Tíminn Sunnudagsblað - 09.01.1972, Qupperneq 14

Tíminn Sunnudagsblað - 09.01.1972, Qupperneq 14
V/Ð GLUGGANN Norska ríkisstjórnin hefur á prjónunum frumvarp um þátt- töku verkafólks í stjórn fyrir- tækja, og verður þar svo fyrir mælt, aS hlutafélög, sem hafa tvö hundruð menn eða fleiri í þjónustu sinni, lúti yfirstjórn ráðs, sem að þriðjungi er skip- að kosnum fulltrúum verka- fólks. Þetta ráð skal fjalla um alla fjárfestingu, sem eitthvað kveður að, ákvarðanir um hag- kvæmni í rekstri og breytingar á framleiðsluháttum, er áhrif hafa á það, hve margt fólk get- ur notið vinnu hjá fyrirtækinu. Þetta ráð á einnig að velja fyr- tækjunum stjórn og formann hennar. Þessi ákvæði eru talin muni taka til um þús. norskra fyrirtækja með rúmlega tvö hundruð og þrjátiu þúsund verkamenn í þjónustu sinni. Sömuleiðis á meirihluti vinnu- þega í fyrirtækjum, þar sem vinna fimmtíu menn eða fleiri, að geta krafizt þess, að þriðjung ur stjórnar fyrirtækisins sé val- inn af þeim sjálfum og úr þeirra hópi. Þetta er hugsað sem fyrsta skrefið í átt til svonefnds at- vinnulýðræðis, og er gert ráð fyrir fjölþættari löggjöf, er stefni í sömu átt, á næstu árum tveim til þremur. ★ Könnun hefur verið gerð á því í Noregi, hversu mikill tími fer í súginn þar í landi í bið- stofum. Hefur mönnum reikn- azt svo til, að biðstofur lækna gleypi tíu milljónir klukku- stunda á ári, en sú tala marg- faídast, þegar við bætist allt norp fólks í biðstofum fjár- málastofnana, embættismanna, lögfræðinga, verkfræðinga, skólastjóra eg margra annarra. Vinnutapið, sem af þessu hlýzt, jafngildir allsherjarverkfaili í ekki svo fáa daga á ári hverju, og í rauninni er það miklu meira en virðast kann í fljótu bragði, því að þessi seta fólks í biðstofum hefur miklar og margvíslegar keðjuverkanir og valda öðrum töfum og óþægind- um, sem enginn kostur er að gizka á, hversu miklu tjóni valda. Enn bætist hér við sá háttur embættismanna og skrif- stofufólks að draga við sig svör við erindum fólks, jafnvel þótt engu torveldara sé að veita þau strax heldur en síðar, og jafn- vel láta þeim ósvarað langtím- um saman, þótt það hafi í för með sér margfalda fyrirhöfn og umstang. Norsk nefnd, sem rannsakað hefur þetta mál, hefur komizt að þeirri niðurstöðu, að fækka megi þessum biðtímum um helming með góðum vilja og góðu skipulagi. í þokkabót er það sameigin- legt svo til öllum þessum bið- stofum, að þær eru einhverjar hinar ömurlegustu vistarverur, sem dæmi eru um, sætin iðu- lega harðir trébekkir og oft allt of fá, og óhrein ræksni af göml- um, útlendum myndablöðum liggjandi í kös á borði handa fólki til þess að una við, ef nokkuð er. ★ Pompidou, forseti Frakklands, og Marcellin innanríkisráðherra hafa hótað því, að dauðarefsing verði lögð við eiturlyfjasöiu, ef ekki tekst að kveða slikan verknað niður með öðrum hætti. í þessu máli virðast þeir hafa stuðning bæði meðal hægri manna og vinstrimanna. Korsíku búar eru taldir skæöastir allra eiturlyfjasala í Frakklandi, og er álitið, að þeir hafi náð slílk um völdum í Suður-Frakklandi, að stjórnmálamenn ráðstafi lög reglustjóraembættum og sak- sóknaraembættum að fyrirlagi foringjanna. Tölur hafa ekki ver ið birtar um það, hversu marg ir menn láta nú lífið árlega í Frakklandi sökum eiturlyfja- neyzlu, og er talið, að þessi tala sé svo geigvænlega há, að stjórn arvöld vilji ekki auka ótta al- mennings með því að gera hana heyrinkunna. ★ Alþjóðalögreglan í París hef ur afhjúpað glæpamannahring, sem hafði það að atvinnu að ginna kynblendingsstúlkur í Brasilíu til Evrópu og selja þær þar í vestur-evróþskum stórborgum. Forgöngumaður þessa fyrirtækis var ítalskur, en auðmenn í ýmsum löndum áttu hlut að því. Eina stúlkn- anna hafði glæpahringnum tek- izt að selja í Vestur-Berlín á sjö hundruð þúsund krónur, en oftast hafði hann orðið að láta sér lynda miklu lægra verð. ★ í Sovétríkjunum er fjörutíu og ein milljón nautgripa. Árið 1970 nam mjólkurframleiðslan þar áttatíu og þrem milljónum smálesta. ★ Á ársþingi dönsku krabba- meinsnefndarinnar, sem haldið var í Óðinsvéum, var samþykkt að banna þátttakendum reyk- ingar á fundunum, þar sem slíkum mönnum bæri ríkust skylda til þess að gera hreint fyrir sínum dyrum. í hópnum var þó aðeins einn maður, sem að jafnaði var með vindil uppi í sér, prófessor frá Árósum. > Hann beygði sig að sjálfsögðu i fyrir samþykktinni. T I H I N N SUNNUOAG8BLAB

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.