Tíminn Sunnudagsblað - 09.01.1972, Síða 6

Tíminn Sunnudagsblað - 09.01.1972, Síða 6
Nú datt prófastinum ráC í hug. — Það má enn ráða bót á þessu, úr því að yður er Jvetta svona hug- leikið, frú Dahlgren, sagði hann — ég sé, hvað við getum gert. Kapelláninn minn er bráðlaginn í höndunum, fyrirtaks teiknari — hér á dögunum teiknaði hann reglulega fallega mynd af Lovísu, sem henni sjálfri finnist alveg ágæt. Yðar vegna, frú Dahlgren, skal ég biðja hann að reyna-. Svo- leiðis mynd getur þó alltaf orðið til minja um Hennar Náð, þó að hún verði dapurlegri á að horfa heldur en ef hún hefði verið gerð af henni lifandi. Ráðskonan klökknaði af þakk- látssemi. Auðvitað hlaut þetta að verða dapurleg mynd. En veggn- um var þó borgið. — Það yrði mér ósköp dýr- mætt, sagði hún og margþakkaði prófastinum hugulsemi hans. Það jaðraði eiginlega við, að hún hefði látið huggast. Að stundu liðinni kvaddi pró- fasturinn. Prófasturinn lét ekki sitja við orðin tóm. Stuttu síðar kom kapel- iáninn, séra Ann?'>-3, með úrvals- pappír, fallega stutan vafinn, og langan blýant, sern stóð upp úr brjóstvasanum. Ráðskonan jós yfir hann þakklætisorðum á meðan hann var að komast úr stigvélun- um. Ungi presturinn strauk hárið aftur með eyranum og engdist eins og maðkur á öngli í síðri kápu sinni. — Ég gat ekki neitað þessu, sagði hann, þegar óskin kom úr þessari átt, þó að ég viti ekki, hvort ég get þetta. Það er sjálf- sagt vandasamt að teikna dáið fólk, og ég hef aldrei gert það áður. Þetta gæti orðið líkt fyrir- myndinni, en getur aldrei líkzt náðugri frúnni eins og hún var á meðan hún lifði. En ráðskonan hlustaði ekki á þessar undanfærsl t>r. Hún sagðist reiða sig á hann, og svo kom hún með tvö glös og helíti í þau þykku og dökku malagavíni. Ráðskonan var orðin glaðari og reifari, er þau höfðu tæmt glösin, og listamanninum hafði aukizt áræði. Hann bað ráðskonuna að láta færa sér skerborð, festi papp- írinn á það með fjárum nálum, yddi blýantinn vandlega og sagði sér væri ekkert að vsnbúnaði. Þau gengu niður stigann. Útidyrnar stóru voru opnar, rétt eins og gestanna væri von þá og þegar, og úti í trjágöngunum, þar sem bjartir sólskinsblettir og fjólubláir skuggar lögðust eins og flikrótt voð yfir fallið laufið, sló fyrir léttum og kátum vindsveip- um, er drukkið höfðu í sig rakan svala úti í kirkjugarðinum, þar sem eskitrén teygðu bleikar krón- ur yfir saltpéturshvíta veggi og kalda og þunga legsteina. Þeim fannst báðum eins og gamla frúin sæti þarna í móttöku- salnum, líkt og hún biði gesta með þessi hvössu augu, sem allt sáu, viðbúin að hncigja sig örlítið, nóg til þess að brakaði í silkinu — og það fór hrollur um þau, þegar þau snertu málmkaldan hurðarhún- inn. Þau litu óttaslegin í kringum sig, og vitaskuld var þarna enginn, silkistóllinn við arininn auður, en samt fóru þau eins hljóðlega og þau gáíu, og ekki laust við, að þau væru skjálfhent, þegar þau stigu yfir þröskuldinn og lokuðu á eftir sér. Inn í frúarherbergið lagði ofur- lítinn sólargeisla gegnum rifu á gluggahleranum, og arið sveif fram og aftur í geislanum. Það var eins og eitthvað, sem legið hafði