Tíminn Sunnudagsblað - 13.11.1966, Page 8

Tíminn Sunnudagsblað - 13.11.1966, Page 8
Gausku“ í t>á daga. Að auki á ég Sturlaugs saga starfssama, frá Upp- sölum 1694, Fostbrödrenas Eigils och Asmunds saga, Uppsalir 1693 og Ólafs saga Tryggvasonar eftir Odd Snorrason, Uppsalir 1691. Þá á ég einnig fyrstu útgáfuna af Heims- kringlu á frummálinu, hina svo- nefndu Peringskjöldútgáfu frá Stokk hóimi 1697. Af dönskum fornritaút- gáfum frá sautjándu öld get ég nefnt Noregskonungasögur eða Heims- kringlu, þýdda á dönsku af Peter Clausson. Bókin er gefin út árið 1633 og mun vera langdýrmætust Heims kringluútgáfa, sem ég hef eignazt. Þá má og nefna frumútgáfuna af Snorra Eddu, Kaupmannahöfn 1665- Aftan við Snorra Eddu eru að au«i Völuspá og Hávamál, en þessi kvæði voru gefin út sama árið og af sama imanninum. Þetta er ágætt eintak. Þorsteinn strýkur um höfuð sér. — Ég held, að þá sé allt upptai- ið, sem ég á af sautjándu aldar bók um. U-jú, ég á eina sérkenniiega skruddu að auki. Þorsteinn hleypur hálft í hvoru frá borðinu og nær í rautt hefti í stóru bnoti. Heftið er ekki stóri að blað síðutali, og flestar síðurnar auðar eða leturlitlar rétt eins og hér sé um að ræða nýútkomna tilfinningaljóða bók islenzks öreigaskálds. Nokkrar síður eru og settar rúnaletri. — Þetta er falsritið Historia Hialm ari, sem Sviar gáfu út árið 1700. Þeir töldu sig hafa uppgötvað forn- gauzkt handrit, það er að segja ís- lenzkt handrit, en þegar íslenzkir fræðimenn lásu heftið, varð þeim ljóst, að hér var um tilbúning að ræða og þótti lítið til fræðimennsku Svía koma. Þetta er líkt og með Vín land'skortið. —• Er Vínlandskortið falsað? — Já, ég hygg, að það sé allt tóm vitleysa og skrök. Hann flettir rauðu heftinu. — Þetta er svo sem ekki merkilegt rit í safninu, en það er gaman að eiga það. Hann leggur heftið til hliðar. — Af átjándu aldar bókum á ég gotl safn, einkum af guðsorðabók- um. En ég á einnig nokkuð af nor- rænum fornritaútgáfum. Já, margar fornritaútgáfur frá seinni hluta átj'|ndu aldar. Þar get ég talið til dæpiis Hialmters och Olvers saga, SlokMiólmi 1720, Saga Asmundar, er kailadur er Kappabani, Stokkhólmi 1722, Wilkina saga eller Historien om Kionung Thideriöh af Bern Odh 'hans Kampar, samt Niflunga Sagan, Stokikihólmi 1715, og Sagan.. om Ing- war Widfarne och hans son Sven, Stokkihólmi 1762. Á? Hafnarútgiáfum á ég til dæmis tvæf útgáfur af íslen^in&abók Ara fróða, út-gáfur frá 1733 ÚJ 1744. Þá má einnig nefná HélMkringluut- gáfu frá 1757, það ér ó'nnur útgáfá af þýðingu Peters Ciaussons. Þa á ég fyrstu útgáfuna af Konungsskuggsjá, Sórey, 1768. Af öðrum fomritum, gefnum út í Höfn á 18. öld, eru hér í safninu Víga-Glúmssaga, Khöfn 1786, Eyrbyggja 1787, Gunnlaugs saga Ormstungu, 1775, Orkneyinga saga 1780, Hervarar saga og Heiðreks, 1785 Landnáma, 1774, hin svonefnda SChöningsútgáfa Heimskringlu, sem kom út á árunum 1783 til 1826, öll bundin í alskinn og mjög fallegt ein- tak. Þá á ég Antiquitates Celto- Scandicæ, Khöfn 1786, Aneedötes of Olave the Black, King of Man, 1780, og The Norwegian Account of Haco‘s Expedition against Scotland, 1782. Þá á ég einnig Rímbegluútgáfu frá 1780 og eitthvað fleira. ^ Þetta mun vera það helzta, sem ég á af norrænum fornritaútgáfum frá átjándií öld. Lesendum mun ef til vill þykja upptalning fornbóka nokkuð þurr og þreytandi, en slíkt var eigi að finna í návist Þorsteins. Þarna hljóp hann, æskumaður á gamals aldri, tíndi bæk- ur úr hillum, bar þær í fanginu að borðinu til mín og hlóð þeim á plöt- una allt í kringum mig, unz ég sat . við skriftir umhiaðinn skræðum líkt og doktor Faustus, skræðum, sem bólgriuðu út af fjölkynngi og forn- um lærdómi. Að sjálfsögðu ber ekki að taka líkinguna sem svo, að Þor- steinn