Tíminn Sunnudagsblað - 09.01.1972, Side 13
á Ólympíuleikjum: Fjögur boga-
ikot, sem hvert um sig geía að
minnsta kosti 1050 stig.
Þessu marki nær enginn án af-
armikillar þjálfunar árum saman.
Á meiriháttar mótum bogmanna
skýtur hver þátttakandi 288 örv-
um. Hvert örvarskot kostar viðlíka
í.reynslu og að taka upp rúm þrjá-
ííu pund, og þar við bætist tals-
verðar göngur, alls nær fimmtán
kílómetrar. Æfingar mega því
Bldrei falla niður.
Lilý Lentz hættir vinnu klukkan
fjögur á daginn, og þá hvílir hún
sig dálitla stund, áður en hún byrj-
ar daglegar æfingar. Til þeirra ver
fcún ævinlega tveim klukkustund-
um. Síðan fer hún heim til þess
tð matreiða og gera annað, sem
þar kallar að. Öll ^affiboð og ann-
Ið þess háttar verður að sitja á
hakanum eða helzt víkja með öllu.
I>ar verður hún að lifa á gömlum
erðstír: Hún hafði sem sé þótt sér-
lega myndarleg húsmóðir hér fyrr-
um á meðan hugur hennar var all-
ur við heimilið.
Það eru um það bil fimm ár síð-
«n hún tók að skara fram úr á
kappmótum. Þá hafði hún aldrei
farið ýkjalangt út fyrir Kaup-
mannahöfn. En það breyttist. Hin
síðari ár hefur hún haldið með
boga sinn og örvamal til Hollands,
Austurríkis, Tékkóslóvakíu, Þýzka-
lands, Póllands, Sovétríkjanna og
Englands, auk allra Norðurland-
anna, nema íslands. Einkum hefur
hún víða verið fulltrúi lands síns
síðan 1961, er hún varð Sjálands-
meistari. Á þessum síðustu árum
hefur hún orðið Danmerkurmeist-
ari, bæði utan húss og innan, feng-
ið bronsverðlaun í meistarakeppni
Norðurálfuþjóða og tvenn norræn
gullverðlaun. í nokkur ár var'ð hún
að lúta í lægra haldi í meistara-
Jreppninni dönsku fyrir Önnu
Tönnesen frá Öðinsvéum, sem er
miklu yngri. í ár breyttist staðan.
Lilý Lentz á nú danskt met á þrjá-
tíu, fimmtíu oig sextíu metrum, en
Anna er enn drottning boglistar-
innar á sjötiu metra færi.
Boglistin kostar Liiýju Lentz
þrjátíu og fimm til sextíu þúsund
krónur á ári, og vega þar þyngst
fargjöldin, er hún fer á mót í öðr-
um löndum. En hún hætti fyrir
mörgum árum að.reykja, og þann-
ig sparar hún sér peninga, sem
hún getur látið ganga upp í kostn-
aðinn við íþrótt sína. Sjálf býr hún
sér til örvar úr málmpípum og
festir á þær stjórnfjaðrir. Við þetta
verður sá, sem ætlar sér að verða
sigursæll, að gæta hinnar mestu
nákvæmni. Áður voru notaðar
kalkúnafjaðrir á örvarnar, en nú
eru komnar stjórnfjaðrir úr plasti,
og við það hafa örvarnar orðið
hraðfleygari en áður.
Miklu meiri eru þó þær endur-
bætur, sem á bogunum hafa ver-
ið gerðar á seinni árum. í stað stál-
boga eru komnir bogar iir trefja-
gleri með handgrip úr rósaviði og
tinnuviði og mjög nákvæm, færan-
leg mið. Án slíks boga getur nú
enginn gert sér vonir um góð úr-
slit á kappmótum. Keppni er að
jafnaði mjög hörð og reynir á bæði
hæfni fólks og þrek og þraut-
seigju. Á heimsmeistaramóti
kvenna verða keppendur að vera
á vellinum í tólf klukkustundir
fjóra daga í röð, hvernig sem viðr-
ar.
Veðrið skiptir bogmenn miklu.
Hvassviðri getur gert strik í reikn-
inginn. í sumar setti Lilý ( Lentz
nýtt Danmerkurmet í Póllandi og
sigraði þar alla keppinauta sína
nema Póllandsmeistarann. Viku
síðar tók hún þátt í heimsmeistara-
keppninni í Jórvík, en lenti þar í
stormi, lasin af inflúensu, og náði
ekki góðum árangri. Hún stóð sig
að vísu bezt Dananna, sem þar
voru, en hafnaði þó í tuttugasta og
fjórða sæti.
Þegar örin flýgur af strengnum,
verður bogskyttan að hafa tuttugu
til þrjátíu atriði í huga. Handgrip-
ið, þensla bogastrengsins, fótstað-
an, hallinn á boganum, lega streng-
kúlunnar, sem bogskyttan hefur í
munni sér, og ótal margt annað
— allt verður þetta að vera rétt.
En það er styrkur þessarar dönsku
konu, að hún þekkir bogann sinn
og eiginleika hans, sjón hennar
er nákvæm og örugg og taugarnar
í bezta lagi. Aftur á móti hefu;
henni oftast vegnað heldur illa
þegar vindasamt hefui verið.
Á Ólympíuleikjunum í Muncher
verður boglist þreytt í fyrsta skipt:
síðan 1908. Því fólki, sem iðkar
boglist, hefur mjög fjölgað í mörg
um löndum á síðustu árum. og við
því er búizt, að nokkuð verði hert
ar þær kröfur, sem gerðar verða
tii geíu þeirra bogmanna, e.
Ólvmpíuleikana sækja. Nú eru .
Danmörku fimm eða sex kari
menn. sem gildir eru metnir sarc
kvæmt þeim reglum, er verið hafa
En svo getur farið, að ekki eig.
aðrir Danir kost á þátttöku en hinn
nýi heimsmeistari, Árni Jakobsen
frá Friðrikshöfn. og anmian mjög-
skiótandi. Lilý Lentz.
Brcsfeif kona, sem lagic-ga hefur skotiö örvunum sínum í mark.
T t M I N N
SLNNDDAtiSBl.AÐ
21