þarna inni, þögult og gleymt, hefði öðlazt líf við hvíslandi orðaskipti þeirra og hljóðar hugsanir og var- færnislegt fótatak — það seildist til þeirra úr hornunum, þar sem skein í granna, gyUta fætur stól- anna í hálfrökkrinu, það iðaði í blómfléttunum á veggfóðrinu og augum fólksins á myndunum, er urðu skyndilega svo undarlega lif- andi, það steig upp úr arninum, þar sem livít aska af brunnum pappír lá enn, og streymdi frá holdugum ráðgjafanum og öllu, sem leyndist bak við flúraðan skjöldinn á sporöskjulaga ramm- anum. Allt sogaðist að þessari gulu og fölu geislarák, sem haustsólin þrengdi inn í gegnum rifuna, allt sigldi í gegnum hana eins og þeg- ar andar hverfa inn í vegg, og það var engu líkara en gustur af hrær- ingu einhvers, sem maður sá ekki, heldur aðeins skynjaði, ylli þess- um fislétta dansi rykkornanna. Hún, sem var dáin, var í öllu og ails staðar, dældin í kögurprýdda stólsetuna minnti á léttan líkama hennar, gulum silkifellingum gluggatjaldanna gat eins vel verið að hún hefði hagrætt, flekkirnir á litmyndunum á krystalskerjun- um voru móða úr munni hennar: Kannski var hún hér enn, og þögn- in hennar þögn. í dagstofunni fyrir innan var annað andrúmsloft. Þar voru opn- ar dyr fram á ganginn, og þar voru opnir gluggar, þægi- legur súgur og fótatak lifandi manna. Bæði drógu andann léttar, án þess að hafa orð á því, sem á þau hafði leitað, og kapelláninn fór að nostra við blýantinn og braut af honum oddinn með vilja, svo að hann gæti tafið tímann. Stofuþeman kom inn, og hún klappaði saman höndunum af kæti, þegar hún heyrði, hvað á seyði var. — Ári var þetta gam- an, sagði hún. Smiðurinn Jóhann Jóhannsson, er náttúrlega á ferli, því að ekki getur hann getið sér til um lengdina á kistunni — og hún bendir á hálfopna svefnher- bergishurðina. Þessa stundina var smiðurinn frammi í eldhúsinu að tala við vinnukonurnar, það heyrð- ist til hans inn í stofuna, dapur- legur áhyggjuhreimur í drafandi röddinni. — Það gerir ekkert til María, sagði kapeláninn — það er bara betra að vita af honum nærri, hugsaði hann, og sem hann hafði lokið við að ydda blýantinn og sótt í sig veðrið, íannst Iionum bezt að hefjast handa og ljúka þessu af. Þau gengu inn, öll þrjú. Tjöldin, sem dregin voru fyrir gluggana, blöktu ofurlítið í gol- unni, og birtan inni í herberginu óx og dvínaði til skiptis, þegar þau bærðust, eins og hún stjórn- aðist af hægum andardrætti. í rekkjunni lá iíkið með livita kniplinga, sem huldu til hálfs þess- ar gulu hendur, er virtust svo und- arlega berar hringlausar. Kapellán inn dró varfærnislega fram stól og hagræddi teikniborði sínu. En svo datt honum allt í einu í hug, að hann yrði að þreifa fyrir sér, hvar bezt væri að vera, og hann fór að virða andlit konunnar fyrir sér. Það blasti honum við, og birt- an kom aftan frá. Þess vegna bar á það skugga, og í skugganum virt- ist konan ekki dáin, tæpast að hún svæfi. Það var öllu heldur eins og hún þættist sofa, svo að hún fengi að liggja kyrr óáreitt, og horfði fram fyrir sig gegnum 1 I II I N N — SlJNNliDAÍiSHI Af*

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.