Tíminn Sunnudagsblað - 13.11.1966, Page 20

Tíminn Sunnudagsblað - 13.11.1966, Page 20
íu um 1890, og svo var einnig víða í Vestur-Evrópu. Trúin á.djöfla og anda jókst mjög í svartadauða. Slík trú var mjög líf seig. Ýmsir álitu, að illir andar or- sökuðu pestir. Marteinn Lúter taldi að „illir andar eitruðu loftið eða eitr uðu líkami fólks á yfirskilvitlegan hátt.“ Sú trú, að loftið væri eitrað dafnaði víðar. Það kemur fram í ís- lenzkum arfsögnum frá svartadauða, að eitruð þoka lægi yfir landinu, og hægt væri að bjarga sér undan plág- unni með því að flýja á fjöll. Sams konar trú var ríkjandi á ýmsum svæð um í Evrópu og einnig í Kína. And- arnir birtust stundum eins og blár logi, sem flaug um loftið, og blár logi léki oft um pestarsjúkt fólk og lík. Sumir reyndu að meina þessum bláa andaloga inngöngu í hús sín með því að strengja þræði fyrir glugga og dyr. Einnig voru gerðar myndir af pestinni og myndin síðan brennd á almannafæri. Stundum var myndin einnjg bannfærð á torgum eða í kirkj um. Plágan var þá oft í líki biksvarts manns, ríðandi á svörtum hesti eða siglandi á svörtum báti. AHs konar sögur gengu um ferðir svartadauða. Sumir sögðu, að góðir og illir andar færu um löndin. Góðu andarnir voru vopnaðir sverði, en hinir illu spjóti. Ef högg heyrðust, boðaði það feigð jafnmargra og höggin voru. Stund- um fór pestin um í gervi manns, sem kynnti sig sem dauðann og sagði fyrir lát manna. Fólk lifði í stöðugum ótta á þess- um árum, bæði við farsóttir, styrj- aldir og hungur, en mest skelfdust menn svartadauða. Tákn og stórmerki urðu oftast til þess að vara menn við voveiflegum atburðum. Einkum tóku menn mark á halastjörnum og afstöðu himin- tungla. En halastjörnurnar voru ískyggilegastar. Frá 1298 til 1314 sá- ust sjö stórar halastjörnur. Síðar á 14. og 15. öld fjölgaði þeim mjög, stundum sáust þær ár eftir ár. Sumir töldu halastjörnur vera nokkurs kon- ar viðvörunarbréf guðs til mannkyns ins. Skömmu áður en svartidauði barst til Evrópu sáu menn óhugnan- lega halastjörnu, sem virtist bik- svört. Trú manna á þessi sveimandi himintungl var svo sterk, að ekki þýddi að hrófia ið henni. Það var ekki fyrr en löngu síðar, að menn tóku að efast um spádómsgildi þeirra. í íslenzkum' annálúm er alltaf getið um „kómetur," ef sUkar sjást, og það er ekki fyrr en síðast á 18- öld, að annálahöfundar taka að efast um þýð ingu þeirra- Sveinn lögmaður getur þess við eitt árið, þegar ýmis stór- menni létust, að „þá hafi enginn kó- meti verið svo artigur að sýna sig.“ Margvísleg tákn urðu fyrir piág- una í Evrópu. 20. desember 1348 sáu menn eldsúlu upp af páfahöllinni í Læknir og sióklingor — svipmynd úr plágunni. SIGLAUGUR BRYNLEIFSSON Lengi vel var sú skoðun ríkjandi, að plágan væri refsivöndur guða eða guðs á syndum spillt mannkyn. Þessi skoðun var ekki aðeins drottnandi meðal almennings, heldur einnig meðal lækna og lærðra manna. „Plága guðs“ var annað nafn á pest- inni. Slík plága va á allan hátt rétt- mæt og nauðsynleg og sannaði, að mannkynið lifði í ónáð guðs- Þetta ÖNNUR GREIN jók ekki lítið hryllinginn. Guð hafði yfirgefið mannkynið og því gerðist það, að víða magnaðist hjátrú, og forn ir siðir voru teknir upp, ef verða mætti mönnum þeim til bjargar, sem guð hafði yfirgefið. Ýmis konar hjá- trú blómgaðist, þegar bráðar farsótt- ir gengu — „fáfróður almúginn hneigðist til forns óvana,“ eins og klerkar þeirra tíma orðuðu það. Sögur eru rm, að óttafullir þorps- búar hafi tekið upp þann sið að plægja rás umhverfis þorp sín, til þess að bægja frá illum öndum. Trú- in á plógfarið og verndarmátt þess ríkti enn í Suður-Rússlandi og Síber- 980 T í M I N N - SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.