Tíminn Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Tíminn Sunnudagsblað - 26.09.1971, Qupperneq 14

Tíminn Sunnudagsblað - 26.09.1971, Qupperneq 14
ír að grípa til þess á næslu árum, en að því komum við nú seinna. Þ6tt þetta l æri aðeins þriggja mánaða námskeið, má í rauninni segja, að það ylli straumhvörf- um í lífi mínu. Ég fór nú að hugsa um það í fullri alvöru að komast að heiman til náms, en mér fannst ég orðinn of gamall til þess að fara í menntaskóla. Ákvað ég því að reyna að komast í Kennara- skólann, ef þess væri nokkur kost- ur. — Og það hefur þú gert? — Já, en ekki alveg strax. Mig vantaði undirbúning. Veturinn eft- ir fór ég aftur til séra Jóhannes- ar og var hjá honum í tvo mán- uði til þess að búa mig undir inn- tökupróf í Kennaraskóla íslands. Og það mátti segja, að áætlunin stæðist. Haustið eftir fór ég til Reykjavíkur til foreldra minna, sem þá voru hingað komin. Ég kom hálfum mánuði áður en skól- inn átti að byrja og notaði þann tima eins og ég gat til þess að lesa og rifja upp það, sem ég hafði lært hjá séra Jóhannesi. Var það nú margt tekið að fyrnast. Við vor- um nokkuð mörg, sem gengum undir inntökupróf og einhverjir féllu, eins og gengur. Ég man allt- af eftir því, þegar ég gekk á milli vonar og ótta inn til Freysteins Gunnarssonar til þéss að heyra vitnisburðinn minn — dóminn um það, hvort ég hefði fallið eða ekki. „Ætli maður iáti það ekki duga í í þetta sinn“, sagði Freysteinn. Honum hefur víst ekki þótt útkom- an beysin — og lái ég honum það ekkert. En hlýjan og góðvildin, sem frá honum stafaði, gaf mér þrek til þess að ganga uppréttur út aftur. — Svo hefur þú auðvitað hald- ið áfram i skólanum? — Já. Ég lauk kennaraprófi vorið 1950. Og kemur að því, sem ég sagði áðan, að vélstjóraskírtein- ið hafi komið mér að notum, þótt síðar yrði. Bæðf á meðan á kenn- aranáminu stóð og mörg sumur, eftir að ég fór að kenna, vann ég við vélgæzku á bátum og stundum einnig í landi. Þess á milli málaði ég hús eða myndir eftir atvikum. — Fórstu að kenna, þegar þú hafðir lokið kennaraprófi? — Eftir misheppriað hanúfæra- sumar fyrir Norðurlandi, réðist ég kennari í Stykkishóim um haustið. En þótt ég væri svo hepp- inn að hitta þar fyrír framúrskar- andi elskulegt fólk, þá fann ég, að þetta fullnægði mér engan veginn. Mig langaði í meira nám. Hér var þó úr vöndu að ráða. Ég hafði ekki tekið stúderftspróf og þar með voru mér í raun og veru lok- aða.• allar leiðir til frekari skóla- göngu hér á landi. — Hvað varð til ráða? — Ég komst að því, að í Edin- borg væri kennaraháskóli, sem tæki við nemendum, þótt þeir hefðu ekki stúdentspróf. Einnig tók Edinborgarháskóli við nem- endum í ensku, þótt þeir stefndu ekki að lokaprófi, og voru þeir þá kallaðir óreglulegir nemendur. — Þetta hefur verið kjörið fyrir Þig? — Já, það má orða það svo. Ég fór til Edinborgar, lærði ensku í háskólanum og uppeldis- og sálar- fræði í kennaraháskólanum. Og nú var ég fyrst fyrir alvöru farinn að hugsa til frekara náms. Ég komst að því, að Edinborgarháskóli hafði vissar undanþágur fyrir nemend- ur, sem helzt höfðu úr lestinni í menntaskóla vegna