Tíminn Sunnudagsblað - 12.02.1967, Blaðsíða 7

Tíminn Sunnudagsblað - 12.02.1967, Blaðsíða 7
lokaður mestan tíma árs. Augljóst er því, að ekkert getur til hlítar bjargað samgöngum Skaftfell- inga í fyrstu eftir Kötlugos, annað en flug. Perðir yfir Mýrdalssand eru nú allar á bílum. Þetta fóru menn áður á hestum eða gangandi. Nokkur dæmi eru þess, að menn komust á hestum úndan hlaupi á nálæga hóla eða hæðir Bil- unum verður ekki eins auðveld- lega vikið um vegleysur og torfær ur. Saga er um það, að hesti var riðið undan hlaupi suður í Hjör- leifshöfða. Slapp maðurinn naum- lega og orti um það vísú þessa: Frá því neyðar flóði ég valt fram hjá Hreiðurnesi (aðrir segja: heiðursflesi). Þarna reið ég heldur hratt, hjá mér skreið vel Blesi. Þá munaði mjóu, að tveir vinnu menn Sveins Sveinssonar í Ásum • (síðar Fossi) lentu í hlaupinu 1918. Þeir fóru út yfir Sand með vagna lest. Húsbóndi þeirra, Sveinn í Ásum, bað þá nega dvöl hafa i Hafursey, svo að þeim entist tími til að fá út vörur um kvöldið fyrir T I M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ lokunartima verzlana. Svo ótrúlegt sem það má þykja, fóru þeir yfir Múlakvísl, án gruns um að hlaup væri á leiðinni, fáum mínútum áður en það kom og fyllti far- veginn. Jóhann Pálsson í Hrísnesi var á leið suður í Álftaver og kominn vestur yfir Hólmsárbrú, og nokk- urn spöl lengra. Þegar hann varð hlaupsins var, hljóp hann Þ'l brúir innar sem hann mátti komast. Hafði hlaupið þá náð brúnni, en Jóhann slapp þó yfir áður en hana tók af. Hundur var á hælum hon um á brúnni, en lenti þó í hlaup- inu. Hér voru örlög ráðin á einu augnabliki í síðasta Kötlugosi 1918 mátti litlu muna að kona í Álftaveri lenti í hlaupinu. Hún bjóst að heiman um morguninn daginn sama og Katla kom. Ferðinni var heitið á fjöru í leit að tunnu, sem vantaði á sláturtíðinni. Hross voru ekki heimavið, utan tryppi fjögra vetra, dálítið bandvant. Tekur hún það, leggur á það, reiðing og gengur. Á leið sinni hittir hún Gisla Magnússon hreppstjóra í Norðurhjálsigu. Hann segir henni þau góðu tíðindi, að nú sé lokið stríðinu, er geisaði — heimstpyrj- öldin fyrri. Heldur kerla síðan ferð sinni áfram og má lengi leita á fjörunni, unz hún finnur tunnu við hæfi. Kemur hún á hana böndum, gerir sila og hefur til klakks, en á móti hengir hún reka 'viðardrumb. Tunnan fór illa á •klakk og heimferðin gekk seinlega. •Gekk samt, þótt hægt færi og •drjúgan spöl hafði hún að baki, •þegar hún fór að heyra undar- ■legan nið í norðurátt, og jafnframt ■veitti hún því athygli, að ský nokkuð tók að brei^ast yfir Mýr- dalsjökul austanverðan. Heldur þótti henni nú útlitið gerast ó- hugnanlegt og kemur henni í hug saga móður sinnar, að eftir mikið stríð komi ævinlega heims endir, minnug samtalsins við ‘Gísla Magnússon um morguninn. Felur sig þá guði sínum og heldur síðan ótrauð með flutning sinn. Er hún nálgast bæi, sér hún, að fólk allt hefur hópazt á hæstu hæðir í túnunum, og þykir henni furðulegt. Fátt var karlmanna heima, sumir þeirra voru á afrétti og aðrir að heiman farnir að taka á móti safninu, sem von var á um daginn. En nú fór annað að vaida erfið- leikum framar en tunnan. Vatn 127

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.