Tíminn Sunnudagsblað - 12.02.1967, Síða 9

Tíminn Sunnudagsblað - 12.02.1967, Síða 9
Rætt við Skúða G. Johnsen, formann stúdentaráðs Háskóla íslands Háskóli íslands er ein þeirra stofnana, sem íslendingar státa af á erlendri grund en bakbíta heima fyrir, og jafnvel þó menntaðir út lendingar hafi lokið á háskólann lofsorði og sagt furðu mikla, að hundrað og sjötíu þúsund sálir skuli eiga slíka menntastofnun, hafa íslendingar ætíð þótzt finna nægar ástæður harðskeyttrar gagn rýni. Ekki vil ég leiða getum að réttmæti hennar, en mér er hins vegar ljóst, að margir niðra starf semi háskólans af litlum hyggind um og sumir af óvild jafnvel. Fáir munu hafa meiri afskipti af Háskóla íslands en þeir, sem stunda þar nám, og trúlega kom ast dómar stúdenta næst hinu rétta, þó séu þeir ekki einhlítir og margt greini þá sundur. Þess full viss, að lesendum léki forvitni á að kynnast viðhorfum stúdenta til ýmissa vandamála, sem háskólinn á við að etja, hitti ég Skúla G. Johnsen, stud.med., formann stúdentaráðs, að máli, og fara glefs ur úr samtali okkar hér á eftir. j: Tíðum er látið í veðri vaka, að Háskóli íslands hafi litl um framförum tekið á undanförn um árum. Vöxtur og viðgangur hans enginn. Telur þú einnig svo vera? S: Að mínum dórni er þetta nokkuð fast að orði kveðið, cn eigi að síður felur það í sér mik inn sannleik. Sé miðað við er- lenda háskóla, er Háskóli íslands ung stofnun og hefur varla slitið barnsskónum. Þrátt fyrir ákafa baráttu og mikið starf forráða- manna háskólans í fimmtíu og fimm ár, hefur stækkun og við- gangur skólans ekki verið til sam- ræmis við það, sem ætla mætti um eina háskólann í lýðfrjálsu riki, íslendingum er tamt að Ieggja neikvæðan dóm á flest, sem ís- lenzkt er, að minnsta kosti forðast þeir alla lofmælgi, unz mikils imetinn útlendingur tekur skyndi- 'lega að hrósa því, sem þeir hafa ætíð talið lítils virði. Þetta er ís- lenzku þjóðlífi án efa til bóta, því þeir, sem vandlátir eru á eigin verk, hljóta að vinna vel og dyggi lega og hafa það gott, sem gjört er, — eða er ekki svo! og þó er ísland talið jafnoki ann- arra Norðurlanda í félagslegum efnum. Ástæðu þessa tel ég vera, að ríkisvaldið hefur látið skólann sitja á hakanum með fjárveiting-. ar, jafnvel eftir að íslendingar T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 129

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.