Tíminn Sunnudagsblað - 09.01.1972, Qupperneq 12
| Hún er náiega
| fimmtug orbin,
| en jbó sjálfkjörin
| á Ólympíuleikana
Þegar Danir velja á þessu ári
i íþróttafólk það, sem þeir senda á
ólympíuleikana í Þýzkalandi, verð-
ur fyrirsjáanlega í hópnum kona,
sem líklegt er, að setji met á sömu
stundu og hún birtist á leiíkvang-
i inum: Hún verður elzt allra þátt-
takenda, enda þegar orðin amma.
; íþrótt sína byrjaði hún ekki að
iðka fyrr en fyrir rúmum áratug,
er dóttir hennar gifti sig og flutt-
í ist að heiman. Og orsökin var sú,
að henni fannst þá orðið svo tóm-
legt heima.
Þessi kona á fceima í Gladsakse,
i einu af úthverfum Kaupmanna-
hafnar, og heitir Lilý Lentz, fjöru-
tíu og sjö ára gömul. Á daginn
vinnur hún í símtækjaverksmiðju.
íþrótt þessarar konu er boglist.
Hún tók sér fyrst boga í hönd af
hreinni rælni árið 1959. Það varð
til þess, að hún keypti sér boga.
Kunningjar hennar sögðu í háði,
að nú ætlaði hún að fara að feta
í fótspor Hróa hattar, og satt að
segja datt engum annað í
hug en hún yrði fljótt
leið á boganum. En reyndin
varð önnur. Hún æfði sig
af kappi, og smám saman varð
hún markvissari og markvissari.
Eftir nokkur ár komst hún í meist-
araflokkinn danska, þótt svo væri
til aldurs komin, að hún hefði get*
að verið móðir flestra keppinauta
sinna. Á þessu óri setti hún nýtt
Danmerkurmet, er svo var gott, að
það hefði nægt henni til þess að
komast í fjórða sæti í heimsmeist-
arakeppninni í Jórvík á Englandi
í sumar. Hún er eina konan í Dan-
mörku, er tekizt hefur alveg ótví-
rætt að fullnægja þeim kröfum,
sem gerðar verða til þátttakenda
20
'I I M I I\l N
SIJNMJDAGSBI.AÐ