Tíminn Sunnudagsblað - 21.12.1969, Síða 17

Tíminn Sunnudagsblað - 21.12.1969, Síða 17
Þessi mynd er norðan af Ellesmereslandi á 81. breiddarstigi. Steinninn í forgrunninum er þakinn rauðum skófum. Á þessum slóðum er bithagi sauðnauta. A HEUARSLOÐ NORÐURSINS Það er ofurhversdagslegur við- 'burður, að fólk á Héraði austur iheyri þungan gný í lofti. Firnahátt uppi í blámanum þeysist áfram flugfar, og hverfur fyrr en varir 1 norðvesturátt. Þetta eru rússn- esku farþegaþoturnar, sem fljúga yfir norðuriheimskautið á leið sinni .fná Moskvu til Japans. Fyrir skenxmstu sáum við sjón- varpsmyndir af skipi, sem risti ís- helluna á hafinu norðan Ameríku rétt eins og börkur væri á mjólk- urpotti. í fullri alvöru er nú uan það talað að láta olíuskip sigia þessa leið. Þetta sýnist ofureinfalt og auð- velt, hvort sem við sitjum við hæg- indi inni í stofu og gónuan á sjón- varpstjaldið eða reigum höfuðið aftur á bak austur í Skógum eða Fellum. En nýtt er það af nálinni, að þetta sé svona auðvelt. í marg ar aldir hefur skip siglt af skipi á norðurslóðir, og ofurhugar hafa freistað þess, að þrengja sér inn í ísinn og brjótast í gegn um hann. Margir hafa komið aítur heilu og höldnu, en margir hafa líka farizt og aðrir sloppið naumlega. Fyrir nærfellt þúsund árum sigldu íslenzkir menn um suður- jaðar þessara ísasióða á fleytum sínum. Við vitum alls ekki, hve iangt norður á bóginn Leifur heppni og samtíðarmenn hans komust, þaðan af síður nafnlaus- ir menn af hinum næstu kynslóð- um. Vilhjálmur Stefánsson ætl- aði, að norrænir menn, íslenzkir eða grænlenzkir, hefðu ekki ein- ungis leitað vestur yfir hafið og fundið Vinland, og þar með meg- inland nýrrar heimsálfu, heldur taldi hann, að þeir liefðu siglt óraleið norður í jötunheima issins, langleiðina til Ellesmereslands, sem er úti fyrir Norðvestur-Græn- landi, norðan Baffínsflóa. Það dró hann meðal annars af hreiður- T t M 1 N N SUNNUDAGSBLAÐ 1025

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.