styrjaldarinn- ar. Þeir áttu kost á inntökuprófi, án stúdentsprófs. Þarna var smuga, sem vel gat orðið mér að gagni, og ég ákvað að vera í borg- inni næsta vetur og búa mig und- ir slíkt inntökupróf. En með þessa áætlun tilbúna rakst óg einn góð- an veðurdag á auglýsingu í dag- blaði. Þar var Íslenzk-ameríska fé- lagið að auglýsa styrk til háskóla- náms í Bandaríkjunum. Ég sendi umsókn og fékk jákvætt svar. Haustið eftir innritaðist ég svo í skóla í Missouri. — Hvað varstu lengi þar? — Það urðu þrjú misseri. — Hverjar voru helztu náms- greinar þínar? — Ég lagði aðallega stund á myndlistarkennslu og lauk B.S.- prófi í þeirri grein. — Hvernig líkaði þér Ameríku- vistin? —• Ég Kunni vel við mig þar. Sérstaklega líkaði mér vel allt, er snerti skólann og aðstöðuna til námsins. Auk míns beina náms, kynntist ég talsvert náið kennslu- háttum Bandaríkjamanna, sem eru allmjög frabrugðnir okkar aðferð- um. Þessu átti ég þó eftir að kynn- ast miklu betur síðar, þau tvö skipti, sem ég fór sérstaklega til þess að kynna mér kennslutækni. t hverju er sá munur eink- um fólginn? — Ég get til dæmis minnzt á að- ferðir Ameríkumanna við móður- máls- og tungumálafeennslu. Þeir byrja á því að kenna nemendum. að hlusta. Síðan lærir nemandinn að tala sjálfur, þar næst að lesa málið og loks að skrifa það. Eins og kunnugt er, byrjum við á nákvæmlega gagnstæðum enda. Við byrjum á því að berja inn í 'nemendur þunga málfræði, eða látum hana að minnsta kosti fylgja fyrstu sporunum í lestri og tali. En myndi ekki vera sigurstrang- legast að nota þá aðferð, sem nátt- úran beitir sjálf? Við vitum það öll, að börnin okkar læra einmitt að tala með þessari aðferð. Fyrst læra þau að nema mál ofekar, þeg- ar við tölum við þau. Síðan læra þau sjálf að tala og loks að lesa og skrifa. — Hvað tókst þú þér fyrir hendur, þegar þú komst heim frá námi? — Haustið 1953 réðist ég skóla- stjóri til Patreksfjarðar og var þar í tvö ár, en tók þá að mér að gegna skólastjórastöðu í Hveragerði í eitt ár, í fjarveru skólastjóra. Eftir þetta hef ég lengst af kennt við gagnfræðaskóla verk- náms í Reykjavík, þangað til ég rafe endahnútinn á nám mitt ytra og byrjaði hjá sjónvarpinu 1966. — Hefðir þú kosið að halda enn áfram námi eftir lok M.S.-prófs? — Námi er að sjálfsögðu aldrei lofeið. Mér líður afarvel í akadem- ísku andrúmslofti og óg hefði nátt- úrlega þurft, sjálfs mín vegna, að halda áfram. Og þessir tveir staf- ir, sem enn er hægt að bæta við, skipta raunar öllu máli, hvað „stat- us“ áhrærir. En þetta verður víst að duga. — En livenær fékkst þú áhug- ann á endurmenntun fullorðinna? — Ánægjulegasta stritið, sem ég hef-lagt á sjálfan mig, er nám í einhverri mynd. En allir mínir krákustígar á þeirri braut hafa kennt mér sitthvað um aðrar manneskjur, þarfir þeirra og ósk- ir. Ég hef gaman af kennslu, ekki sízt þegar ég er í hópi þroskaðs fólks, sem hefur áhuga á því, sem það er að gera. Þessi tilraun með námsflokka er því býsna spenn- andi, því að fullorðið fólk getur lært það, sem það vill læra. Og eigin reynsla gagnvart „kerfinu“ 686 T í M 1 N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.