Tíminn Sunnudagsblað - 06.01.1963, Blaðsíða 4

Tíminn Sunnudagsblað - 06.01.1963, Blaðsíða 4
I GUÐLAUGUR JÓNSSON SKRIFAR UM Baulárvallaundrin svonefndu hafa á sfnum tíma eflaust vcrig mikið um- talsefni manna á Snæfellsnesi og lík- lega víðar. Og þó að nú séu liðin meira en 120 ár síðan þau gerðust, ber þau enn á góma, jafnvel bæði í ræðu og riti. Fyrir skömmu var þeirra getið í ferðalýsingu um Út- botna Helgafellssveitar, sem birtist í 35. tbl. Sunnudagsblaðs Tímans, 4. nóvember 1962. * Tvær aðalheimildir um þessa dul- . arfullu atburði hafa komizt á prent, svo að mér sé kunnugt, báðar byggð- ar á frásögn konunnar, sem fyrir þeim varð, og báðar taldar staðfestar af sjónarvottum að verksummerkjum á Baulárvöllum daginn eftir hina minnisverðu atburðarnótt. Ýtarleg- asta lýsmgin, sem til mun vera á þessum atburði, birtist í V. bindi af ævisögu Árna prófasts Þórarinsson- ar, „Með eilífðarverum“, sem Þór- bergur Þórðarson hefur fært í letur og út kom f Reykjavík árið 1949. Þessi lýsing Árna prófasts verður nú tekin hér upp orðrétt, til glöggvun- ar og skilningsauka á því, sem síðar segir. Frásögn séra Árna hljóðar svo: „Jón sundmann, bróðir Kristínar í Skógarnesi, flutti sig með Kristínu, ‘konu sinni, og barni ársgömlu, sem Kristjana hét, neðan úr byggðum og settist að á koti uppi á Snæfellsnes fjailgarði. Það hét að Baulárvöllum. Þá var allur búfénaður þeirra 10 ær, 1 kýr og 2 hross. Þar kom fyrir at burður, sem ég tel meðal þejrra undra, er dularfyllst og ægilegusl hafa gerzt hér á landi, svo að kunn séu. Sú saga skal hér rakin grein legar en hún hefur áður verið sögð á prenti. Uppi á miðjurn ' Snæfellsnesfjall- garði er stöðuvatn allstórt, sem Bauly árvallavatn heitir. Liggur það í hviift •mikilli, sem verður í fjallgarðinn fyrir botni Dufgusdals og um 3 kílo-' metra f suður frá suðurenda Kerl- ingarskarðs. Upp frá vatninu rísa fjöll á alla vegu nema niður að daln- um. Þar fellur úr því á, serþ rennur niður Dufgusdal og þaðan um byggð- ir Miklholtshrepps til sjávar. Hún heitir Straumfjarðará. Mikið er af vatnasilungi í Baulárvallavatni, þó að Íítt hafi þar verið stunduð veiði fyrr en á síðustu árum. Á nítjándu öld var bær við vatnið. Stóð hann við rætur fjallshlíðarinn- ar sunnan þess, á austurbakka lítill- ar ár, svonefndrar Baulár, sem fellur f vatnið úr suðri. Frá bæjarhúsun- um niður að vatninu var rösklega þriðjungur úr kílómetra. Þessi bær hét Baulárvellir. Það var um miðbik nítjándu aldar, að þau Jón og Kristín fóru að búa á Baulárvöllum. Ekki veit ég með vissu, hvað þau bjuggu þar lengi. En á fyrsta eða öðrum vetri þeirra hjóna þar bar svo til á jólaföstu, að Jón þurfti að skreppa erinda sinna niður í Staðarsveit. Fór hann að heiman snemma morguns og skyldi verða burtu þann dag allan, næstu nótt og fram eftir deginum þar á eftir. Kristín var ein í kotinu með barnið. Tekið var að skyggja, þegar hún hafði lokið útiverkum daginn, sem Jón fór. Settist hún þá inn í baðstofu og kveikti ljós. í vökulokin, um tíu leytið, fer hún út í fjós og mjólkar kúna. Að því búnu signir hún fyrir utidyr, gangadyr og baðstofudyr, eins og hún var vön, og gengur svo til náða, slekkur ijósið og leggst út af með barnið fyrir ofan sig í rúm- inu. Rélt í því heyrir hún, að farið er upp á baðstofumæninn og rekið niður í hann bylmingshögg uppi yfir rekkju hennar. Var höggið svo mik- ið, að baðstofan skalf öll við með braki og brestum, og hélt Kristín,- að hún myndi hrynja yfir sig. Greip hana þá hræðsla mikil, ag vita sig eina með ungbarn í skammdegis- myrkri á fjöllum uppi langt frá öll- um mannabyggðum og fjæni allri manulegri hjálp. Heitir hún á Guð að líkna sér og barninu og signir kringum þau f rúminu. Þá heyrir hún ruðzt niður baðsiofu- þekjuna, og rétt á þftir dettur því- líkt högg á útidyrahurðina, að Kristínu heyrist hún brotna í mola og brotin sendast inn göngin. Þar næst tiÖTTIH FÆRIST YFIR LÁGREISTA KOFANA VIÐ FJALLAVATHSÐ ER NIÐRI í SVEIT — KONAN EIN HEIMA MEi BARN SITT. BONDINN 12 T I M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.