Tíminn Sunnudagsblað - 09.06.1968, Side 13

Tíminn Sunnudagsblað - 09.06.1968, Side 13
„Éjgáieítirekki prósi, góður baís.“ Níels bóndi í Húsey, sem var tóttarnefndarmaður í sinni sve»t, fannst sér skylt að bera friðavnrð á milli kleirkanna og mælti: „Hann sagði prófastur, en af' því hann hljóp of hratt á orðinu heyrð- ist yður hann segja bara prósi." Þetta sáttaorð lét séra Jakob sér vel líka, og þar með var sú miskltíð úr sögunni. Má með sanni segja, að þetta prósa-nafn væri eini skugginn, sem bar á sól heiðrikju og samlyndis á þessu glaða ferða- lagi frá upphafi til enda. Og séra Sigurjón hóf sönginn að nýju: ,Við svala lind um sumar- stund“ og þrítók endinn í seinna erindinu. .Þú færð mig, færð mig ei.“ Þetta sorglega niðurlag söng hann meira en fulium hálsi og sló taktinn með tóbakshorninu með gríðaráherzlu og var ekki trútt ura að hann lit’ um leið til embættis- bróður síns. spotzkur á svip Þetta var máski sáttasöngur, og von bráðar renndum við í hlaðið á Lindarbrekku. sem var lítið veit- ingahús í Kelduhverfi: Þar réðu ríkjum ung hjón, Indriði Hannesson frá Keldunesi jg kona hans. Ekki leizt mér þessi Indriði mundi vera jafnkræfur til kvenna sem nafni han., heitinn frá Keldunesi kvað hafa verið. ef dæma má eftir vísu einni mergj- aðri, sem kveðin var um eiginleika hans i því efni og heldur um leið nafni hans á loft. þótt annað týn- ist. En vísan er ekki prenthæf, fyrr en þeir tímar koma, að allt verður látið flakka. sem enn er látið liggja í láginni á sJðlegum forsendum. Þarna drukkum við ágætt kaffi og siðan af stað. En ekki höfðum við lengi ekið, er veður tók mjög að versna. enda farið að halla degi. og er upp á Reykjaheiði kom, var þar fyrir samslags veður og á Möðrudals- fjallgörðum nóttina áður: Norð- austan snjókrapahríð með miklum stormi og úrkomu. Á miðri heið- inni, sem er hátt yfir sjó, voru tjöld vegamanna. hálf í kafi af fönn. Hættum við nú að sjá íil vegarins. Snaraðist þá Níels í Hús- ey út og gekk á undan bilnum eins og drottinn forðum, er hann leiddi ísraelsmenn út úr Egypta- landi. Fór Níels þannig á undan bilnum um stund og þræddi fenntan veginn eins og gengi hann eftir kompás, og varð hann fljótt snævi drífinn eins og saltstólpinn í sögum Oyðinga. Hvergr skeikaði þessum hrausta, trausta, yfirlæt- islausa vegvdsi, enda hafði hann marga hildi háð við íslenzk ill- veður meðan hann var vinnum iður í Möðrudal á sínum yngri árum, en þaðan fór hann með þeim vitnisburði Möðrudalsbænda, að hann teldu þeir beztan húskaria meðal þeirra fjölmörgu vinnu- manna er þjónað hefðu þeim Stefáni stórbónda og Jóni óðals- bónda. Um þetta þagði Níels, en sagðist aðeins vera þar í Möðru- dal jafnvelkominn á degi sem nóttu, er við hin kveinkuðum okk- ir við að vekja þar upp nóttma áður. Séra Sigurjón mælti, er hann sá hin hálffenntu vegatjöld, að þess. ara pilta gætu beðið sömu örlög og Reynistaðarbræðra á Kili forð- um og — „skyldum við hraða okk- ur burtu hið bráðasta, svo við yrðum ekki kærð fyrir ]íkráe“, er suður kæmi. En Níels leiddi bi- inn, unz hann steytti á steini í kaffenntri vegarbrúninni, Sprakk þá annar f'iambarðinn. en tjakkur