Tíminn Sunnudagsblað - 06.01.1963, Blaðsíða 3
Útskorin fjöl úr elzta skálanum I Fuglafirði.
Og tíminn líður. Það er borið meira
og meira af sandi á skálagólfið, og
skarn af fótum manna treðst niður í
hann. Loks er gólfskánin orðin svo
þykk, að ekki ekki verður umflúið að
hækka eldstæðið. En það hrekkur
ekki til, þegar til lengdar lætur. Ný
kynslóð ræðst 1 það að búa til nýtt
eldstæði, enda hefur nú skálinn all-
ur þurft gagngerðra bóta. Nýir stólp-
ar, slétthöggnir, hafa verið settir í
stað gömlu, sivölu trjábolanna,. og
kannski hafa líka komið til sögunnar
þil og skilrúm, sem hlutuðu skálann
í sundur að einhverju leyti. Og enn
líða langir tímar.
Loks kemur • þar, að þessi híbýli
eru rýmd. Það er gert í góðu næði.
því að ekkert, sem að gagni má verða.
er skilið eftir. Það eru helzt leikföng
barna, sem farið. hafa forgörðum
Kannski hafa líka krakkarnir verið
þeir trassar að týna gullunum sín-
um. Veggirnir snarast, þegar hætt
er að búa í skálanum, og gras og mosi
leggst yfir rústirnar. Engan grunar
framar, hve héi var eitt sinn stór
mannlega búið
En staðurinn t'reistar. Enn koma
nýjar kynslóðir sem hefjast handa
um að byggja á gömla rústunum. Þau
hús falla þó einnig um síðir, og þeg-
ar enn er liðinn langur tími, gerir
framtakssamur fiskimaður sér hér
naust. Gömlu veggirnir hafa sparað
honum fyrirhöfn. Og eftir þennan
mann kemur hver af öðrum með ný
umsvif.
Það hafa verið heygarðar, mykju-
haugar og hjailar á eyrinni við
Gjógvará í Fuglafirði eins lengi og
elztu menn rekur minni tii. En það
er sviptivindasamt þarna á milli
hinna háu fjaila, og í marzmánuði
1955 gerðisi það, að kastvindur tætti
alla hjallana af grunni í vetfangi.
Færeyingar eru þrautseigir menn
og vorið 1957 ætlaði Páll skipstjóri
Petersen að byggja sér þarna nýjan
hjall. En hann hafði ekki lengi graf-
ið fyrir nýja hjallinum sínum, er
hann kom niður á tóftarbrot. Starfs-
menn þjóðminjasafnsins i Þórshöfn
voru látnir vita um þetta, og daginn
eftir var sendor maður frá því að
líta á verksummerki og skoða það,
sem fundizt hafði. Skipstjórinn hætti
við að byggja hjallinn á þeim stað,
sem hann hafði fyrirhugað honum,
og næsta ár fór þarna fram uppgröft-
ur og rannsókn Kom þá fliótt í liós,
að þarna voru rústir miklar, hver
ofan á annarri Varð þó ekki við kom-
ið að rannsaka nándarnærri allt <?vpeð-
ið. Akvegur lá yfir sumt af þvi, sums
staðar höfðu verið byggð útihús og
hlöður, og rafmagnsstaur hafði verið
"eistur kirfilega á fornum vegg einn-
»r tóftarinnar
Eigi að síður kom þarna sitt hvað
i leitirnar. í gólfskán elzta skálans
fundust brýnisbrot með greipilp^um
förum eftir oddhvasst járn eða nál-
ar, brot úr bollum úr klébergi, mflm-
þræðir og málmstengur, snældusnúff-
ar úr steini i>g blýi, meðalkafli af
trésverði með greinilegum förum
eftir hvassa hnífsegg, ausa, Iangir
tréteinar, gripir úr tinnu, sem menn
hafa getið sér til, að væru taflmenn,
!ok eða aafl úr kistli með trénöglum,
laggaður stafur úr dalli. kljásteinar
úr klébergi, kvarnarsteinn úr fær-
eysku grjóti, glerperlur. vaðsteinn
með áhöggvmni mynd. útskorið
framhald á 16. siðu.
^ Meðalkafli trésverðs úr ehtu
gólfskáninni og trésleif, sem
fannst i næsta lagi þar ofan á.
T í M I N N — SUNNUDAGSBI.AB
11