Tíminn Sunnudagsblað - 23.06.1968, Blaðsíða 13

Tíminn Sunnudagsblað - 23.06.1968, Blaðsíða 13
V^kð í Egilsstaðaþorpi, og enn ók V^igMs okkur. Hafði ég haft ánægju því a‘ö líta á þorpið, sem ber PVí vitni, að þar hefur dugnaður framtak haldizt í hendur. Þorp Petta verður áreiðanlega mesta fyítistöng hins fagra og mikla hér- aðs. Hallfreðarstaðir eru berns'ku- Heimili Eiriks, og ég fæddist ut- an við lækinn í Hallfreðarstaðahjá- kigu. Þaðan fluttist ég þriggja ára fiamall, en var þó búinn að liggja ^ína fyrstu banalegu. En hvergi ajast þar samt spor eftir „lítinn ®ót“. Ætlun oKkar Eiriks var ekki að *etjast um kyrrt, heldur húsvitja ® flestum bæjum í Út-Tungu og ókulsárhlíð. Hjaltastaðarþinghá varð að taka öðrum tökum. Eigi Jþaður i Húsey, yzta bæ i Hróars- tun-gu, von í kærustu á bakkanum handan fljótsins, þá verður sá hin sanii að aka tvö hundruð kílómetra kið til þess að sjá elskuna sina. Hallfreðarstaðir eru mikil jörð, ^nda oft hofðingjasetur. Svo heppi- kga vili til, að varðveitzt hefur Smnnteikning af hinum mikla, kmla bæ, sem þar var með fimm 'Pii fram á hlaðið, og enn eru ^enn á lífi, sem rnuna húsaskip- j*'n þar. þar á ofan er til mvnd af *num. Þarna er Stjörnuhóll og tjörnuleiði, þar sem Stjarna Páls . lafsonar gneggjar við stall með ellum tygjum. Skamrnt frá er leiði anga-Brúns, eins gæðings Páls. Búskapur er mikill á Hallfreð- arstöðum, og þennan morgun heyrði ég, að ég hygg, í öllum þeirn vélum, sem nú þjóna íslenzk- um landíbúnaði. Nóttina áður hafði ég verið á Litla-Bakka. Þar eru enn á lífi fjögur systkin, gamlir æskuvinir. Þar býr einnig tengdasonur annars bóndans. Kannski er þetta gleði- leguir vísir þess, að maðurinn sé meiri félagsvera en margt bendir til, því að nútímaþjóðfélag krefst þess beinlínis, sakir lífsnauðsynjar, að hugurinn hvarfli frá sjónarmið- um seytjándu aldar og úreltum út- úrboruhætti. Fram hjá þessu verð- ur ekki komizt. Meðan ég braut heilann um það, sem var og er á æskuslóðunum. fékk Eiríkur jeppa hjá systursyni sínum til afnota í fimm daga. Líf- ið brosti við okkur. Náttúrlega hefðum við verið fluttir bæ frá bæ, en nú verður förumennska helzt að bera annan svip eu áður fyrr, Og sjá: Nú hófst förin um Hlíðina. Ég skal geta þe9s strax, að hér er ekki unnt að lýsa mönnum og búnaðarháttum. Ég get aðeins drepið á smáatriði, sem hafa orðið mér föst í minni. enda var viðstað- an ekki nema að heilsast og kveðj- ast. Fyrst renndum við heima að Grófarseli. Þar býr Björn Kristj- ánsson, skólabróðir okkar. Þegar að heimreiðinni kom, var þar svo stórt og glæsilegt hlið, að mér datt í hug Gullna hliðið eða h'lið- ið hans Maós, vinar míns. — Björn er orðlagður járnsmiður, þótt ó- lærður sé, ófeilinn og einarður. Kona hans, Magnhildur, er frænka mín, dóttir Stefáns Sig- urðssonar á Sleðbrjóti og Bjargar Sigmundsdóttur frá Gunnhildar- gerði. Ég get ekki stillt mig um að nefna þetta, því að ég hef hvorki séð né heyrt getið glæsi- legra hjóna, nema þá Hannesar Hafsteins og konu hans. Næst komum við að Sleðabrjóts- seli, en þar býr Björn Guðmunds- son, fornvinur minn. Björn er nú sjötíu og fimm ára, en ber aldur- inn hetjulega, þótt mjög sé kvist- aður að ástvinum og frændliði. Sem dæmi um dugnað hans má geta þess, að hann hefur þrisvar húsað jörð sína vegna bruna og nýrrar tækni. Þá var haldið að Fögruhlíð, sem dregur nafn af hinni fallegustu hlíð, sem ég hef séð. Þar býr Sig- urður Guðjónsson, náfrændi minn, ásamt syni sínum. Erindi var í svipinn að láta frænda vita, að ég ætlaði að gera honum þann heið- ur að þiggja hjá honum mat og gistingu að kvöldi. Hins sama ætl- aði Eiríkur að leita.á Hnitbjörgum. Þegar þangað kom, barði Eiríkur á yztu dyr og heyri ég þá líkt og tekið sé dauflega undir inni fyrir: „Ö-mö“. Afréð hann þá að opna og drepa á innri hurð, þrjú högg að sveitasið. Er þá tekið und- ir dálítið sk>rrar en áður: „Ö-mö“. Ekki lét Eiríkur hugfallast. heldur Eitt ynpsta byggðarhverfi landsins: Egllsstaðaþorp að vetrariagl. N -N — SUNNUDAGSBLAÐ 493

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.