Tíminn Sunnudagsblað - 07.07.1968, Side 4

Tíminn Sunnudagsblað - 07.07.1968, Side 4
ar kiikkonur skemmtu þeim, þótt leikur þeirra yrði 1 orði kveðnu að heita ræða, af því að þetta var sunnudagsnótt og allur leikara- skapur bannaður að enskum lög- um. John Burns lýsti því fyrir í nafni ríkisstjórnarinnar, að hún ætlaði að auðsýna þá mildi að hegna konunum ekki, þótt sekar væru um löghrot. Tillagan um kosningarétt kvenna *íom ioks til fyrstu um- ræðu, er liðið var á vor og reynd- ist þá margfaldur meirihluti þing- manna í íulltrúadeildinni henni fylgjandi, þrír gegn hverjum ein- um. Litlu síðar kvað Loyd George upp úr með það, að ekki myndi verða af annarri umræðu á því ári, en hún yrði heimiluð árið 1912, og styddi meirihluti þing- manna hana enn, skyldi viku var- ið til þess að fjalla frekar um hana og breytingartillögu, er fram myndi komá. Fram undan var krýning Georgs V. og ríkisstjórn- in vildi umfram allt komast hjá uppþotum um það leyti Jafnvel Asquitih, sem þó duldist þess ekki, að hann var sjálfur andvígur at- kvæðarétti kvenna og lét þau boð ganga, að ríkisstjórnin hefði ein- sett sér að standa við gefin lof- orð, „ekki aðeins samkvæmt orð- anna hljóðan, heldur einnig anda þeirra“. Súffragetturnar höfðu verið mjög tortryggnar. En nú sýndist þeim sem björninn væri unninn. Þær héldu fagnáðarhátíð mikla, og Emmeiína Pankhurst lýsti há- tíðlega yfir því, að lokið væri her- för þeirra gegn ríkisstjórninni og frjálslynda flokknum. En margt fer á annan veg en XVII. Snemma árs 1911 tókst að koma á framfæri á Bretáþingi tillögu um kosningarétt kvenna, svipaðs efnife og hin fyrri hafði verið. Þótt treglega gengi að koma henni á dagskrá, þótti súffragettunum ráðlegt að forðast spellvirki um sinn, ef von kynni að vera um einhverja iausn. Þær létu sér því nægja fundi og kröfugöngur og sumar neituðu að auki að greiða sikatta. í aprílmánuði þetta ár skyldi skráð allsherjarmanntal í- Breta- veldi, svo sem lögskipað var að gera á tíu ára fresti. Þá sáu súffra- getturnar sér þann leik á borði að hundsa manntalið. Þær, sem húsum áttu að ráða, gerðu skrá- setjarana afturreka og neituðu ailri samvinnu við þá, en aðrar kornu ekki heim til sin þau dæg- ur, er þeirra gat verið von í hús- in. Þær reikuðu fram og aftur um göturnar fram á nótt, en leit- uðu síðan hópum saman nætur- skjóls hjá stallsystrum sínum eða í mannlausum húsum. í mennta- skóla nokkrum í Lundúnaborg lágu til dæmis þrjú hundruð kon- ur á gólfunum undir brekánum. í einu af samkomuhúsum borgar- innar efndu þær til hljómleika, sem stóðu lengi nætur, og í öðru borgarhverfi tóku þær á leigu skautahöU, þar sem þær léku sér á skautum á milli þess sem fræg- Hópur kvenréttindakvenna, sem hefur búið um sig í mannlausu húsi rneðan tal fer fram f landinu. mann- 508 T í M 1 N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.