Tíminn Sunnudagsblað - 07.07.1968, Page 17

Tíminn Sunnudagsblað - 07.07.1968, Page 17
byggja hús og smíða skip. Var hann Hnífsdælingum mikil hjálp- arihella vi3 að breyta bátum þeirra og gera við þá eftir þörfum. Síð- ar byggði hann stærra hús úr steini á hentugri stað. Sigurður skýrði þennan nýja bústað ,sinn Grænadal. Þegar Sigurður fór úr Yztahús- Inu, leigði hann það hjónum t.il ársins 1948, að hann seldi það Her- manni Árnasyni, er fluttist þá frá Látrum í Aðalvík til Hnífsdals, á- samt konu sinni, Sigurlaugu Frið- riksdóttur, og tíu börnum þeirra. Þau seldu aftur húsið Hirti Síur- laugssyni i Fagrahvammi í Skutuls firði. Hann reif það og fluttj inn eftir og byggði úr því útihús. Nú liggur bílvegur yfir hússtæðið. Sigurður og Elísabet eignuðust ellefu börn. í Yztahúsinu áttu því nokkur börn bernsku- og æsku- heimili. Við systkinin töldum lífea, að við ættum okkar annað heimili þar í vissum skilningi, fyrst og fremst af því, að þar var Þóra, amma okkar, Sigurður frændi, Elísabet, kona hans, sem var okik- ur sem önnur móðir, og börn þeirra, er voru nánustu frændur okkar og leiksystkini. Umhverfið var hið ákjósanlegasta til leikja. Brekkan með fjölbreytileik sínum á sumrin, en snjór til skíða- og sleðaferða og stundum klaka- bólstrar til skautahlaupa á vetrum. Mun Rögvnaldur líka hafa skírt hús ið Skíðastaði, þó að það nafn fest- ist aldrei á því. En það nafn not- uðum við innan fjölskyldunnar á veturna, þegar snjór var mifeill. Það er 'íka skemmtileg tilviljun og gaman þess að minnast í sam- bandi við skíðaferðir kringum Yzts húsið, þó að þær væru ekki frá- sagnar verðar móts við það, er nú gerist, að einn bezti skíðamað- ur í hópi hinna yngri nú, er sonar- sonur Yztahússhjónanna, Elísabet- ar og Sigurðar, Tómas Jónsson Fjaran var býsna víðáttumi'kii. stundum fáguð og hrein, með alla vega steina til að kasta, slöngva eða öeyta kerlingum með. eða bak in skeljum, kuðungum, krossfisk- um eða öðru slíku, sem á fjörur rekur og börnum á þeim tímum þótti happ að fá og mikið tii koms sem leiikfanga. Þá má ekki gleyma þarabunkunum, er stundum mynd uðust í haustbrimunum. Þar var hægt að íinna margan góðan þöng- ulinn í þaraslag eða þá efnivið i þarabát eða eitthvað annað, ssm hægt var að búa til með vasahníí um. Þá var nú mikill draumaheim- ur í Skollaborg, en það voru þrír- klettar í fjörunni, rétt fyrir utan Yztahúsið. Þar var hægt að klifra, fela sig og gera glettur við bár- urnar, þegar þær voru ekki of stór ar. Þar fyrir utan var svokallað Búðarnes með stórum, gráum steini og yzt Skarfskerið — yzta kennileiti i Hnífsdal. En þar byrj- ar Skor — hlíð, sem er innsti hluti Óshlíðar. Nú er kominn bilvegur, breið- ur og góður, milli Hnífsdals og Bolungavíkur — kom 1951, eftir sex ára hættulega vinnu við vega- gerð á þeirri hrikalegu hlið, Ós- Sigurður Guðmundsson og Elísabet Jónsdóttir, kona hans. hlið, þar sem klettar 1 sex til'sjö hundruð metra hæð slúta yfir höfði manns og stöðugt má sjá og heyra steinkast og búast við skriðu föllum eða snjóflóði. eftir því, hvernig viðrar. Nú aka menn með feiknahraða yfir grunn Yztahússins En á með- an Sigurður átti þar heima, var Yztahúsið fyrsti áningarstaðurinn, er komið var af Óshlíð, en síðasti áður en iagt var á hliðina Hún er ill yfirferðar — grýtt fjara, forvaðar i sjó fram, sem varð að klifra yfir, og einstigi 1 hlíðurn uppi yfir snarbrattar skriður. Þrátt tf M 1 N N — SUNNUDAGSBLAÐ ^21

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.