Tíminn Sunnudagsblað - 09.01.1972, Side 10
En María beuli á blævænginn,
köttinn og IsJUfestina, sem kapel-
láninn hafði teiiknað af svo frá-
bærri alúð, að hver einasti hlekk-
ur sást greintlega:
— Er þetta ekki dásamlegt?
Og á það varð ráðskonan að fall
ast, þegar hún hafði rýnt betur á
myndina, og h'eit gleði gagntók
hana, og hún beið þess með seytl-
andi eftirvaéntingu, að hún fengi
að halda á listaverkinu í hendinni.
Nú kom smiðurinn fram aftur.
Hann hafði þegar varpað frá sér
öllum jarðneskum vonum sínum,
og það vottaði ekki lengur fyrir
neinni beiskju eða þykkju, þegar
hann renndi tárvotum augum til
hennar, sem verið hafði hans, því
að þetta var hinzta kveðjan. Anna
gerði sér aftur á móti ekki það
ómak að líta við honum, heldur
herpti munninn enn fastar saman,
sælli og hreyknari en nokkru sinni
fyrr, jafnvel farin að ímynda sér,
að hún hefði bara gengið í draumi
fram að þessu og væri nú fyrst
vöknuð til vitundar um það, hver
hún var. Og enn svaf kötturinn.
Kapelláninn lauk myndinni með
örfinu pirumpári, sem átti að
draga fram blæbrigði silkisins, og
síðan skrifaði hann stafina sina af
mikilii vandvirkni í annað hornið
að neðan — reis að því búnu upp
og teygði úr sér
— Þetta varð góð og falleg
mynd, sagði hann — sjáið þér
bara, frú Dahlgren, og berið hana
saman við fyrirmyndina.
Frú Dahlgren horfði og rýndi og
bar saman. Það vantaði hreint ekki
neitt á þessa mynd. ekki einu sinni
klærnar á kettinum.
— Ég verð yður ævinlega þakk-
lát, séra Anneus, sagði hún og
hneigði sig Og svona miklu yngri
heldur en ég kynntist henni!
— Eðlilega, sagði listamaður-
inn, eðlilega. Hún er kornung
þarna, svona eins og hún kann að
hafa verið, þegar hún var við hirð-
ina.
Frú Dahlgren þótti ennþá
vænna um myndina, úr því að hún
var af Hennar Náð-svona ungri, og
María, sem hrifnust var af blæ-
vængnum, rfið sér ekki fyrir Kæti.
Allt í einu mundi hún þó eftir
fyrirsætunni sem Jnn liúkti hreyf-
ingarlaus á loíólnum og drap tittl-
inga eins og 'fr'm ætti lífið að leysa.
— Þú míii standa upp, Anna,
sagði hún valdmannslega, og farðu
svo undir eins úr kjólnum.
Við þessi orð var eins og allur
lífsfögnuður viki frá stúlkunni í
einni svipan: Þessu var lokið,
draumurinn búinn. Hún stóð upp
án þess að hugsa um köttinn, sem
vaknaði við það, að hann slengdist
á gólfið, og hljóp á samri stundu
eins og byssubrenndur inn í
svefnherbergið, sem smiðurinn
hafði skilið eftir opið.
— Við verðum að sjá, hvert
hann fer, hrópaði María, og flýtti
sér á eftir honum.
Þarna fyrir innan hvíldi gamla
frúin í hvítri og kaldri birtu svip-
urinn tvíræður og koppar í kinn-
um eins og Hennar Náð væri að því
komin að skella upp úr, allar
hennar endurminningar og hugs-
anir, sem nú voru hættar leik sín-
um, krepptar bak við luktar brár,
og kötturinn kominn á skemilinn
við höfðalag hennar, lagztur þar í
kuðung og barði skottinu.
Anna hafði elt Maríu inn, en er-
indið var ekki annað en fá að líta
í spegilinn. Hana hafði langað svo
innilega til þess að sjá sig, og nú
stóð hún þarna í öllu skartinu og
horfði hugfangin á sjálfa sig.
En þetta varð skammvinn gleði:
Hún varð að fara út og afklæðast
allri dýrð, og við það var hún allt
of handsein til þess, að þóknast
mætti óþolinmæði stofuþernunnar.
Hún kæfði sárt andvarp, þegar
frú Dahlgren þakkaði kapellánin-
um enn einu sinni þessa ómetan-
legu mynd, sem vissulega átti að
skipa heiðursess meðal fátæklegra
eiginmuna hennar, hvar sem þeir
kynnu nú að verða vistaðir. Og nú
heyrðist allt í einu hófadynur og
vagnaskrölt einhvers staðar langt
úti á veginum: Ættingjarnar voru
að koma til þess að leggja undir
sig rfki gömlu frúarinnar. Nú varð
að hafa hraðan á, og aumingja
Önnu voru ekki nein grið gefin.
Smiðurinn vafraði með tárvot
augu í kringum kistuviðinn úti í
garðinum, heiðarlegur og grand-
var maður hafði verið rændur
stúlkunni sinni, og allt líf hans lá
í rústum.
En myndina góðu lét frú Dahl-
gren setja í fallegan. svartan
ramma og hafði af henni mikla
ánægju. Hún sýndi hana öll-
um, sem til hennar komu,
tæpti fyrst á því að hún
væri kannski ekki hárná-
kvæm, eiginlega gerð eftir minni,
en beindi meginþunga ræðu sinn-
ar að ætt og uppruna frúarinnar
sælu, en lét svo smám saman fvrn-
ast yfir. að brögð hefðu veriS í
tafli. Lotning þeirra, sem virtu fvr-
ir myndina, gerðu hana henni
ennþá dýrmætari. og þesar hún lá
banaleguna, vildi hún óð og upp-
væg hafa hana hjá sér í rúminu.
Svo liðu tímar, og myndin
komst í eigu málverkasafnara, sem
lét skrifa á hana nafn Hennar Náð-
ar, gömlu frúarinnar. Og nú þegar
menn eru á hlaupum eftir öllu,
sem gamalt er og gott, hefur þessi
snotra og haglega gerða mynd öðl-
azt sögulegt gildi. Hún hefur upp-
ljómað skilning margs mannsins á
anda og inntaki horfins tíma og
leitt þeim í hug grun um þá fornu
fágun hugsana- og tilfinningalífs-
ins. sem nú er týnd og tröllum
gefin.
J.H. þýddi.
□
18
TfMINN
SUNNUPAGSBI.AÐ