Tíminn Sunnudagsblað - 13.11.1966, Page 13

Tíminn Sunnudagsblað - 13.11.1966, Page 13
StaSarfell á Feílsströnd eftir að þar var risinn kvennaskóli sá, sem stofna'öur var meS gjöf Staðarfellshjóna og frú Herdísar. Ljósmynd: Páll Jénsson. Staðarfellsslysið 2. október 1920 er drámatísk hetju- saga, sem bjarma göfuigmennskunnar leggur enn frá. Þess verður lengi minnzt í ljóði og sögu, og minnisvarði hetjunnar, sean fórnaði lífi sínu til að reyna að bjarga öðrum, talar sínu máli. Minnisvarðinn er menntastofnun Dalamanna, Staðarfellsskólinn, reistur á arfleifð, sem gefin var til minningar um son og fósturson, er svo mikið höfðu ástrjki foreldra sinna og fósturforeldra, að gamalt og frægt óðal ættarinnar, Staðarfell í Dölum, með öllum húsum og mannvirkjum var gefið ríkinu til að setja á stofn húsmæðraskóla fyrir verðandi húsfreyjur í héraðinu. Þetta sumar höfðu verið miklir óþurrkar. Gekk hey- skapur seint á Staðarfelli sem víða annars staðar, þvd snjór lá á jörð fram í áttundu viku sumars. Magnús segir svo frá í æviminningum sínum: „Það var vani minn að heyja síðast svonefndar Hjall- eyjar, og setti ég heyið úr þeim í votJhey, ef óþurrk- ar voru,“ Magnús hafði þetta haust, sem undanfarin haust, fjár- kaup fyrir verzlun Tangs og Riis í Stykkis'hólnii. Það var 30. september, að hann fór inn í Hvammssveit þessara erinda og kom ekki aftur fyrr en 2. ofctóber klukkan 10 um kvöldið. Var þá svo ástatt heima á Staðarffelli, að konan lá í rúminu og enginn heima nema ung stúlka, sem kom þangað daginn áður til að vinna að sláturgerð, Ósk Guðfinnsdóttir. Kaupakonan hafði fengið að heimsækja ættingja sína úti á Strönd þennan dag — annars átti hún að fara með hinu fólkinu út í Hjalleyjar. Hún kom ekki heim samdægurs. Hitt fólkið allt hafði farið í eyjarnar — Gestur, Magnús Guðfinns- Son, Þorlelfur Guðmundsson og Sigriíður Guðbrandsdótt- ir, sem annars átti að vera heima, ef kaupakonan hefði ekki brugðið sér burt. Hafði Soífflia t,ekið loforð af Gesti, syni sinum, að vera kominn alftur fyrir myrkur, því að veður var vont, norðaustan rok af landi og sviptibyljir á sundinu. Nu var komið svartamyrkur og enginn kominn heim. Kona bóndans á Harastöðum, Sigríður. Gísladóttir, hafði komið í heimsókn um daginn en var nú farin. Hún hafði séð Staðarfellsfólkið á siglingu út í eyna, en gekk þá í hvarf og varð einskis frekar vísari. Soffíu fannst oft um daginn sem Magnús, fóstursonur hennar, kæmi til hennar og segði, að þeim hefði hlekkzt á. Var hún því mjög uggandi og sorgmædd, þegar maður hennar kom heim. Þegar hann hafði haft tal af konu sinni, lagði hann strax af stað út í myrkrið, og þegar hann kom út á Hjallamel, mætti hann tveim mönnum, sem færðu honum þau tíðindi, að allt fólk hans, er fara átti til eyjanna, hefði drukknað um daginn. „Mér brá við fregnina og vissi ekki af, fyrr en ég lá á melnum við fætur hestsins. Ég stóð svo upp hjálparlaust og beið eftir frekari skýringu á atburðinum." Þannig segir Magnús Friðriksson sjálfur frá í minning um sínum. Magnús lýsir síðan atvikum, er slysið varð. En ég kýs heldur að segja fyrst frá öðrum atburðum á þessum slóðum, er ég hef aflað mér um heimilda hjá fólki því, er gerla má um þetta vita. Það er þá fyrst frá því að segja, að um hádegisbilið nálægt háflæði lagði Staðarfellsfólkið af stað frá Hjalla- nesi á báti og setti upp segl, en sviptibýljir gengu frá landinu og mátti illa vita, hvar niður sló. Þetta er ör- stutt leið, og mun ekki fremur venju hafa verið sett seglfesta í bátinn. í sama mund og siglingin hófst, komu húsfreyjan á Harastöðum og Guðjón, sonur henn- ar, á Hjallanesið. Þau voru á leið að Staðarfelli eða réttara sagt konan, en sonur hennar sneri við á Hjalla- nesinu eða litlu síðar. Bæði sáu þau bátinn á siglingu, áður en þau fóru í hvarf, þar sem landslagið hefti út sýn. En eftir það sést ekki fram á sundið milli eyj- anna alta leið að Staðarfelli. T f M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 97»

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.