Tíminn Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Tíminn Sunnudagsblað - 09.06.1968, Qupperneq 19

Tíminn Sunnudagsblað - 09.06.1968, Qupperneq 19
aMur, þá Jumaði hann ennþá á í pokahorninu því þreki og kjarki. sem nægði til að bera sigur af' hólmi við hið stríða og kaMa jök- ulvatn. Það sagði Helgi, að þegar Jón náði til hans, hafi fætur sínir ver- ið farnir áð kólna og dofna, og ef hann hefði þurft að vera 10—15 mínútum lengur í vatninu, þá hefði líklega öllu verið lokið fyrir sér. Hesturinn, sem Helgi féll af í fljótið, var mikill fjörhestur, vel alinn, en ofurlítið viðkvæmur Og þegar gjörðin við hnakkinn slitn aði allt í einu, tók klárinn svo snöggt viðbragð, að Helgi kastrð- ist af honum, missti tauminn, en hélt hnakknum. óefað hafa þeir Helgi og Brúnn átt saman, fyrr og síðar, marga yndisstund, þótt miður tækist til í þetta sinn. Þegar við horfum á ólgandi straumvötn belja fram með flúða- nið og fossaföllum, þá minnumst við þess, að sú var tíð, að engm brú var til yfir íslenzku fallvötu- in — nema hesturinn. Á honum hvíMi það hlutverk, um margar aldir, að koma fólkinu lifandi yfir vötnin. Og oft á tíðum, þegar Bakkus var búinn að taka ráðin af manninum, þá var það hestuc- inn, sem með viti sínu og þrek'., bjargaði eiganda sínum heilum heim. Hesturinn er vitur og fagurt dýr, og á að bera heiðursnafnið „þarfasti þjónninn11 á meðan nokk ur hestur er til á íslandi. En því miður er svo komið, í sumum .sveitum í Suður-Þingeyjarsýslu, áð þar er enginn hestur til á mörg- um bæjum, og ekki einu sinni hundur. Að stunda sauðfjárbúskap bæði hestlaus og hundlaus, er ó- þarflega erfitt. Hvernig förum við svo með hestinn okkar? Því betur — þá standa margir hestar að vetrin- um við jötu fulla af góðu fóðri í hlýju húsi og við nærgætna um- önnun. En því roiðar — eiga marg- ir hestar ekkert hús, heldur standa óti, og berja gaddinn í vondum veðrum. Og oft eru hag- bönn, og þá sultur og kannski hor- dauði lokasporið. Það er þungt fyrir þarfasta þjóninn, að taka kaup sitt í slíkum gjaldeyri. Enniþá þyngra setti þó að vera fyrir okk- ur fslendinga, að greiða þjóninum fyrir vinnu sína í slíkri mynt. Við íslendingar höíum ekki efni á því heiðurs okkar vegna, að láta hestinn okkar vera húsvilltan. All- ur sá búpeningur, sem við höf- um undir höndum, er á okkar ábyrgð. Og allur okkar iifandi peningar hefur húsaskjól, nema hesturinn. Hann má þó ekkj und- anskilja. Við ættum að muna gamla húsganginn. Hugsa ég um hestinn minn, honum má ei gleyma. Ég stakk honum hérna áðan inn, eins og ég væri heima. Nú á þessari öld hraðans, þar sem allt þarf að ganga í hvínandi loftinu, er eins og enginn hafi tíma til neins. Margt fólk er hálf- bilað á taugum fyrir þetta óðagot, og á því mjög erfitt með að skapa sér rólega stund til fróunar. Ég held, að hesturinn hafi alltaf gef- ið okkur henbrigðan og réttan hraða. Það er heilsusamleg hress- ing, að sitja á góðum hesti, á blíð- um sumardegi. Að finna þegar hest urinn leikur við taum og njóta hins fjaðurmagnaða og þýða spors. Ég álít að hesturinn hafi oft hjálp- að þreyttu fólkj yfir daglegt strit og bjargað taugum þess. Ég var ungur maður, þegar ég heyrði Kristbjörgu Marteinsdóttur, hús- freyju í Yztafelli segja: „Ef ég er eitthvað slök og lúin, þarf ég oft ekki annað en skreppa bæjarleið á honum Héðni mínum, þá lifna ég öll við.“ Oft hef ég sannreynt sannleika þessara orða hinnar merku konu. Að lokum vil ég segja það, að ég gleymi því aldrei, þegar Jón á Hlíðarenda hleypti sér og hest- inum í beljandi, hamslaust jökul- vatnið. Jón hafði vitið og kjark- inn. Hesturinn styrkleikann og hlýðnina. Þetta var samstillt- ur kraftur manns og hests, sem stefndi að einu marki. Og sigur- launin voru góð: Manni var bjarg- að, sem starfaði eftir þetta í tíu ár, dyggilega fyrir sveit sína og sýslu. T I M I N N *— SUNNUDAGSBLAÐ 451

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.