Tíminn Sunnudagsblað - 09.01.1972, Side 2

Tíminn Sunnudagsblað - 09.01.1972, Side 2
10 Ég var að lesa grein í blaði hér fyrir nokkirt, og þá datt mér það í hug: Hve forkunnar- gott er að vera dauður. Fæstir valda háskalegrí hneykslun eí't ir það, og samfélagið hefur ekki lengur teljandi öinun af þeim, sem var fjandans níð að mýla og binda á klafa í samtíðarfjos- inu. Þegar grasið er gróið á leiði þeirra, má jafnvel gera nokkurt veður út af þeim, og hver veit nema það komi upp úr dúrnum, að þetta hafi verið snillingar á sínu sviði og látið eftir sig perlur í arí. Og það er svo gott, að það kostar ekkert að gangast við því: Enginn miss- ir neins í, hvergi glatast spónn úr aski, ekki nokkur sála þarf að sjá ofsjónum yfir því eins og viðbúið hefði verið, ef þetta hefði komizt í hámæli, áður en það var tímabært. Svo geysi- haglegt er þetta, engu síður en geitin i Snorra-Eddu, að það eru ekki hinir dauðu einir, sem hrósa mega happi, heldur einn- ig þeir, sem eftir lifa. Við er- um nefnilega öll samvizkusamt fólk, og okkur leiðist að hafa aðra utan garðs og viljum alls ekki gera það lengur en nauð- synlegt er. Og þá er gott að geta sikrifað og talað fallega og aflað sér þægilegrar synda- kvittunar fyrir lítils háttar skeytingarleysi, eða þótt ]>ínu- lítið ranglæti ) ynni að vera, með hugðnæmum orðuum, sem leggjast eins og blómum ofinn sveigur á rétta moldarhrúgu. Því að okkur norður hér dett- ur alls ekki i hug að klippa blað úr bók sögunnar og líma annað í staðinn. Við látum það bara standa autt, þar til öllu er óhætt, og launum, þegar Öllu hefur verið til skila hald- ið. Smefcklega, vel, fyrirhafnar- lítið, ódýrt. •k En stráin í húsagörðunum vilja ekki deyja. Ég segi ekki, að þau standi þar ung og þyrst eins og hjá Ómari Khayyam, en græn eru þau. Það er eins og þau hafi vitað á sig, að nú yrðu mildustu áiamót í heila öld og þraokað til þess að njóta svo fágæts fyrirbæris. I gömlum annálum er þess stöku sinnum getið. að útsprungnir fíflar hafi sézt á þorra (eða er kannski góan, sem þar er mið- að við?), og verði nú svona tíð eða þessu lík ti) langframa — hver veit nema við sjáum þá blóm á þeim tíma, þegar allt er vant að liggja í dái ' Og svo getur :íka hitt gerzt, að það verði kominn snjór og gaddur, þegar prentsverton verður þorn uð á blaðsíðunni, þar sem þetta birtist. Því að flest er fallvalt og veröldin duí.tlungafull, ekki sízt veðurfarið á honum Garð- arshólma. Én þá er að taka því með þolinmæði, því að allt iæt- ur náttúran rísa upp í fyllingu tímans. Og kalblettina græðir hún líka, þar sem þeir eru, þeg- ar henni hefur unnizt tími til þess. ★ Þegar kalið er nefnt, beinist hugurinn að öðru: UppHæstr- inum, auðnunum, melum og söndum, örfoka umdi, eyddu skóglendi, þar sem birkið ilm- aði fyrrum og slkýldi gróðri og fénaði. Það er ekki nýlunda, að menn finni sárt til þess, hvernig landið hefur verið leik- ið, og þess vegna sungu ung- mennafélagarnir hér á árunum: Komið grænum gróðri að skrýða. En eigi að síður eru það einhver ánægjulegustu veðrabrigðin í þjóðfélaginu, að nú er loks kominn á það veru- legur skriður, — án þess að lítið sé gert úr því, er hingað til hefur verið aðhafzt til gróð- urverndar, skógræktar, og sand- græðslu — að gagngert viðnám verði hafið og reynt að snúa taflinu við. Vísindaleg rann- sókn hefur farið fram á gróð- urfarinu og beitarþoli þess, og hún styðst við almennan skiln- ing á því, að nú verði að láta hendur standa fram úr ermum, bvggja á niðurstöðum þeirra rannsó*kna, sem gerðar hafa verið og gerðar verða, og hætta að syndga upp á náð, sem ekki stendur til boða. Og nú verðum við að öðlast þann skilning, að við, mennirnir, fólkið í landinu, erum aðeins hluti af náttúrunni og alls ekki herrar hennar nema að takmörkuðu leyti. A8 minnsta kosti er óumdeilan- leg staðreynd, að okkur mun grimmilega hefnast fyrir fá- vizku okkar og tillitsleysi, ef við beitum herradómnum af ófyrirleitni og vanvizku, og á það raunar jafnt við á sjó og landi, svo sem runnið mun upp fyrir flestum, sem yfirleitt leyfa sér þann munað að hugsa og minnast þess, að dagur fæðist af degi og kynslóð af kynslóð. Við getum aðeins seilzt til lands gæðanna að vissu marki. ef við viljum ekki gerast landníðingar og ræningjar á kostnað okkar sjálfra í náinni framtíð, svo að ekki séu nefndar óbornar kynslóðir. Þetta eru sannindi. sem ekki er aðeins vert. heldur fyrst og fremst skylt, að geyma vel í minni með boðorðunum tíu og öðru góðu. „Sú kemur tíð, að sárin foldar gróa ‘, orti Hannes Hafstein, og ég held. að nú séu loks forsendur til þess að græða þau, svo að um muni: Nokkuð almennur vilji til þess að vinna það nytiaverk og þekking og reynsla, rem ger ir það kleift. J.H. ooí$<5ooo< ItMINN — SllNMJUAUSBl.AÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.