Tíminn Sunnudagsblað - 29.08.1965, Blaðsíða 18

Tíminn Sunnudagsblað - 29.08.1965, Blaðsíða 18
Hin fræga górillu-fiölskylda í náttúrugripasafninu í New Yðrk. Goft dæmi um náttúrueftlrlíklngu. HílMSS ÝNINCA RNA R OG HIN STÓRUSÖFN Heimssýningunni miklu í Kristals- höllinni í Hyde Park í London lauk 11. nóvember árið 1851. Frá því að sýningin var opnuð í byrjun maí, höfðu meira en sex milljónir manna lagt þangað leið sína. Þessi fyrsta heimssýning leiddi það í ljós á ótví- ræðan hátt, að geysistór hóp- ur manna hafði áhuga á að sjá og kynnast hlutum af því tagi, sem sýn- ingin bauð upp á. Og jafnframt hafði skapazt grundvöllur fyrir söfn, sem opin væru almenningi. Fram að þessum tíma höfðu söfn, að hinum miklu þjóðminjasöfnum meðtöldum, verið griðastaður menntamanna og ríkra einstaklinga. Þetta var ekki að undra, þar sem almenn menntun í öllum löndum átti enn langt í land að verða veruleiki. En það, sem kom mönnum mest á óvart, var áhugi hins óupplýsta al- mennings lægri stéttanna á listmun- um og iðnaðarvarningi. Hin nýstofn- uðu járnbrautarfélög voru fljót að bregða við og notfæra sér þennan áhuga með því að stofna til ódýrra sýninga á hlutum alls staðar að úr Bretlandi. Albert prins gerði það að kröfu sinni, að öll skólabörn í Lond- on færu á heimssýninguna. Það virt- ist því fullkomlega rökrétt að láta þau 186.000 sterlingspund, sem feng- izt höfðu í hreinan ágóða af sýn- ingunni, renna til stofnunar fjöl- margra safna fyrir almenning. Og þannig urðu til mörg hinna merk- ustu safna nútímans, sem laða til sín þúsundir manna árlega hvaðan- æva aff úr heiminum. Frá þessum tíma hefur sambandið milli heimssýninga og safna orðið nánara. Sérlega athyglisvert er það fyrirkomulag, sem stundum hefur verið haft á, að byggja varanleg hús fyrir heimssýningar með það í huga að nota þau síðan fyrir söfn. Sum af beztu söfnum Bandaríkjanna hafa orðið til með þessum hætti, nægir að geta til dæmis Vísinda- og iðn- aðarsafnsins í Chicago _og Borgar- listasafnsins í St. Louis. Ýmis vanda- mál, sem fram komu í sambandi við fyrirkomulag og undirbúning heims- sýninga, urðu líka til þess að gera samvinnu safnstjórna og þeirra, sem stóðu að heimssýningum nánari. Eft- ir lokun Parísar-heimssýningarinn- ar árið 1867, var til dæmis ákveðið að byggja varanlegt hús yfir sýningargripina, sem þar voru, til þess að fólki gæfist betur kostur á að sjá þá. Yfirmenn þessara mála sáu það réttilega, að til þess að bera eitthvað raunverulogt úr býtum við slíkar sýningar, þurfti almenningur nteiri tíma og næði en unnt var, ef hlutimir hyrfu af sjónarsviðinu um leið og heimssýningunni lyki. Þessi viðleitni leiddi ótvírætt til vísinda- og iðnaðarsafna síðari tíma, en jafnframt kom fram gagnrýni á eðli heimssýninga og gildi þeirra. Hinar sífelldu sýningar, sem helgað- ar voru síbættum iðnaðarvarningi, urðu fyrir skarpri gagnrýni, og var því haldið fram af sumum, að þær væru í raun réttri lítt menntandi. Með tilliti til þessarar gagn- rýni var sett upp deild í Parísar- sýningunni, sem sýna skyldi „sögu vinnunnar." Þessi deild sýndi sögu lista og iðnaðar allt frá frumbernsku mannsins til loka 19. aldarinnar og átti auk þess að túlka „félagsleg og siðferðisleg vandamál" með einhverj- um hætti. Þessar sýningar virðast vera fyr- irrennarar mannfræðilegra sýningar- deilda í söfnum. Og árið 1876 ákváðu þeir, sem höfðu stjórn þessara mála með höndum í Fíladelfíu, að koma á fót sýningu á villtum dýrum til þess að vega upp á móti öllu því flóði véla og iðnaðarsýninga, sem dundi yfir almenning. í þessu skyni var reist bygging, sem var sérstaklega við það miðuð að hýsa sýnishorn spendýra, fugla og fiska í Ameríku. Var þeim fyrir komið með þeim hætti, sem var einkennandi fyrir söfn þessara tíma. — Hvernig var þá fyrirkomulag sýn- ingargripa á söfnum og heimssýning- 786 T I M 1 N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.