Tíminn Sunnudagsblað - 23.10.1966, Blaðsíða 7

Tíminn Sunnudagsblað - 23.10.1966, Blaðsíða 7
Álkurnar hérna á myndinni eiga sér bólfestu I Hafnabergl, og þar er þægllegt aS koma ungviSinu á s|ó, þegar þar er komið þroskaskeiði þess, aS ekkl er þörf á lengrl vist I bjarglnu. Ljósmynd: Grétar Eiríksson. Stuttorð frásaga úr álkubyggðínni Við hörmum geirfuglinn, sem galt þess, að hann var bæði mat- armikill og ófleygur. Hann var of- sóttur af því, að hann var gott búsílag, og veiðifíknir menn urðu fengsælli en skyldi sökum þess, að hann gat ekki bjargað sér á flugi. Með kinnroða og eftirsjá megum við minnast þess, að tveim síðustu geirfuglunum var tortímt úti fyrir Reykjanesi 3. júní 1844. En við höfum hálfsystur hans, álkuna, enn á meðal vor eins og prestarnir segja, þegar þeir kom- ast hátíðlega að orði. Og hún er ekki á þvl flæðiskeri stödd, að út- rýming vofi yfir henni, enda er hún fleygur fugl. Heimkynni henn ar eru við strendur norðlægra landa, bæði við Atlantshaf og Kyrrahaf og auk þess í Eystrasaltl, og víða er margt um hana. Svartfuglinn, langvían og stutt- nefjan, er náskyldur henni, er.da svipar álkunni mjög til svartfugla, |i og lifnaðarhættir eru harla líkir. Nefið er þó talsvert sterklegra á álkunni og nokkuð skrautlegra á sumrum með hvítan taum frá auga og fram á nef og hvítar rákir þvert yfir skoltinn. Svo er líka hvít rönd þvert um vænginn. Það eru hreint engar ýkjur, að álkan sé sélegur fugl. Svo segja fróðir menn, að álkan sé greindarfugl, sem hefur tals- vert skipulag á vinnubrögðum sín um. Er þar helzt fært til, að hún stundar nokkurs konar samvinnu- útgerð, þegar hún er í flokkum á veiðislóðum á hafi úti. Þá stinga álkurnar sér í löngum röðum, hver af annarri, í greinilegri sam- vinnu. Það er ekki óáþekkt því, þegar fólk myndar keðju utan um fjárhóp, sem verið að reka í rétt eða kví. Varpstöðvar álkunnar eru í sjáv arbjörgum, svo sem allir munu vita. Þetta eru að jafnaði sömu björgin og svartfuglinn hefur helg að sér. En hún leitar athvarfs dá- lítið ofar en langvían og kýs að búa um sig í glufum og skorum og skútum, ef þess er nokkur kost- ur, því að hún vill helzt geta falið sig. Álkan er með öðrum orðum fugl, sem gjarna vill hafa þak yfir höfuðið. Ungum sínum koma álkurnar sjó áður en þeir eru fleygir orðn- ir. Þegar þeir eru komnir á þriðju eða fjórðu viku, hætta foreldrarn ir að mata unga sinn. Þeir laða hann til þess að steypa sér fram af bjargsyllunni, þegar hann fer að svengja, en bresti hann hug til þess, hrinda þeir honum niður. Hættan er engin, ef sjór er undir, og svo undarlegt sem það virðist slarka þeir einnig heilir á sjó fram, þótt urð sé undir rótum fuglabjargsins. Álkuunga, sem lenti á grjóti, væri þó bráður bani búinn, og þess vegna er það ráð- gáta, hvernig þeir komast óskadd- aðir á sjó, þar sem svo hagar til. t T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 895

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.