Tíminn Sunnudagsblað - 29.08.1965, Side 21

Tíminn Sunnudagsblað - 29.08.1965, Side 21
Dýr á sýningu í Fíladelfíu fyrir aidamótin. þeimi. Þetta þótti mjög æskilegt, því að það verndaði hlutina gegn snert- ingu og hugsanlegum skemmdum. Aukinn áhugi almennings á skreyt- ingarlist hafði í för með sér nýjar hugmyndir í híbýlaprýði. Hin öra iðnaðarþróun hafði fyrst og fremst miðað að fjöldaframleiðslu á hlut- um, sem gerðir voru eftir gömlum hugmyndum. í meira en hálfa öld hafði ekki orðið nein teljandi breyt- ing á gerð húsgagna. Listrænar kröf- ur og fegurðarmat höfðu staðið í stað í þessu tilliti, þótt magn iðnað- arframleiðslunnar ykist stöðugt. En í byrjun aldarinnar komu fram fersk- ar hugmyndir, sem kröfðust endur- mats á þeim eldri, og þess var ekki langt að bíða, að þær færu að setja mör'k sín á ýmiss konar iðnaðarvarn- img — ekki sízt húsgögn. Jafnframt vaknaði tilfinning manna fyrir sögulegri þróun híbýla. Þessi tilfinn- ing leiddi fljótlega af sér nýjar deild- ir í ýmsum sögu- og listasöfnum, þar sem híbýli manna á ýmsum tímum voru dregin fram í dagsljósið. Hús- gögn höfðu sjaldan verið sýnd á söfn- um, en í þaú fáu skipti, sem það hafði verið gert, hafði þeim fremur verið raðað upp líkt og í vöruhús- um. En stundum var þó húsgögnum ýmissa tímabila komið fyrir í sölum stærri safna, en mikið vantaði á, að þau væru sett inn í „raunverulegt" umhverfi. Það var ekki fyrr en með tilkomu almenningssafnanna í Skandinavíu upp úr aldamótunum síðustu, að sýn- ingarherbergi voru sett upp, sem voru nákvæm eftirliking híbýla frá ákveðnum tímabilum. Þar var að finna allt, bæði stórt og smátt, sem hafði fyrirfundizt og einkennt við- komandi tíma. í Norræna safninu í Stokkhólmi taka þessi sýningarher- bergi við hvort af öðru til þess að leiða fram þróun í híbýlaháttum manna einhvern ákveðinn árafjölda, t.d. 10 ár. En í öðrum tilfellum er sýnd saga borðstofunnar alveg frá miðöldum fram til vorra daga: Rétt- irnir standa „rjúkandi" á borðun- um, nákvæmlega eins framreiddir og fyrir 1, 2, 3, 4, öldum. Allt hefur þetta verið gert af svo mikilli vand- virkni, að furðu sætir, og áhorfand- inn kemst ekki hjá því að dást að þessum eftirlíkinga-meisturum safn- Stofa í norska alþýðusafninu í Ósló. anna. Ekki er að undra það, að þess- ar merkilegu eftirlíkingar á híbýl- um manna hafi haft áhrif á uppsetn- ingu safngripa í náttúrugripasöfnum, þótt því megi hins vegar ekki gleyma, að áður höfðu verið gerðar náttúru-eftirlíkingar við uppselningu smáfugla i náttúrugripasöfnum. En vandamálin við slíkar eftirlíkingar voru enn meiri, en við uppsetningu híbýladeilda. Baksviðið var til dæm- is ætíð dálítið erfitt viðureignar Það vildi oft verða óraunverulegt, þótt forgrunnurinn væri í alla staði góð eftirlíking. En með uppfyndingu hins bogadregna baksviðs, sem var mál- að listilega eftir því sem við átti, komu fram þrívíddaráhrif, og þar með voru þessir erfiðleikar úr sög- rlMINN - SUNNUDAGSBLAÐ 789

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.