inn og hraustar hendur okkar hófu þegar farskjótann á loft og bættu honum slysið með nýjum skó í stað þess gamla. sem gekk úr leik. Brátt tók heiðinni að halla norð- ur af, og sá að nýju til brautar- innar. Kom þá saltstólpinn inn í bílinn, klakabrynjaður mjög, þvi að allhart frost var. Þar með voru allar okkar vegarþrautir úr sög- unni fyrir fullt og allt, allt til Reykjavíkur. Voru nú allir hressir og himinglaðir, er þeir sáu ofan í dalinn, og byrjaði ég að raula Pílagrímskórinn úr Lóhengrin: „Ó. guði sé lof ég sé niður í dalinn.“ þv»í að Aðaldalurinn teygðist auð- ur fyrir fótum okkar, er klökng- ur og hreggbarinn billinn brunaði ofan hlíðina. Séra Sigurjóni þotri þetta of nátíðlegur heiðarsöngur og kvað, nær að syngja: „Ríðum, riðum, og látum ekki brúðurina biða“. Mun hann þar hafa átt við einhverja himneska brúður, sem biði okkar syðra, er við næðnm kirkjufundi. Séra Jakob var orð inn hraustur og glaður, og þegar séna Sigurión í miðjum brúðar- söngnum dró upp flösku, sem bann hafði geymt til þessa. og rétti að vigslutoróður s’ínum, mæ’t: prófastur: „Hvað er nú þetta?“ Niels varð fyrir svörum- „Þ?ð er rnessuvín - austan úr Hofs- kirkju“. Þá brosti prófastur sínu ljúfasta brosi og mælti: „Það má mig einu gilda, hvað- an gott kernur" — og saup hraust- lega á drykknum. En séra Sigurjón kvað þennan mjöð öllu messuvíni kröftugri, því að þetta væri eldvatn austan úr Rússlandi og kennt við þann sjálf- an Stalín. Þegar allir höfðu „bitið í drykkinn", greip prestur flösku sína, sló með henni takíinn og söng við raust með lagboða: „Ef drepur sorg á dyr hjá mér“, eftir- farandi vísu: Þó drepist rolla úr drullu hér, til dyranna ég glaður fer, ég veit, að Stalín vægir mér, en víkur góðu að þér. Brag þennan kvað hann orð- inn sveitasöng þeirra Tungumanna sumra. eftir að Siggi litli kommú- nisti komst í hreppsnefndina i þeint hreppi, og bætti því við, að kotrassapólítíkin á íslandi hefði oftast riðið beizlislaust. Og iitla snjóbarðabifreiðin skreið út dalinn og lét ekki staðar numið fyrr en úti á Húsavík. Þar renndum við að dvrum veitingahúss Bjarna Bene- diktssonar. Bjarni kom siáflur til dyra, gekí: út á hlað og tók okk- ur opnum örmum að íslenzkum sveitasið. Honum varð að orði, er hann sá klakabrynjaðan bílinn: ..Hafið þið fengið stórhrið a fjöllunum eða hvað?“ Siðan vék hann sér að Níelsi úr Húsev og spurði: „Hvað er á hálsinum á þér, mað- ur?“ „Einhver óþarfi, sem fylgir mér,“ svaraði Níels með hægð, en í æxli því, sem var á hálsi hans. kenndi Níels banagrunar síns, þó að hann ræddi ekki um, og skömmu seinna andaðist hann úr þeim sjú.kdómi, sem erfitt hefur reynzt að lækna. Bjarni bað okkur ganga snarlega í bæ og fá okkur hressingu og síðan næturhvild. Hann leiddi okk- ur siðan til stofu og var okkur, stórhríðarfóikinu, tekið þar eins og pílagrímum, sem eru á ferð til landsins heiga, og borinn heitur matur að vörmu spori. Dóttir Bjarna, frið stúlka og fönguieg, gekk um heina. Inni í stofunni hjá Bjarna sátu bagfræðingur og lög- fræðingur í djúpum legustóium í T I -M B N N - SUNNUBAGSBLAÐ 445

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.