Tíminn Sunnudagsblað - 23.10.1966, Blaðsíða 18

Tíminn Sunnudagsblað - 23.10.1966, Blaðsíða 18
Hin guðhrædda kona, Anna bartskerans, biSur til guðs, sitjandl á rúmi barna sinna. Árar djötulsins i hverju horni. rannsókn leiddi í ljós, að svo var ekki. Var nú úr vöndu að ráða. Skömmu síðar sá hin óttáslegna kona kaupmannsins utan við hlið húss síns furðulegt skrímsl, sem líktist einna helzt risavöxnum froski með hænufætur. Hún kallaði skelfingu lostin á fólk sér til hjálpar, en þegar það kom á vettvang, var skrímslið horfið. Nú vildi svo til, að kaupmað- urinn þurfti að taka sér ferð á hend- ur, og olli það konu hans miklum ótta, þar sem ekki voru aðrir í hús- inu auk hennar en tólf ára drengur. Ótti hennar reyndist ekki ástæðulaus. Kvöld eitt heyrði hún drenginn stynja og æpa, og þegar hún hljóp inn til hans, lá hann með uppglennt augu og var munnur hans samanklemmdur líkt og f krampa. ‘Engin leið var að opna munn hans. Þegar leið á nóttina róaðist hann þó, en stuttu síðar kom hið sama fyrir, og ekki nóg með það: Drengurinn sveif nú um herbergið hálfri annarri alin fyr- ir ofan rúm sitt með útteygða hand- leggi og samanbitnar varir. Að lok- um tókst hinni hugrökku konu að þrýsta honum niður 1 rúmið og róa hann. Þegar hún spurði hann, hvað að amaði, sagði hann, að sá vondi hefði freistað sín. í sama mund og þetta gerðist, hafði eldingu lostið niður í garð kaupmannsins, og drengurinn áleit, að „sá vondi hefði skotið eldi úr hálsi sínum.“ — Næstu daga birt- ist djöfullinn oft í húsi kaupmanns- ins, stundum í hundslíki, stundum í svínslíki. Smám saman tók hinum djöfullegu fyrirbrigðum að fjölga í húsinu. Hund ur kaupmannsins fékk æðiskast og gerði sig Iíklegan til þess að bfta alÞ og alla. Varð að lokum að aflífa skepnuna. Þjónustustúlka í húsinu, fullyrti, að hún hefði séð veru, sem líktist apa, „með augu sem brauðkök- ur og klær sem hænsn,“ og hún hafði æpt, svo að heyrðist út/á torg. Lffið í kaupmannshúsinu var að verða óþolandi, og i neyð sinni leit- aði kaupmannskonan aðstoðar hjá prestinum, herra Jakobi í Nordrup. En förin til prestsins var ekki tíð- indalaus. Djöfullinn reyndi að hefta för hennar á margan hátt. Hann gerði vagninn svo þungan, að hest- arnir gátu ekki dregið hann, og á leiðinni heim brakaði óhugnanlega í vagninum, og Anna kaupmannskona heyrði þrumandi raust hrópa. í skelf- ingu sinni tók hún að syngja sálma, og þá hljóðnaði röddin. Næstu sólarhringar báru með sér enn meiri hörmungar. Fyrstu nóttina eftir að hún sótti prestinn heim, beit djöfullinn í fingur hennar í líki rottu. Að vísu sást ekkert á fingrinum dag- inn eftir, en hún gat ekki beygt hann í mánuð. Nóttina þar á eftir hafði henni fundizt því líkast, að rúm hennar væri fullt af eldi, en þegar hún reis upp úr rúminu, gat hún strax séð, að sá vondi hafði verið þar að verki, því að rúmið var fullt af rottu- skít. Skömmu síðar var eitt af börn- um þeirra hjóna, níu ára drengur, fyrir ásókn. Hann sagði, að eitthvað þyti um líkama sinn og stingi sig. Hinir skynsamari héldu, að drengur- inn væri með njálg. Anna kallaði skelfingu lostin á mann sinn, sem var kominn heim, er þessi atburður átti sér stað. Og þau urðu bæði vitni að því, að drengurinn stóð á höfði i rúm- inu með útbreidda arma. Kostaði mikla fyrirhöfn að koma honum f eðlilegar stellingar í rúminu. En djöfullinn hélt áfram að ásækja hann og þjóta um líkama hans, skaut tungunni út úr munni hans, en blóð- ið seytlaði milli varanna. Fætur hans voru klemmdir þétt saman, svo að fjórir hraustir menn gátu vart kom- ið þeim sundur. Auk þessa spangólaði drengurinn ýmist sem hundur eða galaði sem hani. Þess á mllli varð hann stífur sem teinn. Nú skipaði kaupmaður svo fyrir, að haldið skyldu þrfr bænadagar í húsinu og skyldu bæði menn og skepn ur fasta. Samtímis því báðu bæjarbú- ar og fólk í héruðunum umhverfis til guðs um að lina þjáningar þessa ofsótta fólks. En allt kom fyrir ekki. Þegar þetta hræðilega ástand hafði varað í nokkur ár, andaðist kaup- maðurinn, en fyrirburðirnir héldu áfram. Dag nokkurn, þegar Anna ætl- aði til Kaupmannahafnar, byrjuðu hestarnir fyrir vagni hennar að hntggja og láta öllum illum látum. Varningurinn, sém var á vagninum, hentist í allar áttir. Þegar honum var safnað saman, kom f\ ljós, að hafrasekkur var orðinn svo þungur, að „djöfullinn hlaut að vera í pok- anum“ — eins og ekillinn orðaði það. Og þótt pokinn væri bundinn ramm- lega á vagninn, var hann horfinn við komuna til Kaupmannahafnar. Með þessum hæt.ti og öðrum gerði djöfullinn tilvist sína augljósa i ná- 906 T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.