Tíminn Sunnudagsblað - 18.07.1971, Blaðsíða 1
£7 #
X. ÁR. — 27. TBL- SUNNyp^GU^ 13Í_.JÚLÍ 1971
SUNNUDAQSBLAÐ
( Námaskarði og Bjarnarflagi austur af ReykjahlíS við Mývatn virðist jarðhitinn nær þvi ótæmandi. Hn jarðlögin eru gisin og
vatn iítið í efstu lögum, Gufan þrýstist upp með heljarafli ór allmörgum borholum í Námaskarði, engum til nytja enn sem
komið er, en virkjað hefur verið hinum megin við hálsinn i Bjarnarflagi að nokkru. Flestir gera sér nú grein fyrir því, að fyrir
dyrum er byiting i jarðhitavirkjunum, og þar er að le'rta raforku og annars nýtilegs afls á næstu áratugum, sem hrópa munu á
mengunarlausa orku. En þessir virkjunarstaðir eru víðs vegar um land og fela í jörðu meiri auðævl framtiðarinnar en menn
hafa gért sér Ijóst. Jarðhitinn er vafalitlð mesta auðlind landsins næst fiskimiðum og gróðurmold. — Myndin er tekin úr
Námaskarðl.