Tíminn Sunnudagsblað - 03.02.1963, Blaðsíða 4

Tíminn Sunnudagsblað - 03.02.1963, Blaðsíða 4
Beinamálið húnvetnska — fjórði frásöguþáttur XXI Árið 1815 kom nýr prestur að Hjaltabakka. Var það séra Einar Guð brandsson, er áður hafði um langt íkeið búið embættislaus suður í Borgarfirði. Var kona hans, Ragn- heiður Jónsdóttir, prestsdóttir frá Hvammi í Norðurárdal og hafði áður verið gift einum Gilsbakkapresta. Fylgdu þeim norður uppkomin börn Ragnheiðar af fyrra hjónabandi. Þeim hjónum varð þó ekki langra samvista auðið á Hjaltabakka, því að Ragnheiður lézt skömmu eftir að hún kom þangað. Séra Einar kvongaðist í annað sinn sumarið 1817 og gekk þá að eiga lngibjörgu, dóttur Magn- úsar Gíslasonar, er var sýslumaður Húnvetninga á síðasta fjórðungi átjándu aldar. Þetta sumar var venju fremur þurrt í Húnaþingi, og þegar á leið, var oft mjög stormasamt. Um haustið gerði aftakaveður af norðri með brimi svo miklu, að þá gekk sjór hærra á land á ströndinni milli Vatns ness og Refasveitar en menn minnt- ust þá um mörg ár. Þetta sama haust vOru þrjú hundruð ár liðin, frá því að svonefnd siðbót Marteins Lúthers hófst, og var þá að boði konungs haldin minningar hátíð í þrjá daga samfleytt. Var byrjað að hringja kirkjuklukkum að kvöldi fimmtudagsins 30. október- mánaðar, en prédikað hinn næsta dag í kirkjum landsins, eftir því sem til vannst. Mest var þó um dýrðir að sunnudeginum. Fólkið streymdi í flokkum á kirkjustaðinia og hlýddi með andakt á prestana rekja siða- skiptasöguna, eins og hún horfði við frá þeirra sjónarhóli, og bændurnir sneru heim með Ágsborgarj.átning- upa prentaða í vasanum. Svo var það, að maður frá Hjalta- bakka, líklega Bjarni Eyjólfsson, vinnumaður þar, eða Jónas, stjúpson- ur prests, var á gangi nálægt ósum Blöndu miðvikudaginn næs'tan eftir siðaskiptahátiðina, hinn 5. nóvember- mánaðar. Sem hann var staddur þar utan við, er hina háu sjávarbakka milli Hjaltabakka og Blönduóss þrýt- ur, rétt við hól þann, er SkiphóII var kallaður, sá hann bein standa upp úr sandinum á milli steina á nær jafnsléttu, neðan við grasteyginga í hólbrekkunni, Var þarna grjót á víð og dreif, en grónar þúfur á milli. Hann staldraði við og virti fyrir sér beinin. Hann hafði ekki lengi skoðað þau, er það rann upp fyrir honum, að þetta voru mannabein. Lærleggur og brot úr mjaðmarbeini lá ofan á sand- inum, en upp úr honum stóð annar lærleggur og þunnt bein, sem reynd- ist vera skel höfuðkúpu. Talsvert voru þessi bein ellileg, og brotnaði kastið af leggnum, sem sat fastur í sandinum, þegar hann dró hann upp úr honum. Maðurinn skundaði heim og sagði presti, hvað hann hafði fundið. Þóttu þetta allmikil tíðindi, og varð marg- rætt um þennan beinafund á Hjalta- bakka. Séra Einar var að sönnu ekki orðinn gagnkunnugur í sóknum sín- um, en þó var hann búinn að heyra nákvæmlega sagt frá strandi Hákarls- ins og þekkti út í æsar orðróm þann, sem lá á um hvarf skipstjórans. Flögr aði þegar að mönnum, að þarna væru bein skipstjórans komin í leitirnar. Hinn næsta laugardag hélt séra Einar inn að Skiphól með Bjarna og Jónasi Jónssyni, stjúpsyni sínum, til þess að vitja beinanna og kanna fundarstaðinn. Reyndist staður sá, sem þau voru á, vera drjúgan spöl frá sjó, og mældust siðar þrjátíu faðmar frá dysinni að efsta flóðfari sjávar í sjóganginum mikla þetta haust. Ekki töldu þeir geta komið til greina, að Blanda hefði náð að skola beinum á þennan stað. Prestur gróf nú til, þar sem bein- in voru, og fann þá fljótt meira af beinum, er lágu þarna með heldur óreglulegum hætti, öll sundurlaus. Virtist steinum hafa verið hlaðið eða kastað að beinunum, því að norðan- verðu £ dysinni var steinaröð með skipulegri hætti en annars staðar. Grunnt var á beinin. Flest sneru þau auötur og vestur, og vissi höfuðkúp- an að sjó, en þó voru fótleggir til hliðar við bein úr efri hluta líkam- ans, sinn hvorum megin, og tábeinin næst höfðinu, mjög nálægt höfuð- kúpunni. Tennur fundust, hvítar og heilar, en ekki komu neinir handlegg- ir í leitirnar. Annan mjaðmarspaðann vantaði einnig, og kjálkinn annar var brotinn. Leitað var, hvort ekki fyndust hnappar eða leifar fatnaðar einhvers konar, en ekki varð prestur var við neitt slíkt. Beinin voru nú flutt heim að Hjaltabakka og látin þar í kassa eða kistu til geymslu. Síðan skrifaði prestur Kristjáni kaupmanni Schram í Höfðakaupstað og sagði honum tíð- indin. Brá kaupmaður fljótt við og fól Bimi Ólafssyni frá Vindhæli, er þá var fyrir alllöngu orðinn umboðs- maður á Þingeyrum, að beita sér fyrir rannsókn þessa máls. XXII. Um þessar mundir gegndi sami maður sýslumannsembætti í Húna- vatnssýslu og Strandasýslu og bjó á Reykjum í Miðfirði. Það var Jón Jónsson, er áður hafði alllengi búið í Bæ í Hrútafirði, roskinn maður og enginn höfuðskörungur í málsóknum. Var nú til hans vikið að boða til þings, og fór frumrannsókn fram á Hjaltabakka í byrjun desembermán- aðar. Þar lýsti séra Einar og þeir Hjaltabakkamenn beinafundinum, og kvað prestur upp úr með það, að hann ætlaði þetta bein skipstjórans af Hákarlinum. Færði hann það fram skoðun sinni til stuðnings, að á þess- um slóðum hefði enginn maður horf- ið í manna minnum, nema þessi skip- stjóri, að undanteknum Erlendi bónda Guðmundssyni, sem týndist 100 T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.