Tíminn Sunnudagsblað - 23.10.1966, Blaðsíða 19

Tíminn Sunnudagsblað - 23.10.1966, Blaðsíða 19
vist þessarar vesalings konu. Djöfull- inn var fastur gestur í húsi hennar i hart nær tvö ár eftir dauða manns hennar, þar til loks, að sóknarprest- urinn, Níels Glostrup, frelsaði hana með bænum sínum úr þessum ógnum. En hver bar ábyrgð á öllu þessu? Þetta hlaut að vera verk galdramanns eða galdranornar. Hans heitinn kaupmaður hafði áður en dauða hans bar að, höfðað mál gegn fyrrverandi við- skiptavini sínum, Jóhönnu Tómasar. Hún hafði á sínum tíma reiðzt hon- um fyrir það, að hann hafði keypt bóndabýli, sem hún sjálf hafði viljað eignazt, og heitið honum ógæfu fyrir. Af þessum ástæðum, og ef til vill öðr um, áleit hann, að hún hefði beint hinum vonda inn í hús hans. Þessi kona og önnur, Kristín smiðs koma, voru teknar höndum árið 1812, yfirheyrðar og píndar, þar til þær játuðu báðar sekt sína. Þessar ann- ars ráðsettu konur játuðu, þegar þær voru beittar hörðum pyndingum, að þær hefðu hitzt dag nokkurn við þorpsbrunninn og sært djöfullinn upp úr honum 1 iíki halaskelltrar rottu. í annað skipti höfðu þær ásamt nokkrum konum öðrum sært djöful- inn upp úr á utan við þorpið og farið með hann inn í hús Hans bartskera. Þetta hafði þó ekki gengið erfið- leikalaust, því að sá vondi hafði hæðzt að nornunum fyrir, að þær höfðu ekki horn eins og hann, og þess vegna hafði hann ekki viljað fylgja þeim. En ein kvennanna hafði þá gripið til þess ráðs að setja pott á höfuð sér. Hafði hún síðan sagt við djöfulinn, að hefði hann tvö horn, hefði hún þrjú. Þá hafði djöfullinn slegizt í fylgd með þeim í líki rottu. Við réttarhöldin var meðal annars upplýst, að drengur, sem var haldinn djöflinum, hafði sagt í hvert sinn, sem Jóhanna Tómasar gekk fram hjá hon um: „Þarna fer frú mín, þarna fer frú mín.“ Enn fremur hafði hinn vondi talað þessi orð í gegnum munn barnsins: „Látið frú mína, Jóhönnú Tómasar í Bygggörðum b^enna á báli.“ Meðan Jóhanna var í fangelsínu, hefur hún auðsjáanlega talað við sjálfa sig fyrir áhrif játninganna, sem þvingaðar voru af henni. Kona nokk- ur, Anna Símonardóttir, hafði heyrt hana segja, þegar hún hleraði við fangelsisdyrnar: „Þú hefur fært mig frá heimili mínu í þetta skítuga svart- hol. Því vil ég ekkert eiga saman við þig að sælda.“ Báðar konurnar voru dæmdar til að brenna á báli. En þær voru ekki hinar einu: Á árunum, sem fóru í höncf, voru prestar bæjarins og héraðanna umhverfis önnum kafnir við að koma upp um galdranornir, og áður en langt um leið, var nornaklefinn í ráð- húsinu I Köge fullur. Þrettán konur T f M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ fylgdu þessum tveim á bálið vegna þessa máls. Aðeins einni, af þeim, sem ákærðar voru, tókst að bjarga lífi sínu með flótta. — En loks komst kyrrð á í húsi kaupmannsekkjunnar . . . III. Síðara galdramálið, sem hér verður fjallað um, gerðist árið 1641 í Rípa- kaupstað. Á móts við ráðhús bæjar- ins I Sönderports-götu gefur enn að líta inngreypta plötu á gömlu húsi, sem sett var þar til minningar um þetta galdramál. Þar stendur: „Hér bjó Lárus Spliid klæðskeri, en vesa- lings kona hans, Maren, var brennd fyrir galdra á Gálgabakka við Rípa- hinn 9. nóvember 1641.“ Um þetta dómsmorð hafa margar bækur verið skrifaðar, bæði fyrr og síðar, og hefur Kristján 4. Danakon- ungur ekki glæst nafn sitt með því að undirrita þennan svívirðilega dauðadóm. Maren Tómasdóttir giftist velvirt- um og æruverðugum klæðskera og veitingamanni, Lárusi Spliid. Þau voru bæði mjög dugleg og komust vel áfram efnalega. í veitingastofuna, sem þau ráku, kom heiðarlegt fólk af almúgaættum, en líka kom fyrir, að þangað slæddust menn af verra taginu. Meðal þeirra síðarnefndu var maður að nafni Diðrik, sem var ölkær mjög. Ilann stundaði sömu iðn og Lárus, en vegnaði ekki eins vel og öfundaðist við hann. Honum féll enn síður við hina orðhvössu konu Lárus- ar. Árið 1637 lá Diðrik sjúkur, og hinn 10. marz kastaði ’iann upp slímkenndu hlaupi, sem samkvæmt lýsingu konu hans og vinkvenna hennár „hljóp um í koppnum eins og það væri lifandi." Næsta hálfan mánuð var Diðrik mál- laus og lamaður. Og meðan hann lá og hugleiddi hin grimmu örlög sín, kom honum í hug, að fyrir þrettán árum hafði Maren heitið honum óham ingju. Hann mundi þó ekki í hvaða sambandi hún hafði heitzt við hann. Hann komst að þeirri niðurstöðu, að hún hlyti að vera völd að sjúkdómi hans. Hún hlaul að hafa sykt hann með göldrum, og augljóslega var það hún, sem hafði í tíu daga haldið sig í stofu hans og rótað þar ásamt öðr- um konum. Tvær þeirra höfðu haldið höndum hans, en hin þriðja, sem hafði útlit Marenar Spliid, hafði lagzt ofan á hann, rifið upp munn hans, og blásið niður í hálsinn á honum. Síðan hafði hún tekið • sk'' og þrýst honum svo fast að munni hans, að honum lá við köfnun. Nágrannakonur Diðriks fóru þegar til lénsmannsins, sýndu honum hið slímkennda hlaup og sögðu honum, hvað gerzt hafði. Lénsmaðurinn, Albert Skeel, krafðist þess, að kirkj- unnar menn í bænum, létu í Ijós 907 i

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.