Tíminn Sunnudagsblað - 18.07.1971, Síða 21

Tíminn Sunnudagsblað - 18.07.1971, Síða 21
r V/Ð G LUGGANN Á árunum 1965 til 1969 fækkaði fæðingum í Danmörku úr tæpum 86 þúsundum á ári niður í tæpt 71 þúsund. Fram- sýnum mönnum var farið að standa stuggur af því, að danska þjóðin ætlaði að hætta að endurnýja sig. Nú hefur breyting orðið á. 1 fyrra tók barnsfæðingum held- ur að fjölga á ný, og á fyrra helmingi þessa árs hefur orðið svo mikil breyting, að sýnt þyk- ir, að 75 þúsund konur muni ala börn í Danmörku á þessu ári. Er þá talan komin upp yf- ir það, er var 1968. Sama saga hefur gerzt í Svíþjóð, þar sem barnsfæðingar voru einu þús- undi fleiri í janúar í ár held- ur en 1970. Félagsfræðingar búast við, að áfram muni stefna í þessa átt og barnsfæðingar senn verða viðlíka margar og þær voru fyrir nokkrum árum. ★ Hér á dögunum kom maður með dómarakápu á handleggn- um í ráðhúsið í Oslo og sagði hjúskaparfulltrúanum, að hann ætlaði sjálfur að annast hjóna- vígslurnar þann daginn. Síðan gaf hann saman sex hjón og undirritaði vígsluvottorðin æfðri hendi. Nú er hlegið að þessu um allan Noreg. Þarna var að verki maður, Viggó Jóhann Örbak að nafni, er áður hefur gert mörg- um slæman grikk. Einu sinni kom hann inn í herbúðir í gervi yfirforingja og setti þar allt á annan endann. Seinna veitti hann sér þá forfrömun, að hann gerðist hershöfðingi og ferðaðist víða um landið og flutti fyrirlestra hjá kvenfélög1- um um' hlutverk kvenna á ófriðartímum. Skamma hríð var hann læknir, og hann hef- ur einnig brugðið sér í gervi prests og embættismanna af ýmsu tagi. Mest varð fjaðrafok- ið, þegar hann gerðist umferð- areftirlitsmaður og stöðvaði alla bfla á einum helzta þjóð- vegi í Noregi, svo að þar mynd- aðist einn hinn mesti umferðar- hnútur, sem sögur fara af í landinu. Nú er lögreglan norska að leita uppi hjónin, sem hann gaf saman, því að gerðir hans telj- ast ekki löglegar. Þetta fólk verður að endurtaka vígsluna, veizluna og brúðkaupsnóttina líka ef vel á að vera. ★ Yngsta móðir í Norðurálfu er ellefu ára gömul, og heima- stöðvar hennar eru í Ljungby — Lyngbæ — á Bleking. í Gautaborg ól tólf ára gömul stúlka einnig barn fyrir fáum vikum. Þetta. eru samt ekki yngstu mæður veraldar. í Perú ól enn yngri stúlka barn árið 1960. ★ Ritari samtaka starfsfólks í gistihúsum og veitingahúsum í Danmörku hefur opinberlega fullyrt, að átta til níu af hverj- um tíu útlendingum, sem’vinnu fá þar í landi (en þeir eru ein- mitt mjög margir í gistihúsum og á veitingastöðum) séu að einhverju leyti sviknir í kaupi og kjörum. Víðtæk rannsókn hefur leitt í ljós, að hinar tíðu skekkjur á launaseðlum þessa fólks eru svo að segja án und- antekningar á þann veg, að at- vinnurekandinn greiðir minna en honum ber samkvæmt gild- andi samningum. Atvinnurek- endurnir nota sér einfaldlega, að útlendingar skilja oft ekki dönsku nema til hálfs, kunna sjaldnast nein skil á því, hvað þeim ber að fá í sinn hlut, og geta ekki ævinlega hlaupið í nýtt starf, ef þeim er vísað brott úr vinnu, er þeir hafa áður haft. Þar að auki vantar svo í löggjöf Dana um vinnu- réttindi útlendinga í landinu ákvæði um, að atvinnurekandi skuli bæta þessu fólki það, er af því hefur verið haft. Þess vegna eru litlar vonir um leið- réttingu eftir á. KRISTJÁN JAKOBSSON: BIKARINN Saman þéttum sóknar-raðir sækjum þrótt og gleði á fund. Lyftum braiður bikar glaðir, blessist starf í skógar-lund. Vel á lofti hugsjón höldum, hækkum merkið, sækjum fram. Landi og þjóð vér glaðið gjöldum, gróður-rein í laut og hvamm. Fram til starfs skal götur greiða, góðu verkj þjálfa mund. Glæsta vegu gróðrar leiða, ‘ göfgan svein og fagurt sprund. Reyna græða hrjóstrin heiða, hylla vora móður grund. Láta yfir byggðir breiða, blæinn, ilm frá skógar-lund. Veiti guð oss styrk að starfa, standi af einhug saman þjóð. Allt skal gert til íslands þarfa, okkar bíður framtíð góð. ísland geymir auðlegð nóga, yl í jörðu, hafsins gnótt. Látum græna greniskóga, geyma minni um æsku-þrótt. (Kristján Jakobsson var ötull skógræktarmaður og vann að þeim málum í flestum frístund um sínum. Marga plöntuna gróð ursetti hann í Þórsmörk. Hann hlaut verðlaun Skógræktarfé- lags íslands fyrir skógræktar- störf og kvæði það, sem hér birtist orti hann og flutti við það tækifæri í ágúst 1959. Kristián ar nú látinn fyrir nokkrum ávum.) T 1 M 1 N N — SUNNUDAGSBLAB 645

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.