Tíminn Sunnudagsblað - 12.02.1967, Page 12

Tíminn Sunnudagsblað - 12.02.1967, Page 12
Teikning eftir simpansann Bellu, einhver skemmtilegasta mynd, sem api hefur gert. MYNDLIST APANNA Myndir eftir apa hafa ósjaldan verið settar á málverkasýningar, og þá hefur stöku sinnum borið við, að iistfræðingar - hafa orðið sér eftirminnilega til athlægis með því að hæla apamyndunum á hvert reipi, grunlausir um höfundinn. Þeir, sem í slíka gildru ganga, eiga að jafnaði ekki sjö dagana sæla fyrst á eftir, þar eð vakinn er sá grunur, að ekki sé allt með felldu um skynbragð þeirra á list- ræn efni. Við skulum þó láta slíkt liggja á milli hluta. Aftur á móti kynni einhverjum að leika forvitni á því, hvernig þessi apamálverk eru til orðin og hvaða listrænum hæfileikum vísindamenn telja ap- ana búna. Fyrsti apinn, sem menn vita, að dregið hafi blýantsStrik á blað, var rússneskur simpansi, sem kallaður var Jonni. Hófust teikningar hans árið 1913 og voru liður í sálfræði- legri rannsókn, er þá fóru fram. Rússnesk kona, Nadjeteva Kohts, fylgdist vandlega með broskaferli hans árin 1913—1916, og allmörg- um árum síðar, 1925—1929, rann- sakaði hún á sama hátt Þróun í myndagerð ungs sonar síns. Niður- stöður þessara rannsóknar voru þó ekki birtar fyrr en 1935. En þáyoru margir farnir að rannsaka mynda- gerð apa. Upp úr 1930 tóku bandarísk hjón, hin nafnkunnu Kelloggshjón, til sín simpansa, sem kominn var á áttunda mánuð. Þennan simpansa létu þau síðan alast upo með tíu mánaða gömlum syni sínum næstu níu mánaða. Fylgzt var með þeim dag hvern, apanum og drengnum, og þroskaferli þeirra lýst vandlega. Meðal þrauta, sem þeir voru látnir inna af höndum, voru teikningar Þessi api nefndist Guja. Þær athuganir, sem gerðar voru á athöfnum Jonna og Guju, vöktu fyrst eftirtekt manna á því, að apar gátu dregið strik á pappír með blýanti, ef þeim var einu sinni sýnt, hvernig þeir áttu að fara að því. Bæði Jonna og Guju hafði upp- haflega orðið að kenna að draga blýantsstrikin, en sonur Kelloggs- hjóna, Dónald, hafði sjálfur komizt á lag með að rissa á blað, er honum var fenginn blýantur, rúmlega fjór tán rnánaða gömlurn. í öðru lagi hafði komið ótvírætt fram, að báð- ir aðilar, aparnir og börnin, toku greinilegum framförum við mynda gerðina. Sá var þó munur á, að börn in fóru fljótlega að líkja eftir myndum kennarans og komust inn an tíðar upp á lag með að draga strik, sem greinilega áttu að tákna andlit, en aparnir gátu a.d~ei haíið sig yfir ómyndræn strik. Barnið byrjaði svipað og apinn með fjolda óreglulegra strika, sam skárust á ýmsa vegu. Á þessu skeiði voru teikningar þeirra mjög svipaðar. En seinna urðu þær gerólikar, þótt báðir þroskuðust, því að þróunin stefndi ekki í sömu átt. x4pinn tók að draga bein, feit strik og fylla á milli þeirra með fjölda alls konar þverstrika, er minntu á fleygrúnir, en börnin fóru að líkja eftir því, sem þau sáu, þegar þau voru orð- in tveggja ára. Fyrir heimsstyrjöldina fyrri voru einungis uppi tveir apar, sern kunn Simpansinn Alfa fékk pappírsblað meS hringum og þrihyrningum. Alfa feiknaði venjulega innan í hringana, en færði sig út fyrlr þríhyrningana á alla vegu. 132 llMiNN - SUNNUDAUSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.