Tíminn Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Tíminn Sunnudagsblað - 12.02.1967, Qupperneq 14

Tíminn Sunnudagsblað - 12.02.1967, Qupperneq 14
Hér ríkir goH samkomuiag, svo sem allir mega sjá, og færi betur, að sambúSin væri hvarvetna slík. — Ljósmynd: Þorsteinn Jósepsson. Góður kunningsskapur Samt verður ekki sagt, a'ð apar njóti virðingar fyrir listsköpun, enda háttalag þeirra við mynda- gerðina ekki til þess fallið. Það verður til dæmilj að vaka yfir því, að þeir éti ekki blýantinn eða burst ann og sötri máninguna. Loks verður að bjarga málverkinu á réttri stundu, því að ella rifi höf- undurinn það sundur sér til gam- ans Tök apa á blýanti og bursta eiu oftast nokkuð gróf og stirðbusa- leg. Kongó lærði þó að halda á blýanti með þumalfingri og vísi- fingri, enda var hann einna fremst- ur snillinganna. Þegar Kongó mál- aði, var komið með sex litaskálar. Ekki fékk hann þó sjálfur að ráðsk ast með litina, heldur fylgdi skál- unum sérstakur eftirlitsmaður, sem rétti honum vota bursrana. Kongó réði því þess vegna e^ki sjálfur, hvaða liti hann fékk í það og það skiptið. Svo var látið heita, að apinn teldi myndina fullgerða, þegar hann nennti ekki lengur að krabba í hana. Hann byrjaði þá veiyulega á nýrri mynd, og var algengast, að hann gerði með þess- um hætti tvær eða þrjár myndir í sömu lotu. an að rauðum lit eða sterkgulum, en minnst var honum gefið um blátt. En það er um hinar litríku myndir apanna að segja, að þar hefur maður haft hönd i bagga um litavalið, þótt sjáifur kysi apinn lit- unum stað á myndinni. Menn geta haft þær skoðanir, sem þeim lízt á, á listrænum hæfi- leikum apa. En eitt verður ekki hrakið: Öpum finnst gaman að mála. Simpansinn Alfa hefur teikn að með blýant í heilan áratug, þótt aldrei hafi hún hlotið nein iaun fyrir teikningar sínar. Aðíérð henn ar er ævinlega hin sama. ef hún fær að ráða: Hún fer með pappirs- blaðið inn að gafli í búrinu, snýr baki að eftirlitsniannimrn og teikn aði af kappi, án þess að skeyta um neitt annað. Þegar hún hef ir lokið teikningunni, rífur hún blað- ið sundur., Hún kærir sig ekki um mat, ef hún sér einhvern með blað og blýant við búrið Þá vill hún teikna, og verkið sjálft ber í sér þá umbun, sem hún fíkist efti". Algengt er, að apar, sem annars eru lundþýðir, bíti hvatskeytlega frá sér, ef þeir eru ónáðaðir við teikningar sínar. samt orðið ólík. Þar kemur fram svipmót einstaklingsins. Tilraunir virðast hafa sýnt, að apar hafa talsvert auga fyrir sam- ræmi, og fullyrða má, að það er ekki tilviljun einni háð, hvar þeir draga strik á pappírsörk eða hvern ig þeir haga þeim. Einmitt á þessu sviði virðast apar börnum miklu fremri. En aldrei hefur apa tekizt að gera mynd, sem telja má eftir- mynd nokkurs hlutar. En skyldu apar finna, hvort mynd er „góð“ eða „slæm“? Með öðrnm orðum: Hafa þeir eitthvert lögmálsbundið fegurðarskyn? Merkileg tilraun hefur verið gerð með apa og krákur. Prentuð voru spjöld, og voru á sumum regluleg tákn og strik, en óregluleg a hin- um. Nú var spjöldunum raðað fyr- ir dýrin, og var þess þá skammt að bíða, að þau færu að hnýsast í þau. Skráð var, hvaða spjöld þau tóku fyrst. Margendurteknar til- raunir sýndu, að allar tegundir af öpum og krákum, er reyndar voru, völdu sér oftar spjöld með reglu- legum táknum en óreglulegum, og oftast var hér verulegur munur á. Hvers vegna fékk Kongó ekki að ráða sjálfur litavalinu? Það var reynt, en gafst illa. Hann.byrjaði sem sé ævinlega á því að steypa öllum litunum saman. Samt var augljóst, að honum þótti mest gam Það hefur komið á daginn að hver apinn, sem iðkar teikningar að staðaldri, tileinkar sér sinn stfl. Reynt hefur verið að láta apa alast upp saman og læra saman að fara með blýant. En verk þeirra hafa 134 T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.