Tíminn Sunnudagsblað - 19.05.1973, Page 3

Tíminn Sunnudagsblað - 19.05.1973, Page 3
Eysteinn Sigurðssson cand. mag: Skáldaþættir 1750-1850 Jónas Hallgrímsson Fyrri grein Grimur Thomsen orti á sinum tima litiö og fallegt minningarljóð um Jónas Hallgrimsson látinn, og lýkur þvi á þessu erindi: Langt frá þinna feöra fold, fóstru þinna ljóða, ertu nii lagður lágt i mold, listaskáldið góða. Stórskáldum er það oft gefið að geta gætt örfá hversdagsleg orð svo þrung- inni merkingu, að aðrir hefðu þurft langt mál til, og hér rekumst við ein- mitt á dæmi sliks. Meðal aðdáenda Jónasarhefur viðurnefnið „listaskáld- ið góða” náð að festast við hann, enda er það ekki tilviljun. Hann notar sjálf- ur orðið „góður” ákaflega smekklega viða i ljóöum sinum, og auk þess er hann fyrst og fremst fíngert og list- rænt skáld, en ekki átakamikið né sér- lega stórbrotið, nema þá einna helzt i einfaldleika sinum. Jónas Hallgrimsson fæddist 1807 að Hrauni i öxnadal, sonur sr. Hallgrims Þorsteinssonar og konu hans, Rann- veigar Jónasdóttur. Hallgrimur var aðstoðarprestur sr. Jóns borlákssonar á Bægisá og bjó frá 1808 á Steinsstöð- um i öxnadal, þar sem Jónas ólst upp meö þremur systkinum sinum. Hall- grímur drukknaði hins vegar sviplega i Hraunsvatni sumarið 1816, og var Jónas siöan á vegum ættmenna sinna norður þar. Lærði hann undir skóla hjá sr. Einari Thorlacius i Goödölum og settist i Bessastaðaskóla 1823. Þaðan útskrifaðist hann 1829 og var siðan I Reykjavik næstu árin sem skrifari hjá Ulstrup bæjar- og landfógeta. Arið 1832 hélt hann svo til Kaup- mannahafnar og hóf þar i fyrstu laga- nám. önnur áhugamál urðu þó fljót- lega lögfræöinni yfirsterkari, og sneri hann sér að náttúrufræði, jafnframt þvi sem hann varð einn af frumkvöðl- um timaritsins Fjölnis ásamt þeim Konráði Gislasyni, Brynjólfi Péturs- syni og Tómasi Sæmundssyni. Saga þess verður ekki rakin hér, en það var á sins tima mælikvarða róttækt tima- rit um þjóðmál og listir, sem boðaði nýjungar i hvoru-tveggja við misjafn- ar vinsældir. 1 Fjölni birti Jónas siðan mörg af fremstu kvæðum sinum, auk þess sem hann skrifaði allmargt i ritið ýmislegs efnis. A þessum árum orti hann og allmikið og fékkst við margs konar ritstörf, en að öðru leyti mun hann hafa eytt tima sinum i náttúru- fræðinám sitt og rannsóknir. Nokkuð reyndi hann og til að fá gott prests- embætti á Islandi á þessum árum og siðar, en án árangurs. Lika átti hann þá frumkvæði að þvi, að Bókmennta- félagið hóf að safna efni til viðamikill- ar Islandslýsingar. Hún kom þó aldrei út, en efnið sem safnaöist, er hin merkasta heimild um land og þjóð laust fyrir miðbik siðustu aldar og hefur reyndar sumt veriö gefið út. Á árunum 1839—’42 dvaldist Jónas svo heima á tslandi og ferðaðist þá á sumrum um mestan hluta landsins við margs konar náttúrufræöirannsóknir, en dvaldist á veturna i Reykjavik. Erf- ið ferðalögin reyndust heilsu hans tals- verð þolraun, svo að hann veiktist, og lá hann m.a. sjúkur mestallan fyrsta veturinn i Reykjavik. Lagðist þá að honum talsvert þunglyndi inn á milli, sem ýmislegt mótlæti hefur einnig aukið á, en þó orti hann talsvert þessi ár og stundaði náttúrufræðirannsókn- irnar kappsamlega. baö sem Jónas átti nú eftir ólifað, dvaldist hann i Höfn, embættislaus og við þröngan hag. Meginverkefni hans var að vinna fyrir Bókmenntafélagið að undirbúningi væntanlegrar íslands- lýsingar, en einnig sinnti hann málefn- um Fjölnis og ýmsum fræðistörfum. Veturinn 1843—’44 var hann þó i bæn- um Sórey á Sjálandi, þar sem hann dvaldist i góðu yfirlæti hjá vini sinum náttúrufræðingnum Japetus Steen- strup. Var Steenstrup nú kennari þar, en áður höfðu þeir Jónas verið samtiða við rannsóknir heima á Islandi, og unnu þeir þarna saman að ritstörfum sinum. Auk þess var hann þarna sam- tiða þeim B.S. Ingemann og Carsten Hauch, sem þá voru meöal helztu skálda Dana, og hefur þaö vafalaust auðgað anda hans. Þegar til Hafnar kom aftur, beið hans hins vegar sama basliö aö nýju, honum leið þar illa, var Eysteinn Sigurðsson. tekjulitill og þjáðist oftlega af þung- lyndi, og aöfaranótt hins 21. mai 1845 var Jónas á leið heim til sin, er hann hrasaði I stiga og fótbrotnaði illa. Að þvi er Konráð Gislason vinur hans skrifaði siðar, þótti honum ekki taka þvi að vekja fólk upp sér til hjálpar, heldur skreiddist inn til sin. Morgun- inn eftir var hann lagður á sjúkrahús, þar sem hann andaðist hinn 26. mai. Jónas var jarðsettur i Assistents- kirkjugarði I Höfn, og fjölmenntu Hafnar-Islendingar til útfararinnar. Næsti og hinn siðasti árgangur Fjölnis, 1847, mátti heita eingöngu helgaður minningu hans, og sama ár sáu þeir Brynjólfur og Konráð um útgáfu á Ljóömælum hans fyrir Bókmenntafé- lagið. Kvæði hans og önnur verk hafa siðan verið prentuð oftar en hér verði talið, en nefnd skal þó útgáfan á Ritum hans i fimm bindum, sem Matthias Þóröarson sá um og út kom á árunum 1929—''36. Arið 1946, þegar ein öld og ár betur var liðið frá andláti Jónasar, voru jaröneskar leifar hans fluttar Sunnudagsblað Timans 411

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.