Tíminn Sunnudagsblað - 07.07.1968, Side 19

Tíminn Sunnudagsblað - 07.07.1968, Side 19
salknað af þeim og tengdamóðjr- inni, sem unni henni hugástum, eins og nún væri hennar eigin dótt ir, sem og öðrum vinum og vanda mönnum. EMsabet var góðum gáfum gædd, vel pennafær og skrifaði sikemmti- leg sendibréf með ágætri rithönd. Hún var prýðilega hagmælt eins og faðir hennar, og lék henni því ljóð á tungu við ýms tækifæri, gamansöm í samræðum, þegar það átti við, sá alltaf kátlegu hliðarn- ar á hlutunum og kunni að not- færa það sem gleðivaka á góðleg- an máta, án þess að særa tilfinn- ingar nokkurs manns. Elísabet var meðalmanneskja á vöxt, hvatleg í hreyfingim og hafði lipra fram- komu. Sigurður fæddist 9. júlí 1874 að Hóli í vBolungavík, en dó 4. októ- ber 1955 á Siglufirði. Hann var mikill heimilisfaðir og umhyggju- samur, sívinnandi heima og heim- an, enda eftirsóttur verkmaður, bæði á sjó og landi, afburðamað- ur að afköstum og trúmennsku. Hann var vakinn og sofinn í starfi sínu og unni sér ekki nema sem minnstrar hvíldar. Eitt þeirra verka, sem hann vann að heima í hjáverkum, var að sauma skinn- föt — sjófclæði. Mun hann vera með síðustu mönnum, er kunnu þá list, og ekki þurfti að arfleiða neinn að þeirri kunnáttu, því að næsta kynslóð lagði skinnsjóklæð- in á hiliuna og tók að nota olíu- klæði og gúmmístígvél. Það er leið- inlegt, ef sú vinnuaðferð týnist gersamlega úr þjóðlífinu, þó að enginn þurfi lengur að nota skinn- klæði. Sigurður var söngvinn maður og trúhneigður og hélt uppi trúar- legum háttum á heimili sínu og þau hjón bæði, með húslestrum og sálmasöng á sunnudögum og öðrum helgum dögum. Sigurður var móttækilegur fyrir umræður um þau mál við þá menn, er létu sig þau efni skipta. Hann sótti messur og aðrar kirkjulegar at- hafnir, þegar tækifæri gafst, og síðustu ár ævi sinnar, er hann var á Siglufirði, kom hann til hverrar messu og var það kappsmál, að hans sæti væri ekki autt í kirkj- unni fremur en við hin daglegu etörf. Sigurður var lengi forsöngvari í kirkjunni í Unaðsdal, það var áður en orgel var keypt í hana. Sönghneigð hans rann til barnanna Guðmundur Þorleifsson, bóndi í Unaðs- dal á Snæf jallaströnd, maður Þóru Jónsdóttur. Þau voru flestöll söngvin, til dæm- is hefur næst elzta dóttir hans, Olga, verið í kórum þeirra kirkna, er hún hefur átt til að sækja. Ég man, að það var mikið sungið í Yztahúsinu, þegar öll börnin voru saman komin. Þóra Jónsdóttir fæddist 2. febrú- ar 1854 að Hóli í Bolungavík, en dó 18. nóvember 1941 í Hnífsdal. Hún var dóttir Jóns Guðmundson- ar og Þóru Ámadóttur, er bjuggu á Hóli. Hún for nítján ára að aldri ráðskona tl Guðmundar Þorleifs- sonar formanns, er hélt úti sexær- ingi M Bolungavíkurmölum og var þá ekkll eftir Elínu, systur Þóru, en hún var önnur kona hans. Fyrsta konar Guðmundar var Krist ín Magnúsdóttir frá Þjóðólfstungu í Bolungavfk. á Höfðaströnd í Jökulfjörðum. Fluttist til Hnífsdals 1920 og bjó þar í nábýli við dóttur sína. Með Guðmundi bjó Þóra nokk- ur ár í Bolungavík, þar tl þau fluttust inn í Unaðsdal á Snæfjalla- strönd. Þar bjuggu þau til ársins 1908, að (luðmundur lézt, eins og fyrr segir. Þau eignuðust sjö börn, og var Sigurður þeirra elztur. Þóra var fönguleg kona, mikil að vallarsýn og þreklega vaxin. Hún var björt yfirlitum með nýr- legt viðmót, ennið hvelft og aug- un blá. Hún var mikil dugnaðar- manneskja, sívinnandi og fell aldrei verk úr hendi frá þvi snernma á morgnana fram á rauða nótt. Fram yfir sjötugt sótti nun vinnu út, sem oftast var þá fisk- vinna, en eftir það vann hún ein- göngu að heimilisstörfum og þá sérstaklega við tóvinnu ogsauma- skap. Hún sat að jafnaði við stofu- gluggann niðri, þar sem hún ?at Þóra Jónsdóttir og sonur hennar, Sigurður Guðmunds son, úti fyrir dyrum Yztahússins. T I M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 523

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.