Tíminn Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Tíminn Sunnudagsblað - 18.07.1971, Qupperneq 18

Tíminn Sunnudagsblað - 18.07.1971, Qupperneq 18
Sveinn Einarsson á Reyni: ÞEGAR NJÁLLINN FÓRST Það var árið 1922, að mig minn- ir, sem vélnáturinn Njáll fórst. Um þennan bát var myndað út- gerðarfélag, að hluta til úr Mýr- dal, en báturinn var gerður út frá Vestmannaeyjum. Útgerðin hafði gengið erfiðlega, utan fyrstu ver- tíðina, en þá var Stefán í Skuld formaður á bátnum, kunnur afla- maður. Skipshöfn á Njáli hans síðustu vertíð var, eftir því sem ég bezt man, þessir menn: Sigurfinn- ur Lárusson frá Álftagfóf í Mýr- dal formaður, Magnús Runólfsson frá Skaganesi í Mýrdal háseti, Guð- finnur Jakobsson frá Skammadal í Mýrdal háseti, Sigurður Hall- varðsson frá Pétursey í Mýrdal bá- seti. Nafn vélstjóra man ég ekki. Mun hann hafa verið af Austfjörð- um, hægur og geðugur maður. Af þeim, sem unnu við bátinn í landi, man ég eftir þessum: Jóni Hafliðasyni á Garðsstöðum í Vest- mannaeyjum, sem átti að sjá um aðgerðina, Helga Dagbjartssyni frá Vík í Mýrdal, sem var yfirmaður í beituskúr, Sigurjóni Skaftasyni frá Fossi í Mýrdal, sem var að- gerðarmaður, og Sæmundi Rjarna- syni í Vík, sem einnig var aðgerð- armaður. Ég var ráðinn netamað- ur. Mig minnir, að undirbúningi undir vertíðina væri lokið. Það þurfti að standsetja allt, bæði of- anþilja og vél bátsins, rétta af áttavita og fleira. Eftir að undir- búningi var lokið, þótti vel við eig- andi að fá sér svolítið bragð. Ekki var þarna um neinn dryfckjuskap að ræða. Menn voru orðnir smá- sætir og málhreifir og allir í góðu skapi. Þá er það að Magnús heit- inn Runólfsson segir: „Ég veit það nú, Siggi minn, að þú drepur nú okkur alla í vetur“. „Alltaf er það svo lítið“, segir Sig- urfinnur og vildi sýnilega ekki láta á sjá. Reynt var að slá þessu á dreif, en hefði þó þurft að takast betur. Annars var betra að Magnús sagði þetta en nokkur hinna, þeg- ar um var að gera að kveða þetta niður, því að hann hafði orð fyrir að taka fullan munninn, og þá helzt, ef hann hafði smakkað vín. Ekki gat Magnús um það, hvern- ig hann öðlaðist þessa vitneskju, enda ekki að spurður. í ann- að skipti sagði vélstjórinn okkur, að sig hefði dreymt að þeir á Njáli hefðu verið á vakki einhvers staðar á sjávarbotni, og að þar hefði verið eins og kjarr af þaragróðri. „Skyldi þetta vera fyrir fiski“, sagði hann. „Ég veit efcki,“ bætti hann svo við. Ekki man ég hvort Njállinn var búinn að róa einn eða tvo róðra, áður en hann fórst. En nú var beitt lína í síðasta sinn. Ég var einn af beitumönnum og kom ekki heim fyrr en um miðja nótt Við vorum þrír í herbergi og héldum til í Tungu. Herbergisfélagar mín- ir voru þeir Sigurður heitinn Hali- varðsson og Sigurjón Skaftason, sem nú er einnig látinn. Ég byrjaði að þvo sér og hugðist taka á mig náðir. En þá, allt í einu, kemur mér í huga: Njállinn ferst, nema að hægt sé að koma í veg fyrir róðurinn á morgun. Það var fast 1 huga mér, að ef hægt yrði að hindra Njál frá róðri á morgun, þyrfti ekkert að óttast um bátinn framvegis. Ég var eins sannfærð- ur um að þetta hlyti að vera rétt, og ég hefði lesið frétt af skeðum atburði. Mér leið óumræðilega illa. Er mér trúað fyrir því að koma í veg fyrir stórslys? Er ég maður til þess að leysa þetta hlutverk? Og hvernig? Að vísu kom vél- stjórinn um kvöldið með olíurör úr mótornum í beituskúrinn, sem gert hafði verið við, og auðvitað gat báturinn ekki róið nema rörið væri með. En beituskúrinn var læstur og lykillinn austur á Garðsstöðum hjá Helga Dagbjarts- syni, sem svaf þar með þremur í herbergi. Það hefði verið sök sér að eiga við Helga einan. Þetta fannst mér ékki koma til mála. Mik ið óskaði ég að lykillinn væri hjá mér. Þá hefði ég ekki hikað við að fjarlægja rörið. Svona má mað- ur sín lítils. Ég gafst upp. Ég tíndi af mér spjarirnar og sofnaði ör- magna. Næsta morgun vakna ég á tíunda tímanum við það, að Sigur- finnur er kominn til þess að kalla SigUTð Hallvarðsson til skips. Það hafði verið hvasst um nóttina, en Vélbátur i „Lefc'jnni" út úr Vestmannaayjahöfn. 642 lÍMINN — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.