hafi gegnt hlutverki Mefistos. — En eigum við -ekki að víkja til íslands aftur, segi ég við Þorstein, orðinn þjóðrækinn í hinu framandi Fástumhverfi. — Jú, því ekki það, svarar Þor- steinn, þar sem hann stendur og rað-r ar fornritaútgáfum í hillur. — Hvað varð um Skátholtsprent verkið? — Jú . . . Þorsteinn er setztur við borðið gegnt mér. — Þórður Þorláksson, biskup, and aðist árið sextán hundruð níutíu og sjö, og tekur Brynjólfur, sonur hans, við prentsmiðjunni sam- kvæmt erfðaskrá föður síns. Brynjólf- ur var aðeins sextán ára að aldri, er þetta verður, og stóð prentverkið því ónotað um hrið. Þá flytur Brynjólf ur prentverkið að Hlíðarenda í Fljóts hlíð og er ætlun hans að hefja prent un að nýju. En úr því varð þó ekki. Björn Þorleifsson, biskup á Hól- um, sem kvæntur var dótturdóttur Þor láks biskups, reið suður sumarið sautján hundruð og þrjú, keypti prent smiðjuna fyrir fimm hundruð Jóa- kimsdali og flutti hana norður til Hóla samsumars. Þar var prentverk ið svo allt til ársins sautján hundruð níutíu og nfu. Björn lét prenta ýmsar gijðsorða- bæiföf^og »«jcMar aðrar skræbur, og á-ég éína ''ítgáfubók hans, sroriéffraa Jóns lagabók, frá Í707 og 1709, ;-.ú fyrri er van'heil. Björn andaðist árið sautján hundr-. uð og tíu, og tekur þá við Hólastól Steinn Jónsson. Fyrsta verk Steins var að fá Brynjólf Þórðarson tii að afsala sér öllum rétti til prentsmiðj- unnar, og varð prentsmiðjan nú lög- boðin eign Hóladómkirkju. Steinn var lítill skörungur og lét prenta fátt nýrra bóka, en gaf mestmegnis út endurprentanir á gömlu guðsorði, er náð hafði almenningshylli. Af út gáfubókum hans á ég til dæmis átt- undu útgáfu Passíusálmanna frá 1722. Hún er elzta útgáfan, sem ég á af Passíusálmum Hallgrims, cn ég á flestar útgáfur þeirra síðan, og er safnið um einn metri að hillulengd. Þá get ég nefnt Hugvekjur eftir Lass enius, frá 1722, Sjö orða predikauir Vídalíns, frá 1716, Sjö predikanir út af píningarhistoriu eftir Jón Vídal ín, frá 1722, Steinsbiblíu frá 1728, og fjórða útgáfa Grallarans frá 1739, en sú bók er í góðu skinn- bandi með spennum. Svo á ég einnig fyrra bindið af -Húspostillu Jóns Vídalíns í fyrstu útgáfu frá 1718. Það er heldur lélegt eintak. Nú, sitt- hvað fleira gæti ég sýnt þér, en það verður að bíða betri tíma, ég nefni bækurnar af handahófi, auðvitað eru hér í 'safninu ýmsar aðrar bækur, ekki síður fágætar og merkar. Steinn biskup andaðist áriö sai.ijan hundruð þrjátíu og níu og var þá enginn Hólabiskup skipaður í bráð, er Ludvig Harboe setti Skúla Magnús son, þá sýslumann í Skafafirði. sem ráðsmann prentsmiðjunnar. Skúli vann þar mikið og gott starf eins og honum var títt, prentaöi fleiri bæk- ur en áður hafði þekkzt, og stækk- aði upplagið um helming, svo að unnt var að selja bækurnar helmingi ódýr- ar. Af útgáfubókum hans á ég með- al annars Bibiíukjarna eftir Lassen- íus, 1744, Hugvekjur eftir Johan Ger- hardt, 1745, og þýðingu Jóns Vídai- íns á Skylldu, 1744. Árið sautján hundruð fjörutíu og sex var Halldór Brynjólfsson skip aður Hólabiskup, og tók hann þá við stjórn prentsmiðjunnar qg lét prenta -nokkra bæklinga þau sex ár, sem hann lifði biskup. Af bókum frá þeim tíma á ég til að mynda Sigur- hrósshugvekjur eftir séra Jón Jóns- son, 1749, Samúelssálma eftir I-Iall- grím Pétursson, 1747, og Stóru vísna- bókina svonefndu, er heitir Sú garnla Vijsnabok, frá 1748. Eftir fráfall Halldórs tók Björn Markússon við stjórn prentsmiðjunn- ar. Hann var þá varalögmaður og sýslumaður Skagfirðinga, vel gef- inn og áhugasamur maður og vildi bæta hag prentsmiðjunnar með því að hefja útgáfu fornsagna. í því skvni gaf hánn út Margfróða sögu- þæui og Ágætar fommannasögur, 968 T I M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.