en það eru svipuð olíu- svæði í Persaflóanum, þar sem landa- mæralína getur gert út um eignar- rétfinn á mörgum milljónum olíu- fata. í þessu tilfelli verður að koma til kasta lögfræðinga og dómstóla og rik- isstjórnirnar verða að koma sér sam- an um, hvar mörkin eiga að vera, annars mun illt af hljótast. Það má segja, að vandamálin varð- andi landamærin séu ekki minni á landi en sjó. Saudi-Arabía hefur til dæmis ekki örugg landamæri nema á fáum stöðum. Til allrar hamingju hafa ekki risið upp deilur um neitt sérstakt olíusvæði á þessum slóðum, en þær geta orðið hvenær sem vera skal. Deilur af þessari ástæðu hafa þegar risið milli Túnis, Libýu og Algier,, og olíuleiðslurnar, sem ákveð- ið er að gera á þessum landsvæðum munu hafa ný vandamál í för með sér. Á öllum þeim stöðum, sem nú hafa verig nefndir, eru sem sagt í deiglunni afdrifarík alþjóðleg deilu- mál. Hið gífurlega fjármagn, sem streym ir inn í þessi lönd, getur orðið upp- haf annarra deilna og árekstra milli ríkisstjórna þeirra: Stórrík fursta- TlMINN - SUNNUDAGSBl-AÐ 21

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.