Tíminn Sunnudagsblað - 15.10.1967, Page 14

Tíminn Sunnudagsblað - 15.10.1967, Page 14
Sú kirsja, sem tekin var niður árið 1914, hefði þá ekki áít að vera nema í kringum fjörutíu ára gömul. En hún btr ýmis merki þess að vera miklu eldri. Hún stóð laus á steinarusli, sem átti að heita grunnur, en til að styrkja hana í norðanveðrum, sem þarna eru mjög hörð, voru þrjú mikil tré við suðurvegg frá þakskeggi með viðspyrnu í jörð niðri sem næst fimm eða sex metra frá kirkju- vegg. 4. Upp úr aldamótum hafði um nokkurt árabil búið á Leirá Þórð- ur Þórðirson, sonur Þórðar Þor- steinssonar frá Hurðarbaki í Reyk- holtsdal og konu hans. Rannveigar Kolbeinsdóttur frá Hofstöðum í Hálsasveit. Þau hjón, Þórður og Rannveig, munu hafa flutzt að Leirá árið 1869, eftir lát Jóns Thoroddsens, skálds og sýslu- manns, sem andaðist þar 1868 og er þar graíinn. Þórður Þorsteinsson var skap- maður mikill og héraðsríkur höfð- ingi og undan samtíð sinni um margt, svo sem sést á þvi, að hann byggði barnaskóia á Leirá og réð þangað kennara. Hús þetta, sem var járnvarið timburhús, stóð fram yfir aldamót. Það var einn- ig notað sem þinghús. Þórður var ferðamaður mikill og lét sér, að sögn, fátt mannlegt óviðkomandi. Hann var og drykkjumaður all- mikill. Þórður mun hafa andazt fyrir 1890, og mætti margt um hann rita, ef kunnátta væri til. Rannveig, kona Þórðar, var bú- , forkur og fésýslukona mikil. Hún i var nú orðin blind og mjög öldr- uð. Hún dvaldist á Leirá næstu ár- ! in, en seinustu ár ævi sinnar var j hún hjá vinum sínum og nágrönn- 1 um, Höllu Árnadóttur og Böðvari j Sigurðssyni í Vogatungu, er þann garð gerðu frægan urri fjölda ára. Þar andaðist þessi kona, sem Iengi hafði stjórnað búi á einu mesta höfuðbóli landsins, þá orðin alger einstæðingur. Þrjá sonu höfðu Þórð ur og Rannveig eignazt, en þeir voru allir horfnir henni — einn dáinn, en tveir farnir til Vestur- I heims. 5. Eins og áður sagði tók Þórður i Þórðarson við búi á Leirá eftir föður sinn. Kona hans var Guðný Stefánsdóttir, stórbónda og hrepp- stjóra á Hvítanesi i Skilmanna- hreppi. Áttu þau þrjú börn, tvær stúlkur o-g einn dreng, og má skjóta því hér inn, að sonurinn er hinn kunai dugnaðar- og mann- kostamaður, Þórður Þ. Þórðarson, sem um langt skeið hefur verið bílstjóri og bílaútgerðarmaður á Akranesi. Bændum þeim, sem bjuggu á stórum og mannfrekum jörðum upp úr aldamótunum síðustu, duld ist ekki, að þjóðlífsbreyting var í aðsigi. Skútuöldin stóð hvað hæst, fiskveiðar jukust og útgerð færð- ist í aukana. Ungt fólk var farið að^setjast að við sjóinn, flóttinn úr sveitunum byrjaður, og gott vinnu- fólk gerðist torfengið. Þórður á Leira sá hvert stefndi. Hann þurfti margt og dugandi fólk, og sjálfur hafði hann ýmsu að sinna utan heimilis, svo sem hrossakaupum og öðru fleira. Hon um var því farið að detta í hug að selja jörðina, en til þess rnátti hann þó vart hugsa. Svo var mað- ur og staður samgróið, bæði í vit- und hans sjálfs og annarra, að Þórður á Leirá vildi hann vera til síðasta dags,- 6. Sumarið 1905 leið, blítt og ör- látt. Gjafmildi þess