Tíminn Sunnudagsblað - 15.10.1967, Blaðsíða 11

Tíminn Sunnudagsblað - 15.10.1967, Blaðsíða 11
En séu jppeldismálin og skóla- málin í hörmulegu ásigkomulagi, verður slíkt ekki síður sagt um heil brigðismálin. Þar tekur sannarlega i hnúkana. Við skulum til dæmis skyggnast um í Barangwa-sjúkra- húsinu, sem er eitthvað tuttugu éða tuttugu og fimm kílómetra ut- an við Jóhannesarborg, stærstu borg Suður-Afríku. Það er ætlað hverfum, þar sem hálf miljón svartra manna á heima. í þessu sjúkrahúsinu er það regla, að tveir og þrír sjúklingar hvíli í sama rúmi, og samt er iðu- lega búið um fárveikt fólk á stól- um eða það er látið liggja á beru gólfinu. í barnadeildinni er sjúkl- ingunum raðar svo þétt, að fæti verður varla drepið niður á milli þeirra. Daglegt brauð er, að sjúkl- ingar svo máttfarnir, að þeir geta tæpast setið uppréttir, séu látnir fara burt úr sjúkra- húsinu, og enn tíðara er hitt, að sjúklingum sé ekki veitt viðtaka Það eru þrengslin, sem valda þessu hvoru tveggja. Þrifnaði er stórum áfátt, og oft eru legugögnin, bæði dýnur og brekán, flekkótt af storknuðu blóði og vilsu. Læknar í þessu sjúkrahúsi eru bæði hvítir og svartir og sömu- leiðis indverskir. En þeir eru miklu færri en vera bæri í svo stóru sjúkrahúsi, og hið sarna er að segja um hjúkrunarliðið. Þótt margt af þessu fólki leggi sig allt fram fær það ekkí valdið htut- verki sínu við þau skilyrði, sem því eru búin. Skurðlæknar eru til dæmis einungis fjórir, en ættu að .'era sextán, eftir þvi sem sjálf- sagt þykir í sjúkrahúsum, þar sem sæmilaga er fyrir starfsliði séð. Sömu sögu er að segja úr öllum deildum þess. Miklum fjölda fólks, bæði börnum og fullorðnum, eru búnar þjáningar, sem unnt væri að firra það, ef betur væri búið í haginn, og dag hvern deyja þarna manneskjur, sem bjarga mætti, ef" dálítið meira væri lagt í sölurnar. Þetta sjúkrahús er ekke-f ’ins- dæmi. Það er bva‘t ’ ” ■' l- Framhald á 910. siðu. Efrl mynd: Tvær sjúkar konur í sama rúmi og ein á stólum. Neðri mynd: Barnadeild sjúkrahússins, þar sem fársjúk og dauð- vona börn liggja innan um önnur vel hress í einni kös á gólfunum. TÍMINN - SUNNUDAGSBLAtt 899

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.