var þó því háð, að allir legðu sig fram eins og orkan leyfði þrettán til fjórtán klukkustundir á dag í níu eða tíu vikur. Kaupafólkið hélt úr sveit- inni til síns heima, sólbrúnt og vinnulúið, en ánægt flest. Sjó- menn komu af sumarvertíð á skút- um og öðrum skipum, og það varð fönguður heima. En stundum kom þó sorgin heim í Iitlu og fátæklegu húsin í stað ástvinanna, og svo var þetta hau'st eins og oft hefur viljað við brenna í þessu fámenna landi. Hörmuleg frétt barst frá manni til manns: Bátur hefur farizt á leið frá Reykjavík til Akraness með ellefu manns, allt ungt fólk, þar af fimm systkini frá sama heimili og þrír bræður frá öðru. Um vetnrnætur fóru þau Leirár- hjón til Reykjavíkur. Á þessum ár- um bárust ekki daglegar fregnir af einum né neinum, sem í fjarlægð var farinn, því að þá var síminn ekki enn komin, blöðin báru9t einungis einu sinni í mánuði og allar ferðir voru erfiðar og tíma- frekar. Þó gátu fréttir borizt furðu- fljótt, einkum stórfréttir. Og nú flaug um sveitina einhvern dag- Inn fyrst í nóvembermánuði sú fregn, sem öllum þótti mikil og dapurleg: Leirá var seld og Þórð- ur dáinn. Hann hafði andazt að- faranótt fyrsta dags mánaðarins, en undirritað sölusamninginn dag- inn áður. Menn setti hljóða við þessi miklu og óvæntu tíðindi, ekki ein- ungis í sveitinni hans, heldur öllu Borgarfjarðarhéraði og miklu víð- ar. Þórður á Leirá var fallinn í valinn fyrir aldur fram, þekktur maður og vinsæll, stórbrotinn maður og örgeðja, en góður dreng- ur, sem allir söknuðu. Lík hans var flutt upp að Leirá og jarðað þar að viðstöddu miklu fjölmenni. 7. Skammdegið grúfir yfir landinu. í Iágreistum bæjum situr heimilis- fólkið við vinnu sína við Iítið olíu- lampaljós, sem sumum finnst bæði stórt og bjart. Það er fólkið, sem man enn þá stund, er kveikt var á fyrsta oliulampanum, sem kom á heimili þess. f þessum Iágu og frumstæðu mannabústöðum, sem voru athvarf fólks og skjól fram á öldina okkar, var hið fiöl- breyttasta athafnalíf. Tóvinnan -at í fyrirrúmi, gekk fyrir öllu. Sú kona, sem ekki vann ullina, var illa stödd, og þarf ekki frekar að lýsa því, sem aðhefzt var í íslenzku baðstofunum, því að það hafa majgir gert. Árið 1906 gekk í garð: „Hvað boðar nýjárs blessuð sól?“ Jú, hún hækkaði á löfti, og hugur manna léttist, er birtan færðist yfir. Ungir menn og vaskir kvöddu heimili sín og héldu í ver- ið. Einnig fátækir bændur kveðja konu og börn, og veiku liði er falin forsjá heimilisins. En hafið kringum fsland hefur sjaldan skil- að aftur öllum þeim mönnum, sem á það hafa sótt. Hvort tveggja var, að skipakostur var veikur og ófull- kominn og veðrabrigði snögg og óvænt. Ég ætla ekki að Iiafa um það mörg orð: Árið 1906 er talið einn mesta sjóslysaár á þessari öld. Hundrað og tuttugu til hundrað og þrjátíu menn hurfu í djúp hafs- ins, þar af um sjötíu á einum degi eða tveim. Sorgin grúfðj yfir fá- mennri O'g fátækri þjóð. En nú var vorið í nánd. Sólin hækkaði göngu sína með hverjum degi. Samt lömdu norðanstormarn- 902 TÍMINN - SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.